Samvinnan - 01.09.1954, Blaðsíða 4
Velkomið heim, Helgafell!
Stærsta skip samvinnuflotans er þriðja stærsta
kaupskip þjóðarinnar og á heimahöfn i Rvik
Helgafell, nýjasta og stærsta skip
samvinnumanna, sigldi fánum skreytt
inn á Reykjavíkurhöfn um hádegis-
bilið 4. október síðastliðinn. Tók mik-
ill fjöldi af starfsfólki Sambandsins á
móti skipinu, en Sigurður Kristinsson,
formaður SÍS, bauð skip og áhöfn vel-
komið. Svaraði Hjörtur Hjartar fram-
kvæmdastjóri af brúarvæng og bauð
fólkinu að skoða skipið.
Með komu Helgafells verða sam-
vinnuskipin sex talsins, þar sem SÍS
hefur selt hlut sinn í minnsta skipinu,
Bláfelli. Er þetta orðinn ærið myndar-
legur floti, allt ný og glæsileg skip, en
samtals eru þau um 11.000 þungalest-
ir. Batnar enn aðstaða samvinnufé-
laganna til að veita þjóðinni aukna og
bætta siglingaþjónustu og þau munu
geta flutt enn stærri hluta af inn- og
útflutningi sínum á eigin skipum.
Gestkvæmt var í Helgafelli fyrstu
dagana, sem það lá í höfn. Fyrri dag-
inn bauð skipadeild ráðherrum, borg-
arstjóra og fleiri fyrirmönnum að
skoða skipið og fagna komu þess. Tók
viðskiptamálaráðherra, Ingólfur Jóns-
son, þar til máls og sagði meðal annars,
að skip þetta væri ein stoðin undir
sjálfstæði þjóðarinnar og væri gott, að
þær stoðir yrðu sem flestar. Hann kvað
þetta nýja skip mundu koma í stað
eins eða tveggja leiguskipa og stuðla
þannig að því, að þjóðin yrði sjálfri
sér nóg um siglingar. Eysteinn Jóns-
son, fjármálaráðherra, tók í sama
streng og gekk þó öllu lengra, því að
hann taldi, að siglingar ættu að geta
orðið mikill atvinnuvegur fyrir ís-
lendinga, eins og sumar nágranna-
þjóðir okkar. Borgarstjórinn í Reykja-
vík tók einnig til máls og bauð skip og
áhöfn velkomin til heimahafnar sinn-
ar. Auk þessara tóku til máls Hjörtur
Hjartar framkvæmdastjóri og Þórhall-
ur Sigtryggsson.
Það var mál manna, sem sáu Helga-
fell og skoðuðu það, að þar bættist
Efri myndin sýnir reykháf Helgafells og nokkur
af hátiðarflöggum þeim, er skipið skreyttu. —
Neðri myndin sýnir mannfjöldann á bryggjunni
við skipskomuna, en Hjörtur Hjartar talar af
brúarvrrng og bauð hann fólkinu að skoða skipið.