Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1954, Page 19

Samvinnan - 01.09.1954, Page 19
Rœkjubúðingur með hrlsgrjónum: 2 dl. rækjur iy2 dl. hrísgrjón 6 dl. vatn 2 matsk. saxaður laukur 1 matsk. smjör eða smjörlíki 4 egg y2 tesk. salt 1 matsk. hveiti 2 dl. rjómabland 2 matsk. rifinn ostur. Hrísgrjónin eru soðin mjúk í létt- söltuðu vatni. Laukurinn hitaður í smjörinu og blandað saman við hrís- grjónin. Rækjunum blandað saman við. Eldfast form er smurt og blandið sett í. Egg, salt, mjöl og rjómi hrært vel saman og hellt yfir formið, rifnum osti er stráð yfir. — Bakað í ofni við meðalhita, þar til búðingurinn hefur lyft sér og er orðinn ljósbrúnn. Rœkjusúpa: 200 gr. rækjur 1 1. fisksoð (kryddað með lauk) 1% dl. rjómi 1 matsk. hveiti 50 gr. smjörlíki 1 eggjarauða 1 tesk. sítrónusafi muskat, salt og pipar Smjörlíkið er brætt í potti, hveitið hrært saman við og jafnað með fisk- soðinu. Hrært í þar til suðan kemur upp. Látið sjóða í 10 mínútur. — Kryddið látið í ásamt rjómanum, hit- að þar til suðan kemur upp aftur. Tek- ið af eldinum. Rækjurnar látnar í. Eggjarauðurnar hrærðar í súpuskál- inni ásamt sítrónusafanum. Súpunni jafnað saman við. Borin fram vel heit. Hollenzk sósa: y2 bolli smjörlíki y2 bolli sjóðandi vatn 4 matsk. sítrónusafi 2 eggjarauður y2 tesk. salt, pipar. Eggjarauðurnar eru settar í pott yf- ir hægum eldi.hrærðar varlega og sítr- ónusafinn látinn í og hrært í. Smjör- líkið látið í og hrært saman þar til smjörlíkið er bráðið og sósan byrjuð að þykkna. Stöðugt hrært í. — Sjóð- andi vatni er bætt smátt og smátt í og haldið áfram að hræra í sósunni, þar til hún er vel jöfn. Krydduð. — Sósuna á að bera strax fram. (Þessi sósa er ágæt með soðnum fiski og grænmetisréttum.) Rækjur í hollenzkri sósu: 250 gr. rækjur 120 gr. smjörlíki 2 matsk. koníak 2 matsk. söxuð steinselja eða gras- laukur, hollenzk sósa. Smjörlíkið brætt í potti við hægan eld. Steinselja (eða graslaukur) sett í ásamt koníakinu. Rækjunum hrært varlega saman við. Vel heitri hol- lenzkri sósu hellt yfir rækj urnar. Bor- ið fram í heitum brauðkollum (tarta- lettum). Rœkjur a la Newburg (amerískt): 6 matsk. smjörlíki 2 matsk. hveiti 3 bollar rækjur örlítið muskat og pipar 2 tesk. salt 3 matsk. sherry 2 egg 2 bollar mjólk eða rjómi ristað brauð. Smjörlíkið er brætt, hveitinu jafnað saman við. Rækjurnar settar út í og síðan kryddið og sherryið. Eggin eru hrærð og rjóminn eða mjólkin hrært saman við. Þessu er síðan smátt og smátt hrært út í rækjurnar, látið sjóða þar til það er hæfilega þykkt. Borið fram á ristuðu brauði. Steiktar rœkjur: 200 gr. rækjur 2 eggjahvítur 2 matsk. brauðmylsna 2 matsk. smjörlíki iy2 dl. hrísgrjón 1 matsk. saxaður laukur 2 matsk. salatolía. Eggjahvíturnar eru þeyttar. Rækj- unum velkt upp úr hvítunum og síðan brauðmylsnunni. Smjörlíkið sett á pönnu. Þegar feitin er hæfilega heit, eru rækjurnar látnar á pönnuna og steiktar ljósbrúnar. — Borið fram með soðnum hrísgrjónum, sem er kryddað með lauk og olíu. (Gott sem millirétt- ur til miðdegisverðar eða með cock- tail.) Rækjur í karry (ensk uppskrift): 600 gr. rækjur. Jafningur: 1 y2 matsk. smjörlíki 3 matsk. hveiti 2—3 dl. rjómabland y2 tesk. karry. Rækjurnar eru látnar liggja í rjóma- blandinu nokkra tíma. Smjörlíkið sett í pott og hveitið hrært saman við, þynnt út með rjómablandinu, látið sjóða 5—10 mín. Salt og karry sett í. Síðan er rækjunum blandað saman við og látnar hitna í gegn. — Gott er að bera ristað brauð með þessum rétti. Tungan og þjóðernið (Framh. af bls. 9) Örfáir íslendingar eiga nú vald á blæríkum og persónulegum stíl. Flest virðist í flýti ritað. Blöðin eru allra lökust, og bera þó stöku aðsendar greinar langt af heimavinnu flestra blaðamanna. Litlu betri eru flestir ný- tízku skáldsagnahöfundarnir. Þýðingar lélegra, erlendra skáld- sagna eiga efalaust mikinn þátt í þeim litlausa og blælausa loðlopastíl, sem nú er að verða sterkur í íslenzku. Nú er að læðast inn í málið samskonar mál- skemmd og ásótti á dögum „munka- mælginnar“ og kansellístílsins. Flestir þýðendur „yfirsetja“ (eins og danskan og enskan segja) orð til orðs, halda er- lendri setningaskipan, nota eigi ís- lenzka talshætti né myndmál, þótt við eigi, í stað þess að sam„þýða“ hið er- lenda íslenzku málfari og tungutaki. Dagblöðin eru að stórum þætti flaust- urslegar þýðingar, og þó öllu fremur vikurit og mánaðarrit, ætluð til skemmtilesturs. En þetta þrent: Blöð- in, vikuritin og skálddsögur „yfirsett- ar“ en ekki þýddar eða frumsamdar, eru nú að verða aðal lestrarefni fólks- ins og valda því, að loðlopastíllinn er hættur að valda hneykslun. N ú skulu tekin dæmi, sem sýna hvað ég á við. Ég fletti af tilviljun upp í þeirri nýtízku skáldsögu, sem hendi verður næst. Höfundurinn hefur feng- ið fremur góða dóma og ritar skár en sumir aðrir: -------„Hann virtist ekki fyrirlíta neitt meira en tilfinningasemi og það varð til þess, að hann var af ýmsum álitinn hörkutól." -------»Dag nokkurn, er að kveldi leið, var Sigurbjörn að koma heim frá vinnu sinni. Rétt í því, er hann gekk í hlaðið, kom maður á þeysingsferð Iieim traðirnar í túninu. Kenndi hann þar Esíkíel frá Höfðaskála.“ -------„Þegar Bergur kom í búðina, beiddist hann strax áheyrnar hjá Hall- dóri kaupmanni." Þessar tilvitnanir eru alls 68 orð. Ég býst við, að mörgum finnist hér vel mælt eða frásögn lýtalaus. Til gamans hef ég fært efni þeirra 19

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.