Samvinnan - 01.02.1962, Qupperneq 12
Húsmæður
Auðvitað er nauðsynlegt að nota
sósulit, matarlit, borðedik og ediksýru, svo að
maturinn verði fullkominn.
UPPÞVOTTURINN VERÐUR
hneinasti barnaleikur
B L I K fjarlægir mjög auðveldlega alla filu og
skilar leirlauinu laumalausu og gljáandi
B L I K henlar því mjög vel í allan uppþvolt, en
einkum er það goll fyrir allar uppþvollavélar
Blik Btrír létt um vlk - Blik garlr lctt u,n vlk - Blik corir lett um vik
„Skuldar, skuldar!" hrópaði Bódísea
í bræði. „Við skuldum ykkur ekkert,
rómversku níðingar! Þjóð mín hefur sýnt
ykkur vinsemd, en þið hafið rænt hana,
barið og drepið niður! Þið skuluð verða
að svara til þessara saka, þjófar og morð-
ingjar!“
„Þögn, kona! Þú skalt verða að svara
til saka fyrir þessar móðganir við keis-
arann, þegar ríki þitt er orðið rómverskt
skattland," hreytti æðsti hundraðshöfð-
inginn út úr sér.
„Aldrei, aldrei! Ég býð Neró, keisara
ykkar, byrginn! ísenar eru frjáls þjóð!“
mælti drottningin, náföl af reiði.
„Grípið konuna! Hún hefur smánað
keisarann," æpti hundraðshöfðinginn til
hermanna sinna.
Bretónskur stríðsmaður, er stóð hjá
drottningu, bjóst til að verja hana, en
var höggvinn niður. Flestir þjóna Bódí-
seu voru óvopnaðir, svo aðeins varð um
skamma viðureign að ræða. Rómverskir
hermenn þrifu drottninguna og bundu
hendur hennar á bak aftur.
„Hýðið þessa ósvífnu drottningu með
svipum! Slík hirting kennir henni áreið-
anlega betri siði,“ fyrirskipaði hundraðs-
höfðinginn og glotti við tönn.
Rómverjarnir hýddu nú drottninguna
á grimmdarfullan og svívirðilegan hátt,
unz hún féll að fótum þeirra, föl og blóði
drifin. En hin stolta sál hennar kom í
veg fyrir, að nokkurt hljóð brytist fram
á milli samanbitinna vara hennar. Dæt-
ur hennar hlutu einnig ruddalega með-
ferð, og að lokum fóru Rómverjar eldi-
bröndum um þorpið og kveiktu í hálm-
þöktum kofum íbúanna.
Næstu dögum vörðu Rómverjar til
rána. Þeir hirtu fjársjóði konungs og
ráku á brott með sér hjarðir nautgripa,
sauðfjár og hinna litlu, harðgeru hesta,
sem ísenar ólu upp. Margt manna gerði
innrásarliðið að þrælum og rændi þá
öllum eignum. Jafnvel rómverska sagn-
ritaranum Tasítusi þótti nóg um. Hann
segir svo: „Höfðingjar ísena voru rænd-
ir eignum sínum eins og Rómverjar
hefðu þegið allt land þeirra að gjöf
Bódíesa drottning og dætur hennar
komust þó undan og í felur. Biksvart
hatur til Rómverja logaði í hjörtum
þeirra, enda biðu þær aðeins færis til
hefnda.
Jafnskjótt og Bódísea hafði sigrazt á
sorg sinni og örvæntingu. hófst hún
handa. Hún fór um meðal þjóðbræðra
sinna og hvatti þá til uppreisnar. Ncð-
anjarðarhreyfingin gegn rómversku
stjórnarvöldunum tók skjótum vexti;
jafnvel nágrannaþjóðf 1 okkurinn Trínó-
vantar var aðili að henni á laun. Innan
skamms hafði Bódísea komið skipulagi
12 SAMVINNAN