Samvinnan - 01.02.1962, Side 33
Reykjavík, 9. febrúar 1962.
KAUPFÉLAG fSFIRÐINGA; A árinu 1961 bárust 1. 333. 360 kg. mjólkur til
mjólkurstöðvar felagsins. Mjólkurinnleggsaukn-
ing varð því 10 1 /2% á árinu. 75 1 /2% fóru til neyzlu, en hitt í rjóma, skyr
og smjör. Mjólkurstöðin fær senda mjólk úr næsta nágrenni bæjarins, Djúp-
inu og úr Önundarfirði. Meginhluti mjólkurafurðanna fer til sölu á heima-
markaði, en nokkuð fer þó til sölu á nærliggjandi fjörðu.
Felagið hefir starfrækt pylsugerð súðan árið 1958 og eru þar
starfandi tveir menn. Framleiðsla pylsugerðarinnar fer að
mestu til sölu í verzlunum felagsins, en nokkurt magn er selt
til nágrannafélaganna.
NÚ standa yfir gagngerar breytingar á veínaðarvöruverzlun fólagsins og verður
henni breytt í hálfgildings kjörbúð, svipaða vefnaðarvörudeildinni hjá SÍS-
Austurstræti. Nokkur vandkvæði eru á að fá fagmenn til að ljúka verkinu, en
vonir standa til að nýja búðin verði opnuð með vorinu.
Fyrir þremur árum var tekið upp vélabókhald á skrifstofum
félagsins. Líkar það mjög vel, enda hefir náðst hinn bezti
árangur af þvi. Bokhaldið gengur mun fljótar fyrir sig og er
auk þess aðgengilegra og þægilegra.
Söluaukning varð nálægt 10% í öllum deildum félagsins. Söluskattur á árinu
nam kr. 613. 917. 00, þar með talin útibúin. Skiptast söluskattsgreiðslurnar
þannig:
fsafjörður kr.
Bolungarvík
Hnífsdalur
Súðavik
450. 509. 00
67. 398. 00
50. 135. 00
45. 874. 00
{ sambandi við söluskattinn gleymist oft að geta þess, að hann er ekki sam-
bærilegur við heildarveltu, þar eð stórir póstar eru ýmist undanþegnir sölu-
skatti (fóðurbætir, mjólk t. d. ), eða skatturinn er innheimtur af öðrum aðilum
(t. d. olíúr, tóbak, eldspýtur). Hér hjá okkur er þriðjungur veltunnar þannig
undanþeginn söluskatti, og er mjólkin stór liður þar x.