Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Síða 4

Samvinnan - 01.03.1964, Síða 4
Jónas Jónsson frá Hriflu HALLGRÍMUR PÉTURSSON um gerði Jónas Jónsson, fyrr- verandi ritstjóri Samvinnunnar það fyrir sitt gamla rit, að skrifa grein um Hallgrím. Með þessu vill Samvinnan minnast og minna á sálmaskáldið, sem enn þann dag í dag, 350 árum eftir að það fæddist, er á per- sónulegri hátt bundinn næstum hverjum einasta Islendingi, heldur en nokkurt skáld annað. Tæpast finnst eitt einasta barn, sem ekki kemst á einhvern hátt í snertingu við sálmavers Hall- gríms í frumæsku, og næstum hver einasti karl og kona eru kvödd hinstu kveðju með orð- um hans, þrungnum andagift, skáldlegri speki og trú. Og sannast sagna er það, að á mis- munandi langri leið á milli þessara tveggja höfuðskauta mannsævinnar, svífur andi Hallgríms Péturssonar, og snertir menn, hvort sem þeir vilja eða vilja ekki, hvort sem þeir trúa eða trúa ekki. Hann er staðreynd í lífi þjóðarinnar. P.H.J. Þegar liðnar voru þrjár aldir frá fæðingu Hallgríms skálds Péturssonar, orti Matthías Jochumsson um hann það eftirmæli, sem bezt hefur verið gert um nokkurn íslenzkan mann. Vel fór á því. Fram að þeim tíma hafði skáldið í Saurbæ verið mest trúarskáld íslendinga um marga áratugi. Nú var Matt- hías Jochumsson á bezta aldri, fullur af orku og skáld- legri andagift. Hann var að setjast við hlið Hallgríms Péturssonar sem annað trú- arskáld íslendinga. Ekki er þar um að ræða keppni milli jafningja eins og bezt sést á 1 þessum mánuði er þess minnst, að 350 ár eru liðin frá fæðingu Hallgríms Péturssonar. Fæðingardagurinn er ekki kunnur, en fæðingarárið ekki dregið í efa. Samvinnunni þykir hlýða, að helga með nokkrum hætti minningu sálmaskáldsins hluta af þessu hefti. Þess vegna var farið til ekkju Einars Jónsson- ar myndhöggvara, frú Önnu Jónsson, og fengið Ieyfi hennar til þess að taka ljósmyndir af tveimur listaverkum manns hennar, Minnismerki um Hall- grím Pétursson; er mynd af því á forsíðu, og andlitsmynd af skáldinu. Fengin var til birt- ingar mynd af líkani Hall- grímskirkju, sem verið er að reisa á Skólavörðuhæð, eftir teikningu Guðjóns Samúels- sonar, húsameistara og að lok- Lágmynd af Hallgrími Péturssyni, gerð af Einari Jónssyni. Ljósm.: Þorvaldur Ágústsson. 4 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.