Samvinnan - 01.03.1964, Side 6
UNDUR VERALDAR
Pýramídarnir vi® Giza. Fjærstur er Keopspýramídinn, sem er
stærstur þeirra, næstur honum pýramídi Kefrens og Ioks pýramídi
Mykerínosar. Smápýramídarnir, sem einnig sjást á myndinni,
voru ætlað'ir ættingjum faraóanna.
Ekkert hinna sjö furðuverka
fornaldar hefur komið ímynd-
unarafli manna á aðra eins
hreyfingu og pýramídinn mikli
við Giza í Egyptalandi, er Keops
kóngur lét byggja nálægt 2580
Kefren kóngur, sem byggja lét
næststærsta pýramídann við
Giza. Hann ber gerviskegg fyr-
ir helgisiðasakir, og við hnakka
hans situr Hórusfálki, sem
verndar hann með vængjum
sínum. Myndin er af styttu úr
svörtum díorit, sem fannst árið
1858.
árum fyrir Krists burð, enda
er hann hið eina þeirra, sem
cnnþá er varðveitt. Slíkt ó-
grynni furðusagna hefur skap-
ast utanum þetta kostulega
steinbákn, að sjálfar hinar
nöktu staðreyndir varðandi það
hafa að vissu marki orðið að
þoka í skuggann.
En jafnvel þótt við aðeins
höldum okkur við staðreynd-
irnar, er pýramídinn sá arna
ennþá stærsta bygging heims-
ins af þeim, er reistar hafa
verið sem minnismerki. Þessu
sæti heldur hann ennþá, enda
þótt hann í hundruð ára hafi
jafnframt verið nytjaður sem
steinnáma af landsins börn-
um, sem sótt hafa í hann grjót
í óteljandi moskur, hús, brýr og
múra á gervöllu Kaírósvæðinu.
Til að gera sér stærð þessa
risavaxna minnismerkis betur
ljósa, hafa menn oftlega brugð-
ið upp ýmsum misjafnlega vel
heppnuðum samlíkingum. Til
dæmis kvað hafa verið reikn-
að út, að pýramídinn gæti
rúmað dómkirkjurnar báðar í
Flórens og Mílanó, auk Pét-
urskirkjunnar í Róm, West-
minster Abbey og Sánkti Páls-
kirkjunnar í Lundúnum. í
sinni upprunalegu hæð gnæfði
hann ofar öllum byggingum
veraldar, að dómkirkjunni i
Köln undanskilinni.
Samkvæmt mælingum þeim,
er J. H. Cole gerði á pýramíd-
anum 1925, var hann uppruna-
lega 147 metra hár, og hver
hinna fjögurra hliða er 230
metra við grunninn. Þær eru
miðaðar við heimshornin fjög-
ur, og skakkar þar furðulega
litlu á réttar mælingar, þegar
höfð eru í huga þau frum-
stæðu verkfæri, sem menn á
þeim tímum höfðu til þess
háttar starfa. Hafa það verið
mjög svo einföld tæki, gerð
með tilliti til stjarnfræðilegra
athugana, en engu að síður
hefur mönnum tekist að ná
hornum pýramídans fullkom-
lega vinkilréttum. Á álíka
einfaldan hátt hefur hinum
forn-egypsku byggingameistur-
um tekist að fá grunnflötinn
því sem næst láréttan, svo að
suöausturhornið liggur aðeins
hálfum þumlungi hærra en
norðvesturhornið.
Þá hefur sú niðurstaða feng-
ist með útreikningum, að í
pýramídann hafi farið um
2.300.000 steinblakkir, að með-
altali 2V2 tonn að þyngd. Ein-
staka hellur eru þó auðvitað
miklu þyngri, allt upp í 50
tonn. Þetta er þó ekkert hjá
sumum þeim völum, sem fóru
í pýramída Mykerínosar, en
þær stærstu þeirra vega allt
að 200 tonnum.
Grikkinn Heródót, sem skráði
fyrstu mannkynssöguna, segir
að 400.000 manns hafi verið 20
ár að byggja pýramídann
handa Keops, en þar ýkir hann
líklega sem oftar. Að vísu get-
ur árafjöldinn staðist, en hitt
er talið ólíklegt, að konungur
hafi þurft nema svo sem
100.000 verkamenn til að ljúka
smíðinni á þeim tíma, og hafi
þeir jafnvel aðeins verið við
verkið nokkurn hluta ársins.
Mestur hluti kalksteinsins,
sem notaður var í pýramídann,
var sóttur í steinnámur í Mo-
kattamfjöllum á austurbakka
Nílar. Þar voru steinblakkirn-
PÝRA-
/
ar, að því er talið er, losaðar
úr bjarginu og tilhöggnar í
hleðsluna, númeraðar, hífaðar
með frumstæðum lyftistöng-
um upp á trésleða, dregnar á
þeim niður að Níl og fluttar
yfir hana á bátum eða flekum.
— Toppur pýramídans og
klæðningin í ganga hans og
herbergi var hins vegar úr
granít, sem sótt var í námur
við Assúan, næstum þúsund
kílómetra suðurfrá.
Lítt er nútímamönnum kunn-
ugt um þær aöferðir, sem bygg-
ingameistarar faraóanna not-
uðu tilað koma níðþungum
steinblökkum upp á pýramíd-
ann og á sinn stað í hleðsl-
unni, en helzt er talið að þeim
hafi verið velt upp aflíðandi
halla úr leirsteini, sem hrúg-
að var upp við eina hlið pýra-
mídans.
Auðséð er að við byggingu
Keopspýramída hefur verið
vandlega fylgt fyrirfram gerðri
áætiun, að minnsta kosti hvað
ytra borð hans snertir. En um
herbergin inni í honum gegnir
öðru máli. Upphaflega hefur
grafhvelfingin aðeins átt að
vera ein, og henni þá komið
fyrir undir grunninum, enda
er þar að finna herbergi, sem
Elzti pýramídinn er tröppupýramídinn svokailaði við Sakkara,
byggður fyrir Djoser kóng um 2700 árum fyrir Krists burð.
Hann er milliliður í þróuninni frá minni grafhýsum til hinna
eiginlegu pýramída.
6 SAMVINNAN