Samvinnan - 01.03.1964, Page 7
Gæsirnar frá Medum skammt frá Kaíró, óvenjulega lifandi og
fallegt málverk frá timum Gainla ríkisins egypska, en á þeirri
tíð' voru stærstu pýramídarnir byggðir. Málverkiff fannst í gröf
hefffarkonu nokkurrar.
EGYPTA-
LAHDS
aldrei hefur verið fullgert. Því
áður en svo varð, var bygging-
aráætluninni breytt, og hafist
handa um byggingu nýs her-
bergis í miðbiki pýramídans.
Það varð þó aldrei fullgert
heldur, en er samt kallað því
virðulega heiti Drottningar-
herbsrgið. Þriðja vistarveran í
pýramídanum er geysistórt
herbergi, nærri 47 metra langt
og átta og hálfs metra breitt,
en hæðin til lofts er allt að
níu metrum. Frá þessum mynd-
arlega sal liggur þröngur
Hinn frægi Sheik-el-Beled
(þorpsfógetinn effa yfirprest-
urinn). Þessi tréskurðarmynd
er eitt kunnasta listaverkiff,
sem varffveitt er frá tímum
Gamla ríkisins egypska. Hún
fannst í gröf einni viff Sakkara.
gangur til hinnar eiginlegu
grafhvelfingar, sem er 10.47 x
5.23 m. að stærð, og lofthæð
5.82 metrar. Til þess að létta
þunganum af þaki grafhvelf-
ingarinnar, hefur verið komið
fyrir ofan við hana fimm skil-
rúmum úr granít, og er þak
fjögurra hinna neðstu flatt, en
hins efsta vafflaga. Útbúnaði
þessum er komið fyrir af því-
líkri snilld, að einsdæmi þykir
í sögu byggingalistarinnar. —
Líkt og flestar aðrar forngraf-
ir hefur Keopsgröf verið rupl-
uð þegar í fornöld, og er nú
aðeins í henni að finna lok-
lausa líkkistu úr granít.
Enda þótt hvorki fyrr né
síðar hafi verið hörgull á
mönnum, sem talið hafa pýra-
mída tjáningarform háspeki-
legs vísdóms, er fullkomlega
ljóst, að þeim var fyrst og
fremst ætlað að vera gröf kon-
unga, en auk þess hafa forn-
fræðirannsóknir sýnt og sann-
að, að allir þeir pýramídar, sem
enn eru varðveittir, hafa að-
eins verið miðdeplar heilla
byggingasamstæðna, sem
bundin hafa verið hinni kon-
unglegu dauðradýrkun. Auk
pýramídans sjálfs var þar um
að ræða grafarmusteri með
görðum og súlnagöngum, upp-
hækkaðan og stundum yfir-
byggðan veg, sem náði niður
að fljótinu og hægt var að
flytja lík kóngsins eftir án þess
almenningur sæi; sérstakther-
bergi neðanjarðar, þar sem
aðstaða var til að smyrja lík
faraós og veita því annan þann
umbúnað, er nauðsynlegur og
viðeigandi var talinn; nokkrir
litlir pýramídar, er ætlaðir
voru kvenfólki úr konungs-
fjölskyldunni; sérstakt graf-
hýsi, sem geymdi innýfli fara-
ós, en þau voru fjarlægð úr
líki hans við smurninguna o.
fl o. fl.
Þessi margbreytilegi arki-
tektúr átti sér auövitað langa
þróunarsögu að baki. Má vel
rekja hana frá tröppupýra-
mídanum við Sakkara, sem
byggingameistarinn ímhótep
reisti fyrir herra sinn, Djoser
konung. Þaðan er auðrakin
slóðin til risapýramídanna
þriggja við Giza, og þaðan til
pýramída fimmtu og sjöttu
Þar er að finna, skráðan með
helgirúnum, elzta texta trúar-
legs eðlis, sem til er í heimin-
um.
Þótt undarlegt mætti heita,
misstu faraóarnir áhuga á
þessum stórkostlegu dauðra-
höllum þegar veldi þeirra var
hvað mest, á tímum tuttugustu
og áttundu konungsættar.
Fyrsti konungur af henni,
Amósis, er talinn síðasti fara-
konungsættar, sem að vísu eru
miklu minni, en þeim mun
listilegar skreyttir að innan.
óinn, er pýramída lét byggja.
Hins vegar gerðist það meira
en 800 árum síðar, að núbiskir
höfðingjar, nábúar Egypta í
suðri, tóku að byggja sér pýra-
mídalagaðar grafir í nágrenni
borganna Meroe og Napata, og
má þar enn sjá töluverðar leif-
ar þeirra.
Það segir sig sjálft, að þar
eð drjúgum hluta af listrænni,
tæknilegri og fjárhagslegri
orku heillar þjóðar var um
meira en þúsund ára skeið var-
ið til byggingar svo risavax-
inna grafhýsa, hlýtur þýðing
þeirra fyrir Egyptana að hafa
verið meira en lítil. Enda var
trúin á guðlegan uppruna ein-
valdanna allt annað en yfir-
borðskennd í hugum þeirra,
heldur grundvöllur ríkishug-
myndarinnar sjálfrar. Ekkert
var sparað til að tryggja hin-
um sálaða faraó lif hinumeg-
in, því aðeins fyrir hans til-
stilli gátu þegnar hans gert
sér vonir um þvílíkt líf.
Pýramídarnir eru þannig
fjarri því að vera vitni um
stórmennskubrjálæði og hroka
þjóðhöfðingja, heldur talandi
vitni um trúarlega viðleitni
sinna tíma, og þola að þvi
leyti samanburð við hinar
gotnesku dómkirkjur Evrópu.
Þverskurffur af Keopspýramída. Sjást þar öll herbergin, sem
getiff er um í greininni, svo og gangarnir milli þeirra. Þeir eru
affeins rúmlega meter á hæff. Punktalínurnar tvær niffur í kon-
ungsherbergiff tákna loftrásir, sem gerffar voru meff þaff fyrir
augum að sál hins andaffa konungs hefffi greiffan aðgang að
múmíu hans.
SAMVINNAN 7