Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Side 14

Samvinnan - 01.03.1964, Side 14
Mér er í fersku minni þegar ég sá hann í fyrsta sinni, þetta bankaritaraafstyrmi. Þeir komu til okkar, þar sem við stóðum þreyttir og úttaugaðir við að- gerðina eftir langvarandi erf- iði og vökur, og stikluðu á gljá- fægðum skóm sínum milli slorpollanna, tveir uppdubbaðir ungir menn með hvítt um háls- inn — hann sonur útgerðar- mannsins og bankaritari að at- vinnu, sem var fínt starf, og frændi hans, einhver náms- maður, sem var víst aðeins staddur í plássinu í skemmti- ferð, svo skemmtilegt sem það mátti vera að flækjast í þess- ari sóðalegu verstöð. Þeir, sem gerðu það af öðru en illri nauð- syn, hlutu að vera einkennilega innréttaðir menn, fannst mér að minnsta kosti. Nú, þessi út- gerðarmannssonur hafði svo sem líka átt að verða mennta- maður. Hann, sem var jafn montinn og hann var heimskur, hafði verið rekinn áfram í skóla eins lengi og nokkur kost- ur var á, en auðvitað féll hann á öllum prófum. Og þegar út- séð þótti um, að hægt yrði að klína á hann svo miklu sem stúdentsnafnbót, lá ekkert annað fyrir en gera hann að bankaritara. „Halló strákar! Þeir hafa svei mér hitt í hann,“ sagði drengurinn og fleygði hálf- reyktri sígarettu í hausahrúg- una. Ætli hann hefði verið al- veg svona kampakátur yfir, að þeir skyldu hafa hitt í hann, ef það hefði verið hann en ekki við, sem átti fram undan átta til tíu klukkustunda aðgerð og nú þegar komið kvöld. Lotningarfullt bros færðist yfir andlit landformannsins, Barátta okkar Magga um hylli Pöllu varð ce tvísýnni eftir því sem tímar liðu. En ... Jjað er annars bezt ég skýri frá því, sem síðar kom á daginn ... REKKJUNAUTAR Smásaga eftir Friðjón Stefánsson næstum eins og hann stæði frammi fyrir útgerðarmannin- um sjálfum. „Já, það er alltaf sami bless- aður aflinn,“ sagði hann og þáði hjá þeim sígarettu. Það hafði hann aldrei gert hjá okk- ur. Spjátrungarnir héldu innar eftir aðgerðarhúsinu, bentu hanzkaklæddum fingrum á fiskstakkana og skeggræddu um, hve mörg tonn væru kom- in í húsið. Mér var strax illa við þá, án þess að þeir hefðu unnið til þess á nokkurn hátt, nema með þvi að spígspora þarna í kringum okkur, sem vorum að þræla. Gátu þeir ekki þvælzt einhvers staðar annars staðar? „Þeir hefðu gott af að vaka nokkrar nætur við aðgerð, þess- ir andskotar,“ sagði ég ólund- arlega um leið og þeir hurfu út um dyrnar. „Já, svona kóna þarf að taka og slípa,“ sagði Maggi kojufé- lagi minn og vinur. Landformaðurinn leit á okk- ur með umvöndunarsvip eins og við værum staðnir aö hneykslanlegri óháttvísi. Þetta var laugardagskvöldið fyrir dymbilviku og átti ekki að róa daginn eftir til allrar blessunar. Við Maggi höfðum alltaf ver- ið vinir frá því við kynntumst, enda kojufélagar eins og ég tók fram. Allt þangað til þessi fjandi kom fyrir út af stelp- unni — frammistöðustúlkunni á matsölunni, þar sem við borð- uðum. Fyrst í stað hafði ég ekki veitt henni neina sérstaka at- hygli. En smátt og smátt — eða allt í einu, veit ekki hvort var — hafði ég uppgötvað, að hún var í rauninni skrambans ári lagleg. Og ekki nóg með það, heldur var hún líka skyn- söm og skemmtileg. Rödd hennar og hvert eitt hennar háttalag var unaðslegt. Sem sagt, ég var orðinn dauðskot- inn í henni, áður en ég vissi af. Ég vissi ekkert um hug Magga til hennar fyrr en á Pálmasunnudag. Við vorum að koma frá hangikjötsáti á þeim helga degi. Þá sagði hann allt i einu upp úr eins manns hljóði: „Gróflega er hún aðlaðandi stelpa, hún Palla.“ Nú kom þetta að vísu yfir mig eins og þruma úr heiðskíru lofti, og ekki sérlega heppilegt fyrir mig, þar sem Maggi var allra gerfilegasti strákur. En ekkert var fjær mér en gefa honum hið minnsta tækifæri til að renna grun í tilfinningar mínar gagnvart stúlkunni. Ég svaraði því mjög kæruleysis- lega og gerði mér upp geispa: „Ójá. Það væri vissulega þess vert að reyna að ná henni á löpp, áður en maður flækist héðan.“ Hann sendi mér næstum grimmilegt augnatillit. „Palla er sko ekki stelpa, sem maður tekur á löpp að gamni sínu. Hún er greind og „stabíl“ stúlka." Hann var þá orðinn svona alvarlega skotinn líka, hugsaði ég. Gæti orðið hörð samkeppni. En á samri stundu varð mér ljóst, að mér yrði það óbætan- legt sálartjón, fengi ég ekki að njóta stúlkunnar. Ég skyldi berjast fyrir þvi af allri minni getu og einskis svífast, hver sem í hlut ætti. Ég lét sem ekk- ert væri og sagöi: „Naumast þú heldur hún sé heilög." „Þú ert skilningslaus asni,“ sagði hann. „Palla er sko stelpa, sem maöur getur talað við — til dæmis um skáldskap." Maggi hafði fengið birt eftir sig kvæði upp á þrjú erindi í einhverju ómerkilegu tímariti, en átti auk þess í fórum sinum hálfa aðra stílabók af óprent- uðum ljóðum og taldi sig til skálda. „Þú ættir að sýna henni stíla- bækurnar þinar. Kannski hún geti „inspírerað“ þig svo að þú getir kreist úr þér annaö prenthæft kvæði.“ Meira þurfti hann ekki til þess að fyki i hann. Og eftir þrjá daga kom aftur hin langþráða hvíld. Það var ekki róið á skírdag og föstudag- inn langa. Við Maggi mættum uppábúnir til máltíða, vorum þaulsætnir og gripum öll tæki- færi til að gera hosur okkar grænar fyrir Pöllu, hvor sem betur gat. Hann hafði boðizt til að lána henni einhverjar Ijóðaskruddur og þeim talaðist svo til, að hún sækti þær til hans. En fyrst þurfti hann að hjálpa henni við uppþvottinn. Það var þó starf, sem minn maður hefði ekki lagt fyrir sig undir öðrum kringumstæðum. Ég þorði ekki annað en bíða líka, reyndi að vera upprifinn og leggja orð í b;lg um ljóða- kveðskap, enda þótt hann sé að mínum dómi ómerkust teg- und bókmennta. Maggi gaf mér illt auga en ég lét slíkt ekki á mér hrína. 14 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.