Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Page 17

Samvinnan - 01.03.1964, Page 17
Vér Úlrika Eleónóra af Guðs Náð Svíaríkis, Gauta og Vinda Drottning, Stórfurstynja til Finnlands, Hertogynja úti i Skáni o. s. frv. o. s. frv. Friðrik prins af Hessen-Kassel, maður Úlriku drottningar og æðsti yfirmaður Svíahers 1719, árið eftir konungur Svíþjóðar. Georg Heinrich von Görtz barón. Hann bjó yfir stórkost- legum fyrirætlunum, en missti höfuðið áður en þær komust til framkvæmda. Rutger Fuchs, ofursti Sörm- landshcrdeildarinnar, sem sigr- aði Rússa við Baggensstáket. Hann komst síðar til mikilla metorða í stjórn landsins. hvort norskur soldáti varð banamaður hans eða leigusnati fjandmanna Görtz við Stokk- hólmshirðina. Víst er um það, að sú klíka var snör í snúning- um við lát konungs; lét hún handsama Görtz og höggva af honum höfuð, en setti í hásæti Úlriku Eleónóru, systur Karls heitins, og mann hennar þýzk- an, Friðrik prins af Hessen- Kassel, myndarnáunga til orðs og æðis og gleðimann mikinn. Hefur hann sjálfsagt hugsað gott til glóðarinnar að gerast nú ráðamaður ríkis, þar sem karlmannafæð hefur verið orð- in mikil vegna langvarandi vígaferla. Þau hjónin og þeirra full- tingismenn höfðu engan áhuga á vinmálum við Rússa, en settu traust sitt þess í stað á Breta. Líkaði Pétri keisara það stór- illa, því sízt af öllu kærði hann sig um brezka flotann inn á Eystrasalt. Þar eð hann hafði þá þegar hernumið öll lönd Svía austan Eystrasalts að með- töldum Álandseyjum, var hern- aðarleg aðstaða hans góð. Á- kvað hann því að taka upp hætti eistnesku og vindversku sjóræningjanna fyrrmeir og sækja sænsku strendurnar heim með báli og brandi. Til slíkra aðgerða réð hann líka yfir skæðu vopni, miklum flota af galeiðum, skipum, sem ann- ars voru fásén utan Miðjarðar- hafsins. Hafði grískur maður, ívan Botsis, kennt Rússum smíði þeirra. Galeiðurnar, sem voru grunnskreiðar og gengu ekki síður fyrir árum en segl- um, voru skæð vopn í sænska skerjagarðinum, þar eð þær gátu auðveldlega smogið inn- um grunn sund og ála, sem ófær voru stærri herskipum. Þannig sá Pétur, að hann gat leikið á brezka flotann, ef hann gerði sig líklegan til atlögu. Enda þótt rússneska keisara- dæmið hefði til skamms tíma haft sáralítinn aðgang að sjó, hafði Pétri keisara af sínum frábæra dugnaði þegar tekizt að gera því myndarlegan flota. Höfuðmarkmið hans var að brjóta Rússum leið úr því fang- elsi tartarískrar einangrunar og cmenningar, er þeir höfðu búið við allt síðan á dögum Djengis Khans, og sjóleiðin gegnum Eystrasalt átti að verða höfuð- vegurinn að því takmarki. Að vísu var hinn nýi floti harla sérkennilegur í sinni röð. Þar eð Rússar sjálfir voru að vonum iítt kunnandi um sjómennsku, hafði Pétur orðið að fylla skip- rúm sín að verulegu leyti með margskonar lausingjalýð vest- an úr löndum. Þar voru Þjóð- verjar, Frakkar, Englendingar, Hollendingar, Danir, Norðmenn og jafnvel sænskir og finnskir liðhlaupar, og mál allra þessara þjóðflokka og fleiri blönduðust saman i einn babelskan hræri- graut, þegar sjófólk keisara ræddist við. Sjálfur talaði Pét- ur jafnan hollenzku, þegar rússneskan kom ekki að gagni, enda kunni hann ekki önnur mál. Hollenzkuna hafði hann lært, er hann þrælaði sem timburmaður í skipasmíðastöð í Hollandi, til að geta síðar kennt löndum sínum að byggja skip. í júnílok árið 1719 var mikill hluti rússneska flotans saman- kominn við Hangöskaga á Finnlandsströnd, reiðubúinn til Svíþjóðarsiglingar. Rússar hafa löngum þótt ágætir drykkjumenn, og svo var einn- ig í þennan tíma. Þótti þeim hið mesta óráð að byrja nokk- urt meiriháttar verk án þess að drekka sig vel fullan fyrst. Var það trú þeirra — og er kannski enn — að áfengið fylli manninn orku og sigurvilja. Bindindissemi þótti því jaðra við landráð, sérstaklega á hættutímum sem þeim, sem nú gengu yfir hið heilaga Moskóví. Leiðangurinn var því vígður með ofboðslegri drykkjuveizlu, sem stóð svo dögum skipti. En Bakkus krafðist sinna fórna sem fyrr. Pétur keisari hafði sjálfur ætlað að stýra leiðangr- inum, en þegar þessi hollenzk- menntaði timburmaður vakn- aði að morgni brottfarardags- ins, ólmuðust heimsins skelfi- legustu timburmenn af fullum krafti innan í höfði hans. Hann gat ekki svo mikið sem reist höfuð frá kodda og varð að senda aðmírál sinn, Aprak- sín að nafni, af stað með flot- ann. — Hvort Apraksín þessi var nokkur sjómaður, er ekki vitað, enda munu hin raun- verulegu völd hafa verið í höndum útlendra ævintýra- manna, sem vel kunnu til verka á sjó. Galeiðurnar sjálfar voru yfir hundrað og þrjátíu að tölu, stærsti floti af því tagi, sem nokkru sinni hafði sést. Þær voru flestar um þrjátíu metra langar, sex metra breiðar, höfðu innbyrðis tvær fallbyss- ur og hundrað og fimmtíu til Framhald á bls. 23. SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.