Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 28

Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 28
Af erlendum vettvangi: VIÐSJÁR í AUSTUR-AFRIKU Undanfarið hefur fáa heims- hluta borið jafnoft á góma í fréttum og Austur-Afríku, það svæði sem ýmsir nútíma mann- fræðingar vilja kalla frumbyggð mannkynsins, gagnstætt því sem áður hefur verið haldið. Eitt er víst, að lönd Austur- Afríku eru allsérkennileg hvað fólk og náttúru snertir; þar hefur landslag meiri fjöl- breytileik en algengt er í Suð- urálfu, nægir í því sambandi að nefna hálendi Eþíópíu, Ke- níafjall, sem Kíkújúar tilbiðja, vötnin miklu í lægð þeirri, er klýfur álfuna frá norðri til suðurs og margt fleira mætti telja. Hvað fólkið snertir, þá er það sumpart allfurðulegur sam- runi hvíta og svarta rasans, sem varla á sér hliðstæðu ann- ars staðar meðal mannkynsins, nefnist sá kynþáttur eþíópídar á máli mannfræðinga. Er það fólk fremur vörpulegt álitum, alldökkt á hörund, en hefur hár- og skeggvöxt mikinn líkt og hvítir menn. I andlits- falli minnir það fullt svo mik- ið á hvíta menn og svarta. Kynþáttur þessi er ríkjandi meðal fólks i Eþíópíu og Só- malílandi, en áhrifa hans gætir víða í ýmsum nágrannalönd- um. Sunnar og vestar gætir negranna meira; í Keníu og Úganda ráða Bantúmenn mestu og í Tanganjíku eru þeir allur þorri íbúanna. Hvað tungumálin snertir, er fjöl- br.ytnin ekki minni; í Eþíópíu og Sémalílandi eru töluð sem- ísk og hamísk mál, en sunnar eru Bantútungur ríkjandi. Okello, byltingarforingi í Sansí bar. 1 útvarpsávavpi hótaði liann öllum þeim, er rrsa kynnu gegn veldi hans, að þeir yrðu „hengdir uppí tré eða stefktir sem kiúklingar". Raunar eru málfræðingar enn þá engan veginn á einu máli um hvar í flokka beri að skipa mörgum þeirra tungna, sem talaðar eru í umræddum heims- hluta. Þrátt fyrir þann yfirþyrm- andi svip fátæktar og villi- mennsku, sem enn má segja að einkenni Austur-Afríku, verður ekki annað sagt en hún hafi haft dágóða aðstöðu til að til- einka sér betra líf; allt frá efstu dögum heimsmenningar- innar bárust áhrif hennar suð- ur Nílardalinn til þessara landa frá Egyptalandi, og yfir Rauðahafið frá Arabíu; þaðan komu endur fyrir löngu for- feður Amhara, herraþjóðar Eþíópíu, beint úr byggðum drottningarinnar af Saba, enda rekja Eþíópíukeisarar enn ætt- ir sínar til hennar og Saló- mós. Arabar stofnuðu aukin- heldur ágætar verzlunarborgir víða með ströndum fram; varð Sansíbar þeirra helzt. Þaðan fóru kaupskip um gervallt Ind- landshaf. En meginástæðan til írægðar Austur-Afríku þessa dagana er ekki saga hennar forn, held- ur skálmöld sú, er yfir lönd hennar hefur gengið, nærri öll samtímis. Kvað svo rammt að, að ríkisforkólfar þriggja fyrrver andi brezkra nýlendna, Tanga- njíku, Keníu og Úganda, urðu að grátbiðja sína fyrri kúgara um hjálp gegn eigin soldátum. Þakkað veri Bretum urðu því ekki bl.ðsúthellingar að ráði í þessum þremur ríkjum, en verr fór í eyríkinu Sansíbar, sem er aðeins þriðjungi fjölmennara en Island. Þar gerðu negrarnir, sem eru meginhluti íbúanna, uppreisn gegn hinni arabisku yfirstétt og kvistuðu hana niður í hundraðatali. Forystumaður byltingarmanna var Okello nokkur, sem stærir sig af því að hafa verið í flokki Mau-mau- illþýðisins í Keníu, en að baki honum standa menn, er sagðir eru hafa numið í Moskvu og Peking. — Sem dæmi um menningarástand þessara afr- ísku fjölnismanna má nefna, að í sigurgöngu um stræti Sansí- barborgar skreyttu þeir bifreið- ar sínar með afskornum hreðj- um sinna fyrri drottnenda. — Þetta háttalag virðist annars vera töluvert almsnnt með Austur-Afríkönum; sums stað- ar í Suður-Eþíópíu fær enginn yngissveinn að ganga í heilagt hjónaband, nema liann færi unnustunni að gjöf kynfæri karlmanns af einhverjum ná- grannaættbálki. Og þegar Me- nelik Eþíópíukeisari gersigraði ítalskan innrásarher skömmu fyrir aldamótin, lét hann skella undan öllum stríðsföngunum og sendi þá svo heim, svo þess- ir afkomendur Rómverja gætu þó sýnt þjóð sinni, að þeir hefðu í styrjöld komið. Annar blóðvöllur oftnefndur um þessar mundir er landa- mæri Eþíópíu og Sómalílands. Gera Sómalir kröfu til allstórra svæða, sem nú tilheyra Eþíó- píu og Keníu; segja sem satt er, að þau séu byggð Sómölum. En hvorki Júdaljón í Addis Abeba né Hið logandi sverð í Naíróbí eru líkleg til að taka tillit til þess háttar smámuna, að minnsta kosti ef máttarminna ríki á í hlut. Sómalir eru nú eina hamíska þjóðin, sem ræður sér sjálf, og er þá lítill orðinn vegur þess þjóðabálks, er hvað fyrstur varð til að upphefja kyndil þeirrai heimsmenningar, sem við stát- 28 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.