Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 6

Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 6
• EKKI GRUNDVÖLLUR FYRIR SAMKEPPNI Þá eru upp taldir helztu þættir í starfsemi félagsins. Reksturinn gekk ágætlega ár- in 1973 og 1974. En verðbólgan bitnar illilega á allri verzlun, sérstaklega i dreifbýlinu, og því miður urðum við að gera félag- ið upp með 2 milljón króna tapi fyrir árið 1975. En til þess að skýra lítillega þátt Kaupfélags Skaftfellinga í atvinnulífi hér um slóðir, má geta þess, að félagið greiddi í vinnulaun á siðasta ári 82,6 milljónir, sem er ekki svo lít- ið. Það voru milli tVö og þrjú- hundruð manns á launaskrá hjá okkur á síðasta ári, þó að fastráðnir starfsmenn um síð- ustu áramót væru aðeins 61. íbúar í Vik eru rúmlega 400. Á félagssvæðinu öllu eru hins vegar líklega um 1400—1500 manns. Félagsmenn i kaupfél- aginu eru 483. — Er áhugi félagsmanna mikill? — Um hann er það að segja, að hér áður fyrr voru haldnir deildarfundir í hverri deild, en þær eru átta. Þessu var hætt rétt áður en ég kom hingað. Nú eru aðeins haldnir tveir deildafundir, annar hér i Vík fyrir vestursvæðið og hinn á Kirkjubæjarklaustri fyrir aust- ursvæðið. Það hafa mætt milli 50 og 60 manns á fundunum síðan ég byrjaði — og það má teljast þokkaleg aðsókn. Og umræður á fundunum hafa verið almennar. Mér hafa þótt deildafundirnir yfirleitt mál- efnalegir og liflegir. Þeir hafa sýnt ótvirætt, að menn hafa mikinn áhuga á félaginu og málefnum þess. Kaupfélag Skaftfellinga er nú eini verzlunaraðilinn i allri Vestur-Skaftafellssýslu. Hér voru til skamms tíma tvö verzl- unarfyrirtæki: Kaupfélag Skaftfellinga, sem var stofnað 1906, og Verzlunarfélag Vestur- Skaftfellinga, sem var stofnað um 1950. Verzlunarfélagið var stofnað upp úr Halldórsvérzl- un, sem á sinum tima var þekkt verzlun i eigu bændanna hér í Suður-Vík. Þegar þeir hugðust hætta í kringum 1950, vildi hópur manna halda verzl- uninni áfram og valdi þá leið að stofna verzlunarfélag. Þróunin hefur sannað, að í svona miklu fámenni er alveg út í hött að reka tvö stór sam- vinnufyrirtæki með svipuðu sniði. Hitt fyrirtækið hefur nú hætt starfsemi sinni; það hætti að fullu á síðasta ári. Kaupfélag Skaftfellinga keypti eignir þess hér i Vik, þar á meðal nýja verzlunarhúsið, þar sem kjörbúð okkar er. Um leið og verzlunarfélagið hætti, var aukið um, tvo menn í stjórn Kaupfélags Skaftfellinga og kosnir þeir menn, sem höfðu verið i fyrirsvari fyrir hitt fél- agið. Ég tel til bóta að reyna að sameinast um eitt fyrirtæki hér á staðnum. í slíku fámenni og strjáibýli er samvinnan lífs- nauðsyn. Við megum ekki sóa kröftunum i fánýtri baráttu um nokkrar krónur. Ég er persónulega hlynntur eðlilegri samkeppni. En það verður að vera grundvöllur fyr- ir henni, og ég tel að hann sé ekki fyrir hendi hjá okkur. Hér væru sjálfsagt kaupmenn starfandi, ef einhver von væri um hagnað. Þegar harðnar á dalnum, vill fara svo að allir hætta — nema kaupfélagið. Það situr eitt eftir — sem hinn ábyrgi aðili. Kostir samvinnu- verzlunar umfram einkaverzl- un eru, að alit fjármagn sem myndast í fyrirtækinu verður kyrrt á staðnum. Því er varið til uppbyggingar í héraðinu og til að veita íbúunum atvinnu. Þegar um einstakling er að ræða, vofir sífellt yfir sú hætta, að hann selji einn góðan veð- urdag eignir sínar — og flytji fjármagnið burt. • ÓVENJU MIKLAR FRAMKVÆMDIR — Fara erfiðleikar við rekst- ur kaupfélagsins vaxandi? — Já, þvi miður. Ég var með öllu reynslulaus, þegar ég kom hingað fyrir tveimur árum. Samt fannst mér leikur einn að reka kaupfélagið árið 1974. Þá var yfir 80% veltuaukning frá árinu áður — og sagði til- koma hringvegarins þar til sín. Þótt við byggjum að sjálfsögðu ekki verzlun okkar á ferða- mönnum, er það engu að síður staðreynd, að ferðamenn verzla mikið. En síðan hafa miklir erfiðleikar steðjað að. Lausa- fjárstaða félagsins er slæm, vegna þess að við þurfum að fjármagna stórar sveitir; við höfum átt útistandandi um 50— 80 milljónir um hver mán- aðamót síðustu tvö árin. Það gefur auga leið, að ekki er til lengdar hægt að nota kaupfélögin sem banka. Mér lízt illa á, að það geti gengið öllu lengur. Ég óttast, að við neyðumst til að takmarka út- lán verulega — til þess hrein- lega að geta skrimt. Tvær pen- ingastofnanir, Samvinnubank- inn og Búnaðarbankinn, reka 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.