Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 28

Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 28
Á Óíympíuári Merkið, sem hér birtist, fimm hringir brugðnir saman, er tákn Ólympíuleikjanna. Ólympíunefnd gerði Sambandi íslenskra samvinnufélaga kost á að styrkja þátttöku íslendinga í Ólympíu- leikjunum í Kanada nú í ár. Samvinnumenn töldu sér heiður að því að styrkja íslenska íþróttamenn til þessarar farar, það hefur lengi verið einn þáttur menningarstarfsemi samvinnufélaganna að styðja íþrótta- starfsemi með fjárframlögum, þar sem því verður við komið. Innlend verslun rekin með innlendu fjármagni í hverri byggð, þar sem heimamenn njóta sjálfir arðsins af viðskiptum sínum, er hvað traustastur hornsteinn íslensks sjálfstæðis. Með hlut- deild í samvinnufélagi eflið þér innlendan atvinnurekstur og hagkvæma verslun, sem rekin er með hag neytandans fyrir augum. Minnist þess, að í frjálsu þjóðfélagi eru samtök einstakl- inga það afl, sem mestu fær áorkað. ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Auglýsingadeildin

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.