Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 8
Örstutt spjall við Jón Helgason, alþingismann og bónda í Seglbúðum Þegar vörunum var skipað upp á árabátum úr sögu Kaupfélags Skaftfellinga • AUt fram að síðustu alda- mótum var enginn verzl- unarstaður í Skaftafells- sýslu. Tveir staðir voru reyndar löggiltir I Mýr- dal, Dyrhólaey 1842 og Jökulsá 1879, en þeir voru ekki notaðir. Síðar varð Vík fyrir valinu eða 1887 — og þar hefur verið rek- in verzlun síðan. • Hinn 23. janúar 1906 var haldinn fyrsti undirbún- ingsfundur undir stofn- un kaupfélags. Annar fundur var haldinn að Deildará 1. júlí og sá þriðji í Norðurhjáleigu í Áiftaveri 14. júlí og á þeim fundi var félagið stofnað. • Það sýndi sig svo að segja strax og félagið fór að af- greiða vörur, að verðið hjá því var mun lægra en hjá kaupmönnum í Vík. Auk þess skilaði félagið arði um áramót, sem komst upp í 14% eitt af fyrstu árunum. • Kötlugosið 1918 og afleið- ingar þess ollu félaginu miklum erfiðleikum. Samt bættust því við á því ári tvær hjálparhellur, sem segja má að hafi bjargað því. Þá hóf félagið við- skipti við Samband ís- Ienzkra samvinnufélaga og mb. Skaftfellingur var keyptur. • Kaupmenn reyndu eftir mætti að klekkja á félag- inu. Þegar fjárhagsörðug- leikar steðjuðu að því, var samábyrgðin óspart not- uð sem grýla. Þessi áróð- ur bar árangur og all- margir sögðu sig úr fé- laginu og kröfðu það um stofnfjárinneign sína. Þessir sömu menn létu etja sér út í umfangs- mikil málaferli við félag- ið í sambandi við stofn- féð. En félagið vann mál- ið fyrir hæstarétti. • Samhliða þessum mála- ferlum var félagið dregið inn í pólitískar deilur á framboðsfundum til Al- þingis og olli það verulegri sundrungu innan þess. En félagið stóð af sér þessi gjörningaveður — og hef- ur dafnað vel síðan. • Þessir menn hafa verið kaupfélagsstjórar Kaup- félags Skaftfellinga frá byrjun: Bjarni Kjartans- son (1908-1927), Þórður Pálmason (1928-1932) Sig- urjón Kjartansson (1932- 1948). Oddur Sigurbergs- son (1948—1964), Guð- mundur Böðvarsson (1964- 1967), Gísli Jónsson (1967 -1974) og Matthías Gísla- son frá 1. maí 1974. Jón Helgason, alþingismaS- ur og bóndi í Seglbúðum, er stjórnarformaður Kaupfélags Skaftfellinga. Við hittum hann á Kirkjubæjarklaustri og spjölluðum við hann ör- stutta stund; brugðum okk- ur afsíðis i gömlu kaupfélags- búðinni, þar sem öllu ægir saman eins og tiðkaðist hér áður fyrr. Nýtt og glæsilegt verzlunarhús er nú í smíðum skammt frá, svo að þessi skemmtilega búð heyrir senn fortíðinni til. Við spyrjum Jón um fyrstu kynni hans af samvinnu- hreyfingunni: — Ég kynntist hreyfing- unni strax í bernsku, sagði hann. Faðir minn var lengi endurskoðandi og síðan for- maður Kaupf. Skaftfellinga. En nánari urðu þau kynni þó sennilega vegna þess, að um tuttugu ára skeið var vör- um hingað í austustu hreppa sýslunnar skipað upp við Skaftárós. Þær voru fluttar þangað austur með mb. Skaftfellingi og skipað upp á árabátum við sandströndina. Seglbúðir voru síðasti við- komustaður á aðalleiðinni að vörugeymsluhúsinu, sem kaupfélagið lét reisa á þess- um stað. Leiðir flestra, sem fóru þangað til að verzla, lágu þvi um hlaðið hjá okkur. Oft var margt um manninn, sér- staklega á vorin og sumrin, þegar aðalverzlunin fór fram. Bændur komu með ullina, lögðu hana inn og tóku út vörur í staðinn, stundum fyr- ir allt árið. Verzlun við Skaftárós og uppskipun þar lagðist niður rétt fyrir 1940, þegar fært varð fyrir vöruflutningabíla austur að Klaustri. • VÖRUFLUTNINGAR TIL ÖRÆFA í Öræfum var svipaður háttur hafður á, en Öræf- ingar gerðust fljótlega þátt- takendur í stofnun kaupfél- agsins og urðu siðan hluthaf- ar i mb. Skaftfellingi, þegar hann var keyptur góðu heilli árið 1918. Skaftfellingur hélt einnig uppi flutningum til þeirra staða, á meðan hann var í förum. Þegar hann ) hætti, áttu Öræfingar i erfið- leikum með flutninga sína um tíma. En 1950 hóf kaup- félagið að flytja vörur á bíl- í gömlu búðinni á Kirkjubæjarklaustri ægir öllu saman eins og tíðk- aðist áður fyrr. Nú er nýtt verzlunarhús í smíðum. 8

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.