Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.08.1976, Blaðsíða 11
af kindasviðum. Þau voru svo °dýr og nærandi. En amma bragðaði þau að- eins einu sinni. Hún hafði ver- 13 fyrsta flokks gyllari í Eust- acestræti, en aldrei haft af kindasviðum að segja fyrr. egar hún tók hausinn úr pott- *u® og setti hann á fat, sát- Um vi®> hún og ég, og horfð- Urn a hann, hrædd og skjálf- andi. Það var svo sem nógu s semt að setja hann í pottinn, en að sjá soðið streyma úr aug- nnum á honum og hvernig ann gnísti tönnum eins og i rosöi> t>að gerði okkur vægast sagt bumult. Amma mín hvísl- n 1 að mér, hvort kind gæti ookkurntíma orðið svona illi- eS> sér findist þetta frekar 1 iast höfði af gömlum manni S ivort ég vildi nú ekki fyrir suðs skuld fara með það og enda því út um gluggann. iléit áfram að stara á Kkur, en ég kom aftan að enni 0g þaut með hana út að i gganum °g fleygði henni út snarhasti. Amma sá ekki ann- rað vænna en að fá sér tsaby-Power-viskí, því að henni ieio svo ilia. Seinna setti hún kraftsúpu- pott yfir gasið, heilmikið af beinum og alls konar drasli eins og hún sagði sjálf, sem var svo þægilegt að hafa kraumandi yfir smáglóð allan sólarhringinn. Hún og ég, við átum hæstánægð soðna skinku, lax og ananas frá Kaliforníu og potturinn með nærandi súp- unni var alltaf á gasinu, þó svo að Jack frænka kæmi nið- ur um reykháfinn eins og sálir heilagra um miðnættið. Amma mín sagðist ekki sjá eftir pen- ingunum fyrir gasinu. Ekki, þegar hún myndi eftir augna- ráðinu, sem sviðahausinn sendi henni. Og allt, sem hún þurfti að gera við kraftsúpu- pottinn, var að hella í hann vatnsdreitli við og við og lófa- fylli af gömlu drasli, sem svína- slátrarinn sendi henni, bein- um og einhverju léttmeti. Jack frænka mín hafði líka trölla- trú á byggi, svo að við höfð- um poka af því standandi við hliðina á gasvélinni og fleygð- um slatta af því út í pottinn, þegar við heyrðum fótatak hennar í stiganum. Það kraumaði í kraftsúpupottin- um á gasinu svo árum skipti og það var ekki fyrr en amma mín var dáin, sem einhver tók eftir því. Fólk smakkaði á þessu og spýtti því jafnskjótt út úr og velti fyrir sér, hvað þetta væri. Sumir sögðu, að þetta væri deig, aðrir héldu því fram, að það væri lím. En öll- um kom saman um, að hættu- legt væri að hafa þessa kvoðu á glámbekk, þar sem smábörn kynnu að vera á ferli og því var samstundis hent út um sama gluggann og sviðahausn- um. Ungfrú McCann sagði ömmu minni að skeyta engu um Jack frænku og sofa eins lengi og hana langaði til á morgnana. Þær komu því svo fyrir, að ungfrú McCann hefði auga með stigaganginum. Hún átti svo að kalla á Jack frænku inn til sín andartak og gefa merki með því að lemja í arin- ristina, þykjast vera að skara i eldinn og tala síðan svolítið við Jack frænku um kjóla og dragtir, hatta og föt. Það var einn þennan morgun, þegar ungfrú McCann var að slá rifrildi á frest og gefa ömmu ráðrúm til að þjóta fram úr rúminu og í fötin og strjúka yfir andlitið með handklæði, að Jack frænka og ungfrú McCann fóru að tala um ferm- ingarfötin mín. Þegar ég gekk i fyrsta sinn til altaris, gróf amma djúpt undir rúmdýnuna sína og við Jack frænka vorum send í fín- ar verzlanir og ég kom til baka svo uppdubbaður, að augun ætluðu út úr höfðinu á þeim, sem sáu. En nú sagði McCann að það hefði orðið svo litil breyting á fatatízkunni sökum hins góða vetrar, að hún skyldi með mestu ánægju sauma á mig föt, ef Jack frænka vildi útvega efnið. Ég var gráti nær af ótta við, hvað þessar gömlu konur kynnu að troða mér í, en ég varð að láta sem ég væri hæstánægður, ungfrú McCann var svo ákveðin í þessu. Hún spurði Jack frænku, hvort hún myndi eftir ferm- ingarfötum föður mins. Hann mundi eftir þeim. Hann sagði, að þeim mundi hann aldrei gleyma. Þær sendu hann af stað í plómulitum flauelsföt- um með knipplingakraga. Mér rann kalt vatn á milli skinns og hörunds, þegar hann sagði mér þetta. Efnið, sem þær fengu handa 11

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.