Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 28
Á Óíympíuári
Merkið, sem hér birtist, fimm hringir brugðnir saman, er tákn
Ólympíuleikjanna. Ólympíunefnd gerði Sambandi íslenskra
samvinnufélaga kost á að styrkja þátttöku íslendinga í Ólympíu-
leikjunum í Kanada nú í ár.
Samvinnumenn töldu sér heiður að því að styrkja íslenska
íþróttamenn til þessarar farar, það hefur lengi verið einn
þáttur menningarstarfsemi samvinnufélaganna að styðja íþrótta-
starfsemi með fjárframlögum, þar sem því verður við komið.
Innlend verslun rekin með innlendu fjármagni í hverri byggð,
þar sem heimamenn njóta sjálfir arðsins af viðskiptum sínum, er
hvað traustastur hornsteinn íslensks sjálfstæðis. Með hlut-
deild í samvinnufélagi eflið þér innlendan atvinnurekstur og
hagkvæma verslun, sem rekin er með hag neytandans fyrir
augum. Minnist þess, að í frjálsu þjóðfélagi eru samtök einstakl-
inga það afl, sem mestu fær áorkað.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Auglýsingadeildin