Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 23
|Kkaupfélag skaftfellinga ^(K býður yður velkomin til VESTUR-SKAFTAFELLSSYSLU og veitír m. a. eftirfarandi þjónustu: 1 VlK I MfRDAL: Almenn sölubúð Hótel — opið allt árið Bifreiðaverkstæði Smurstöð Hj ólbarðaviðgerði r SHELL, BP og ESSO- þjónusta og kvöldsala. VIKURSKÁU Ný og glæsileg ferðcimannaverzlun við hring- veginn. Allar vörur fyrir ferðamanninn. Á Kirkjubæjarklaustri: Almenn sölubúð. ESSO, SHELL og BP- þjónusta. KAUPFÉLAG SKAFTFELUNGA VÍK og KIRKJUBÆJARKLAUSTRl mannanna í Winnipeg kom ekki. Nokkrir viðstaddra, sem vissu, að Björn kunni að tefla, en sögðu á eftir, að þeir hefðu ekki haft hugboð um, að hann væri verulega slyngur, bókstaf- lega drógu hann að auða borð- inu, og síðan hófst skákin með venjulegum hætti. Eftir nokkra leiki virtist Marshall forviða. Hann kvartaði um það síðar, nð menn hefðu átt að aðvara hann, og sagði, að þessi skák- maður hefði átt að vera á fyrsta borði. Marshall tapaði þessari einu skák i fjölteflinu, en lét i ljós ósk um að tefla nðra skák við Björn. Hann neitaði hins vegar að tefla aftur og tefldi aldrei framar, að minnsta kosti ekki í Winni- Peg. Skák hans við Marshall virðist vera hin eina, sem hann tefldi vestanhafs, er varðveitt hefur verið. Hún birtist í Lasker‘s Chess Magazine eftir nppskrift í Winnipeg. Björn Pálsson varð ár um kyrrt í Kanada, hætti múr- steina- og kalkburðinum, hætti námi í verkfræði og var síðar hæstaréttarlögmaður á íslandi. Hann lifði það ekki að sjá ætt S1na vinna nýja sigra á skák- sviðinu fyrir tilstilli frænda hans, sem hefur undanfarin t>riú ár verið viðurkenndur stórmeistari og teflt fyrir ís- iand á ýmsum alþjóðamótum.“ W. Napier, sem Vilhjálmur Stefánsson minnist á, var einn aí alþjóðaskákmeisturum heims og hafði teflt á alþjóða- ^nótum, þar á meðal í Buffalo, har sem hann fékk 2. verðlaun, en Pillsbury varð efstur. Þeg- ar þetta er haft í huga, verð- Ur það að teljast afrek hjá Ungum stúdent að máta slíkan mann og ekki nema eðlilegt, að ^ilhjálmur Stefánsson hrifist af því. Það er hins vegar und- arlegt, að hér á íslandi virðist enginn vita af þessu. í bækl- lngnum „Taflfélag Reykjavík- ur 50 ára“, sem Taflfélagið og ísafoldarprentsmiðja gáfu út 1950, er grein eftir Pétur Zóph- oníasson, bls. 20—27. í þessari grein segir hann, að nefndur Napier hafi dvalið hér 1902— 1903. Þetta er ósamrýmanlegt frásögn Vilhjálms Stefánsson- ar. Það er sem sagt söguleg staðreynd, að Vilhjálmur Stef- ánsson kom hingað til Reykja- víkur sumarið 1904 og þá kveð- ur hann Napier hafa verið þar í heimsókn og hann verður sjónarvottur að skák Napier og Björns. Ég tel, að það hljóti að vera skekkja í áðurnefndri grein Péturs Zóponíassonar, því að vart hefur Napier komið hingað aftur sumarið 1904, eft- ir að hafa dvalið hér 1902— 1903, enda virðist þá ekki síð- ur ástæða til að nefna síðari heimsóknina en hina fyrri. Það væri eðlilegt, að Taflfélag Reykjavíkur léti rannsaka heimildir þær, sem greinin byggir á varðandi þetta. Þá er frásögn Vilhjálms af sjóferð þeirra félaga frá Glasgow til Montreal. Tilviljun hagar því svo, að tveir skák- meistarar eru með skipinu, annar ónefndur frá Ástralíu, en hinn skákmeistari Kanada, James Mavor prófessor við há- skólann í Toronto. Þessir tafl- meistarar höfðu setið að tafli og virðast ekki hafa mætt nein- um mótstöðumanni á leiðinni, en Björn kemur til skjalanna, er hann rís úr rekkju eftir að hafa legið rúmfastur þjáður af sjóveiki. Þá ber svo við, að hann teflir við þá nokkrar skákir og vinnur þær allar og jafnvel tvær blindskákir, sbr. lýsingu Vilhjálms. Þetta virð- ist mér í senn furðulegt og einstætt afrek. Það kemur og í ljós, að sá merki maður próf- essor Mavor hefur hrifist mjög af taflmennsku Björns. Sést það bezt á því, að hann hafði hugsað sér að afla Birni fjár og frama með því að efna til sýniskáka fyrir hann um Kanada þvert og endilangt. Þá er næst að huga að lýs- ingu Vilhjálms á móttökunum, sem Björn fékk hjá stúdentun- um við Harvardháskóla, er vestur kom. Eftir lýsingu Vil- hjálms hafa þær verið mjög kuldalegar, ef ekki óvinsam- legar. Þeir segjast ekki þurfa á neinum „glamrara" (ringer) að halda frá fslandi til þess að tryggja sig fyrir skakkaföll- um í væntanlegri keppni. Þeg- ar haft er í huga, að Björn var beðinn um að koma og boðið Seljum á hagstæðu verði allar nauðsynja- vörur, búsáhöld, fatnað, vefnaðarvöru, TREYSTUM SAMVINNUSTARF snyrtivörur, gjafavörur. Einnig timbur og ýmsar aðrar bygginga- vörur. Tökum landbúnaðarvörur í umboðssölu. Kaupfélag Kaupfélag Grundfirðinga Norður-Þingeyinga Grundarfirði Kópaskeri

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.