Samvinnan - 01.04.1981, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.04.1981, Blaðsíða 9
FORIfSTUGKtEII Lausnin á lífi hins smáa Það er sannarlega gleðilegt á nýbyrjuðu og lang- þráðu vori, hve mikil og jákvæð athygli beinist að sam- vinnuhreyfingunni um þessar mundir. Því veldur meðal annars sú umræða um stefnuskrá, sem fram fer um land allt; á deildafundum kaupfélaganna, í sérstökum vinnuhópum innan starfsmannafélaganna — og víðar. Það ervorhugur í íslenzkum samvinnumönnum, sem mynda öflugustu fjöldahreyfingu þjóðarinnar. Viðbrögðin við þessari umræðu hafa hvarvetna verið góð. Jón Sigurðsson ritstjóri Tímans skrifar til dæmis í þættinum Menn og málefni 29. marz síðastliðinn: ,,Með því að efnatil almennra umræðna um land allt á félagsfundum um nýja almenna stefnuskrá fyrir heild- arsamtök samvinnumanna, er í sjálfu sér brotið blað í félagsmálum á íslandi. Þetta er vafalaust víðtækasta tilraun í lýðræðislegum vinnubrögðum sem gerð hefur verið á íslandi. Og þessi víðtæka tilraun og frumkvæði er samvinnu- mönnum til sæmdar. Með þessu varða þeir enn einu sinni veginn í félagsmálum á íslandi." Einnig hafa margir samvinnumenn stungið niður penna og ritað greinar um stefnuskrána í blöð og tíma- rit: Hjörtur E. Þórarinsson, Magnús Finnbogason, Jón Kristjánsson, Eysteinn Sigurðsson, Reynir Ingibjarts- son, Haukur Ingibergsson — svo að nokkur nöfn séu nefnd. Enginn má þó skilja þessa umræðu á þann hátt, að samvinnustarfið hafi ekki beinzt að ákveðnu marki fyrr en nú. Þvert á móti. Tilgangurinn hefur að sjálf- sögðu alltaf verið augljós og fyrir löngu ákveðinn, þótt hann hafi ekki verið festur á blað. Hins vegar hafa oft heyrzt gagnrýnisraddir í þá veru, að almennir félags- menn fái ekki nægileg tækifæri til að hafa bein áhrif á gang mála. Nú gefst slíkt tækifæri. Nú munu fleiri menn móta sameiginlega stefnu en áður hefur þekkzt hér á landi. Einnig gefst tækifæri til að beina athygli að því í hverju samvinnuhugsjónin er fólgin. Eldri kynslóðin þekkir þessa fallegu hugsjón af eigin raun, en nýjar kynslóðir vaxa úr grasi, og þær þarf að leiða í allan sannleika: Samvinnustefnan á rætur sínar að rekja til félags- þróunar nítjándu aldar; til frelsishreyfinga í stjórnar- fari og breyttrar hagfræði, þar sem meðal annars var lögð áherzla á, að vinnan væri móðir auðæfanna. Með samtakamætti tókst að auka vinnuafköst — og þar með auðinn. „Margar hendur vinna létt verk,“ segir máltækið — og það breyttist í lífsspeki, sem ekki varð hrundið úr gildi. Það voru 28 fátækir menn í verksmiðjubænum Roch- dale í Englandi, sem hófu félagsverzlun hinn 21. des- ember árið 1844. Þeir voru allir vefarar í verksmiðju og ófu gull handa eigandanum. Nú vildu þeir komast að raun um, hvort þeir gætu ekki ofið sjálfum sér gull með því að hljóta sjálfir arðinn af viðskiptum sínum í félagslífinu. Þeir fóru hægt og yfirlætislaust af stað. Þeir höfðu sama verð á vörum í búð sinni og aðrir kaupmenn, en arðinum skiptu þeir aftur á móti í réttu hlutfalli við verzlun hvers og eins. Þar með var ísinn brotinn fyrir samvinnuverzlun. Benedikt Gíslason frá Hofteigi gaf út bók um Kaup- félag Héraðsbúa og fimmtíu ára starfssögu þess árið 1959. Þar er sem vænta má vel að orði komist um kjarna málsins; um undirstöðuna, sem allt okkar starf byggist á: „Það sýndi sig, að menn gátu með samtökum valdið því, sem engum einum var fært að gera. Margir smáir gátu orðið einn stór. Það var lífsspekileg uppgötvun; ef til vill lausnin á lífi hins smáa. Svona var hann að hitta í sinni stærð, engan veginn öðruvísi. Heimurinn horfir síðan á þetta lífsspekilega dæmi, og máttur hins smáa er hvarvetna tekinn í stærðir, sem ekki stenzt fyrir og breytir öldum og örlögum manna ogþjóða." G.Gr. 7

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.