Samvinnan - 01.04.1981, Page 13

Samvinnan - 01.04.1981, Page 13
„Öhö, þú ferð utan, Björn minn, og leitar þér frægðar og frama,“ sagði hann við mig. „Þú dvelst i Englandi. Danmörku, Noregi og Sviþjóð. Ég hef sáð til þess, að þú getir verið við nám og störf hjá samvinnumönnum i öll- um þessum löndum. Þetta er allt klappað og klárt.“ Þetta voru sannarlega gleðifréttir. Ég fer austur til að kveðja foreldra mína, léttur i spori og hugsa með til- hlökkun til hinnar stórkostlegu ferð- ar, sem átti að taka þrjú ár. Þegar heim kemur skyggir það ör- litið á gleði mína, að pabbi er ekki eins hrifinn af utanförinni og ég. Ég finn, að honum er hálf þungt í skapi, þótt hann segi ekki neitt. Þá gerist það, að mér er boðið í af- drifaríkt kaffiboð heim til Páls Magn- ússonar, oddvita á Eskifirði. Hann var umboðsmaður Disconto og Revisions- bankans i Kaupmannahöfn og átti að selja fyrir þeirra hönd eignir Samein- uðu islensku verlananna á Fáskrúðs- firði, en það fyrirtæki hafði farið á hausinn nokkrum árum fyrr. „Það er upplagt fyrir nýbakaðan samvinnuskólastrák að stofna kaupfé- lag og kaupa þessar eignir,“ segir Páll. „Annars ná kaupmennirnir þeim.“ Þegar ég segi pabba frá þessu, lyftist á honum brúnin, og hann hvetur mig eindregið til að gangast fyrir stofnun kaupfélags. Nú var úr vöndu að ráða fyrir mig. Ég mátti ekki til þess hugsa að hætta við utanförina, en ég vildi ekki heldur styggja pabba. Eftir vandlega umhugsun ákveð ég að stofna kaup- félagið fyrst, en halda siðan utan að því verki loknu. Ég ætlaði sem sagt að reyna að fara bil beggja. • Yfirreið í sumarblíðu Þetta var í júlímánuði árið 1933. Það er hásumar og náttúran skartar sínu fegursta. Ég fer einn ríðandi út í Fá- skrúðsfjarðarhrepp til að leita liðsinn- is við stofnun kaupfélags. Ég fæ heldur daufar undirtektir, þar til ég kem að Vattarnesi, en þar bjó Þórarinn Vikingur. Hann var Þingey- ingur og tekur mér forkunnarvel. Einnig taka mér vel Kolmúlabændur, Jónas Benediktsson og Daníel Sigurðs- son. Þessa þrjá menn fæ ég til liðs við mig fyrir norðan fjall sem kallað var. Ég hef orð á því við Þórarin Víking, að mér þyki ferðin erfið, sérstaklega af þvi að ég sé ókunnugur i sveitinni, og spyr hann hvort hann vilji nú ekki Björn Stefánsson og kona hans Þórunn Sveinsdóttir á lieimili þeirra að Kvisthaga 9. — (Ljósm.: Kristján Pétur Guðnason). vera svo vænn og ríða með mér. Jú, það var guðvelkomið. Hann beislar hesta sína og við ríðum af stað og för- um bæ frá bæ. Sveitin er fámenn, skoðanir bænda skiptar og margir þeirra gallharðir íhaldsmenn. Okkur er að vísu alls staðar vel tekið, en ár- angurinn verður harla litill. Við höldum samt ferðinni áfram, riðum inn fyrir Búðakauptún og för- um heim á hvern einasta bæ. Og nú fáum við betri undirtektir, til dæmis hjá fjórum bræðrum, Sigurbirni, Ei- ríki, Höskuldi og Magnúsi Stefánsson- um. Þeir voru allir samvinnumenn, en höfðu ekki fyrr fengið tækifæri t.il að sýna það í verki. Þegar yfirreiðinni er lokið, höldum við til Búðakauptúns, og okkur telst til, að rúmlega tuttugu manns hafi heitið okkur stuðningi. Ég afla mér nauðsynlegra gagna, svo sem fyrirmyndar að samþykkt- um fyrir væntanlegt kaupfélag hjá Þorsteini Jónssyni kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði og boða síðan til stofn- fundar hinn 6. ágúst árið 1933. 11

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.