Samvinnan - 01.04.1981, Side 35
I’ ALLMÖRG ÁR HEFUR
Samband ísl. samvinnu-
félaga stuðlað að öfl-
ugu íþróttastarfi í landinu
og veitt til þess talsverðu fé.
Á sl. ári var fyrirkomulagi
styrkveitinga Sambandsins
til íþróttastarfsins breytt
þannig að í stað margra
dreifðra smástyrkja var tek-
in upp ein stærri styrkveit-
ing. og var Körfuknattleiks-
sambandi íslands veittur
fjárstyrkur að upphæð 5,5
milj. g. kr., til starfrækslu
landsliðs íslands í körfu-
knattleik. Jafnframt var
gert ráð fyrir að þessu fyr-
irkomulagi yrði fylgt áfram,
þætti það gefa góða raun.
Að fenginni reynslu sl. árs
hefur verið ákveðið að taka
upp árlega veitingu iþrótta-
styrks Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, og hefur Sam-
bandsstjórn sett um það
sérstakar reglur. Þar er m.a.
að finna eftirfarandi á-
kvæði.
• Tilgangur með veitingu
íþróttastyrks Sambandsins
er að efla íþróttastarfsemi
i landinu sem einn af menn-
ingarþáttum þjóðfélagsins,
og auka þekkingu íslensks
íþróttafólks á samvinnumál-
um og samvinnustarfi.
• Sérsambönd og lands-
sambönd er starfa að í-
þróttamálum geta hlotið
styrkinn.
• Árlega verður auglýst
eftir umsóknum um íþrótta-
styrk Sambandsins og þurfa
umsóknir að hafa borist
Sambandinu fyrir 17. ágúst.
í september ár hvert verður
tilkynnt um hvaða aðili
hlýtur íþróttastyrk Sam-
bandsins á næsta ári, svo og
um styrkfjárhæð.
Eins og áður segir var
Körfuknattleikssambandi
íslands veittur styrkur á sl.
ári. Sá styrkur var ekki
veittur fyrr en komið var
fram á mitt árið og varð
því ekki um heils árs sam-
starf að ræða eins og eðli-
legt þykir að sé. Þvi hefur
verið ákveðið að iþrótta-
styrk Sambandsins á þessu
ári hljóti Körfuknattleiks-
sambandið einnig, til rekst-
urs landsliðinu í körfu-
knattleik. Styrkfjárhæð á
þessu ári er kr. 90.000,00
Landsliðið náði mjög góð-
um árangri á sl. ári, en þess
bíða mörg erfið verkefni á
þessu ári og ber þar hæst
Evrópukeppnina i körfu-
knattleik.
Sambandið þakkar körfu-
knattleiksfólki gott sam-
starf á sl. ári og væntir þess
að þessi fjárstuðningur örvi
áhuga fólks á heilbrigðum
iþróttum og verði öllum við-
komandi til velfarnaðar. 4
Körfuknattleiks-
sambandiö
fær aftur styrk
Styrkveitig Sambandsins til íþróttastarfs í ár var tit-
kynnt á blaðamannafundi 12. mars síðastliðinn.
Erlendur Einarsson afliendir Stefáni Ingólfssyni, for-
manni Körfuknattleikssambands íslands, styrk að
upphæð kr. 90.000,00. (Myndir: Kristján P. Guðnason).
33