Neisti - 20.08.1984, Side 16

Neisti - 20.08.1984, Side 16
Nicaragua SÖGULEGIR ÁVINNINGAR BYLTINGARINNAR Eftír Erling Hansson Ríkisstjórnin (júntan), sem tók við völdum 19. júlí 1979 var skipuð 5 manns samkvæmt samkomulagi sem gert var nokkrum vikum áður. í henni sitja auð- vitað ekki allir ráðherrar landsins heldur var hún sett á fót til að skipuleggja end- uruppbyggingu landsins. Tveir fulltrúar borgarastéttarinnar voru í ríkisstjóm- inni, þau Violetta Chamarro ekkja rit- stjóra La Prensa, sem myrtur var af Somozaklíkunni í janúar 1978 og iðnjöf- urinn Alfonso Robelo. Aðrir í stjóm- inni vom 39 ára gamall rithöfundur og doktor í lögum, Sergio Ramivez, sem var fulltrúi hóps „hinna tólf“ og Moises Hassan 38 ára doktor í stærðfræði af palestínskum ættum en hann var fulltrúi MPV. Loks var oddviti stjómarinnar Daniel Ortega einn af 9 helstu forystu- mönnum FSNL. Þessi stjóm hefur farið með fram- kvæmdavald í landinu síðan 19. júh' 1979 og löggjafarvald ásamt ríkisráðinu eftir að það fór að koma saman í maí 1980. Hún byrjaði strax að framkvæma stefnuskrá þá sem sandinistar höfðu lagt til grundvallar bandalagi stjómarand- stöðuaflanna og samþykkt var af þeim, sem aðild áttu að stjórninni. Á fyrstu dögunum gaf hún út tilskipanir sem fólu í sér þjóðnýtingu á bankakerfinu, utan- ríkisversluninni, námum, og öllum eign- um Somozafjölskyldunnar. Við fyrstu sýn virtist þó sem Sandinistamir hefðu ekki mikil ítök í æðstu stjóm landsins. Þeir höfðu aðeins 1 af þeim 5 sem skip- uðu júntuna. Af 18 ráðhermm vom upphaflega aðeins 3 sandinistar og sam- kvæmt samkomulagi frá því í júní 1979 áttu þeir að vera í minnihluta í ríkisráð- inu. í öllum þeim átökum sem urðu inn- an júntunnar fýrstu 9 mánuðina eftir valdatökuna tóku þeir Hassan og Ramires afstöðu með FSLN þannig að sandinistar höfðu ævinlega meirihluta. Borgarastéttin missti pólitísk völd sín í Nicaragua í byltingunni og reyndi fýrstu mánuðina að ná þeim aftur með því að efna til st jórnarkreppu út af hver ju mál- inu á fætur öðra. Þær tilraunir enduðu með því að Robelo og Chamarro sögðu sig úr júntunni í apríl 1980 þegar þeim varð Ijóst að ætlunin var að ríkisráðið kæmi saman í maí en þar vora byltingar- öflin í meirihluta. Þau verkefni sem við blöstu eftir valdatökuna vora risavaxin. Landið var illa farið eftir borgarastyrjöld þar sem milli 40 og 50 þúsund manns höfðu látið lífið. Gífurleg eyðilegging hafði orðið því Somoza lét gera loftárásir á margar borgir. Alls er tahð að eignatjón hafi numið sem svarar 800 milljónum doll- ara. Iðnaðarframleiðslan var aðeins 65% af því sem hún hafði verið og Iand- búnaðarframleiðslan 75%. Fyrir utan hryðjuverkin gegn þjóðinni hafði Somoza verið iðinn við að safna skuld- um. 1979 námu skuldir landsins 1,6 milljarði dollara sem var með því hæsta í þessum heimshluta. Atvinnuleysi var 36% árið 1979. Fyrstu átján mánuðina einbeitti bylt- ingarstjómin sér að því að uppfylla brýnustu þarfir landsmanna - sjá til þess m ■■ TJON AF VOLDUM GAGNBYLTINGARINNAR Tjón af völdum gagnbyltingarínnar frá mars 1981 -okt 1983 Mannskaðar 1086 milljónir króna. Tjón á framleiðslutækjum 1116 milljónir króna. Seinkun á framkvæmdum og áætlunum 1146 milljónir króna. Tekjumissir 615 milljónir króna. Lán sem stöðvuð hafa verið 6900 milljónir króna. Niðurskurður á aðstoð sem Bandaríkin höfðu lofað 1080 milljónir króna. Minnkuð sykurkaup U.S.A. 420 milljónir króna. Samtals 12363 milljónir króna. 16

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.