Neisti - 20.08.1984, Qupperneq 28
36. þing Fylkingar byltingarsinnaðra kommúnista og
1. þing Baráttusamtaka sósíalista
VERKALÝÐSANDSTAÐA GEGN
ÁRÁSUM AUÐVALDSINS
AD VAKNA
LANDNÁM SAMTAKANNAIATVINNULÍFINU STAÐFEST,
NAFNI ÞEIRRA RREYTT
36. þing Fylkingar byltingar-
sinnaðra kommúnista var sett
30 júní s.l. Fyrir þinginu lá til-
laga um að breyta nafni sam-
takanna í Baráttusamtök sós-
íalista, og var hún einróma sam-
þykkt. Þingið varð því fyrsta
þing Baráttusamtaka sósíal-
ista.
A dagskrá þingsins var um-
ræða og samþykkt nýrra ein-
faldaðra laga fyrir Baráttusam-
tök sósíalista, umræða um
klofning Fylkingarinnar, texti
um stjórnmálaástandið á Is-
landi eftir myndun ríkisstjóm-
ar Steingríms Hermannssonar,
starfið innan Alþýðubanda-
lagsins, umræða um stofnskrá
fyrir Baráttusamtök sósíalista
og kosning miðstjómar. Einn-
ig tók þingið á móti kveðjum
frá samherjum okkar erlendis.
Astæða þess að nú þótti rétt
að breyta nafni samtakanna er
einkum sú, að samtökin hafa að
undanfömu verið að breyta
beiningum sínum og áhersl-
um. Samtökin hafa verið að
breytast frá því að vera samtök
sem fyrst og fremst starfa utan
verkalýðssamtakanna með út-
breiðslu sem beinist til hennar,
í samtök sem grípa með bein-
um hætti inn í verkalýðssam-
tökin. Samtökin eru ekki þau
sömu og þau vom fyrir þremur
árum og fráleitt að þau sömu
og fyrir tíu árum.
Gamla nafn samtakanna,
Fylking byltingarsinnaðra
kommúnista, sem oftast var
stytt einfaldlega í Fylkingin,
vísar til hefðar og sögulegrar
samfellu frá Æskulýðsfylking-
unni gömlu, sem voru æsku-
lýðssamtök Sósíalistaflokksins
— Sameiningarflokks alþýðu.
Við afneitum auðvitað ekki
þessari forsögu samtakanna.
Það er hins vegar villandi og
rangt að líta á þessa sögu sem
samfellu. Mikilvægt rof mynd-
aðist í sögu samtakanna á ámn-
um 1975/6, þegar Fylkingin
ákvað að tengjast Fjórða Al-
þjóðasambandinu, og annað
rof hefur verið að myndast á
undanförnum 18 mánuðum
eða svo, með nýjum beiningum
samtakanna. Baráttusamtök
sósíalista í dag eru gjörólík
Æskulýðsfylkingunni og Fylk-
ingunni á árunum 1974— 1982/
83. Þessa staðreynd viljum við
undirstrika með nafnbreyt-
ingu.
Nánar verður skýrt frá nið-
urstöðum þingsins í næsta
Neista, varðandi stjómmála-
ályktun, starfið innan Alþýðu-
bandalagsins o.fl. Rétt er þó að
geta þess hér, að um þessa liði
fóru fram mjög gagnlegar um-
ræður, og þingið var sammála
um það, að möguleikar sósíal-
ískrar baráttustefnu væm nú
meiri en oft áður. Þingið var
sammála um að í viðbrögðum
innan verkalýðssamtakanna
við síðustu kjarasamningum
hefðum við séð fýrstu alvarlegu
vísbendingamar um vakningu
íslensks verkafólks. Þingið var
einnig sammála um að vart
hefði orðið nýs ungs forystu-
kjarna í andstöðunni við þessa
samninga, sem framtíðar ný-
sköpun verkalýðssamtakanna
verður m.a. að byggja á. Innan
verkalýðssamtakanna og innan
Alþýðubandalagsins á sér nú
stað endurmat á markmiðum
og leiðum verkalýðsbaráttunn-
ar. Það var samdóma álit þings-
ins að Baráttusamtök sósíalista
og meðlimir þeirra ættu mikið
erindi með sína stefnu í þessu
ástandi. Það er einnig lykil-
atriði ef ná á að breiða út þessa
stefnu að fleiri gangi til liðs við
samtökin af þeim sem vilja
vinna að framgangi höfuðþátta
í stefnu þeirra.
Þingið kaus sjö manna mið-
stjórn fyrir Baráttusamtök sós-
íalista. Eftirtaldir eiga sæti í
miðstjórninni:
Arni Sverrisson
Gylfi Páll Hersir
Kormákur Högnason
Már Guðmundsson
Páll Halldórsson
Pétur Tyrfingsson
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir
A fyrsta fundi miðstjómar
var Pétur Tyrfingsson kosinn
formaður hennar.
Már Guðmundsson.