Stéttabaráttan - 13.12.1974, Page 5
STÉTTABARÁTTAN 11/12 tbl. 13.12.1974
Höfuóhreyfingin í heiminum i dag er bylting
LÖND VILJA SJÁLFSTÆDI
ÞJÓDIR VILJA FRELSI
VILL BYLTINGU!
Aukln andsta5a gegn Thieu-klikuiim
Afturhalds- og kúgunaraðgerðir Thleu-
klíkunnar hafa vakið andúð og andstöðu
allrar alþýðunnar. lyrstu 3 fjúrðunga
þessa árs lagði hún f Saigon, svo ekki
séu fleiri dæmi nefnd, niður vinnu,
lokaði verslunum sínum og hélt mót-
mælafundi oftar en 150 sinnum. Og
sfðan f september hefur andstöðu-
hreyfingin aukist gífurlega að umfangi.
20. október s.l. hélthúnt.d. skipu-
lagðar métmælagöngur um allt yfir-
ráðasvæði Saigon-klíkunnar, þar sem
tugir þúsunda tóku þátt.
Andstöðuhreyfingin hefur sýnt, að
Tliieu-klíkan hefur algerlega misst
fótanna meðal allra þjéðfélagshópa
landsins. Undir kjörorðinu "Friður,
rís og pólátískt frelsi" ganga nú verka-
menn, stúdentar, blaðamenn, kaþó-
likkar, búddistar og jafnvel "þjóð-
þings"-menn og stjórnarembættismenn
hlið við hlið gegn Thieu-klíkunni. Og
fjöldi liðhlaupa úr hernum er f viku
hverri milli 4 og 5 þúsund manns.
Kreppa Saigon-stjórnarimiar hefur
valdið því að Bandaríkjastjórn er al-
varlega farin að hugsa um að veðja
á annan hest í Suður-Víetnam en
Thieu og reyna þannig að stinga upp
í alþýðuhreyfinguna. En þeir Ford
og Kissinger geta aldrei þolað
stjórn í suðurhluta Víetnams, sem
stendur fyrir "friði, rísi og pólitísku
frelsi." Að auki hefur alþýðan
reynslu að slíkri "veðmálastarfsemi"
bandarísku heimsvaldasinnanna, sbr.
þegar Diem "keisara" var steypt af
stóli. Henni er Ijóst, að "jafnlengi
og Thieu heldur völdum, rfkir strfð,
kúgun, ógnarstjórn, arðrán, spill-
ing, fjöldamorð, eymd, fjandskapur
og sundrung. I>ví er það, að hver og
einn hefur hina sömu brýnu kröfu:
Thieu verður að fara frá, og það
verður að mynda í Saigon ríkisstjðrn
sem stendur fyrir friði, þjóðlegri
samheldni og einingu, og stendur við
Parísarsamkomulagið um Víetnam
til hins ítrasta." (Úr ályktun BBS
frá 8/10 s.l.)
Tekið saman úr ýmsum áttum
-/óhs
Chile Baráttan gegn
harðstjórninni eykst
Nú eru liðnir um 14 mánuðir frá blóð-
ugu valdaráni herforingjalegátanna í
Chile undir forystu afturhaldssvíns-
ins Pínóchets.
A þessu rúma ári hafa fasistadátarnir
troðið fótum hvers konar lýðræðisleg
réttindi chileönsku þjóðarinnar; sam-
takafrclsi, tjáningafrelsi, skoðana-
frelsi o. s. frv. o.s.frv. og jafnvel
svipt þúsundum manna réttinum til að
lifa - bæði með því að standa að hin-
um hryllilegustu fjöldamorðum og
með því að taka lífsbjörgina af megin-
þorra alþýðunnar.
A þessum tíma hefur chileönsk alþýða
fengið að kynnast af eigin reynd, bæði
opinni þjóðakúgun nýlendustefnunnar í
líki heimsvaldastefnu Bandaríkjanna
og nöktu, blóðþyrstu, fasísku alræði,
sem hún beitir fyrir sig f líki ofbeld-
isaðgerða herforingjaleppanna í Santi-
agó.
Þótt erfitt hafi reynst að henda reið-
ur á fregnum frá Chile undanfarið ár,
er ljóst, að ekki minna en 30.000
manns hafa verið myrtir með köldu
blóði. Þúsundir pólitískra flótta-
manna, sem höfðu fundið sér hæli f
Chile f forsetatíð Allendes, voru þeg-
ar í upphafi blóðugs ferils herforingja-
klfkunnar sendir til viðkomandi
heimalanda, þar sem þeirra beið ann-
aðhvort dauðinn eða pyntingarklefinn
- oftast hvorutveggja. Fjöldahand-
tökur hafa leitt til þess að yfir 10. 000
fjölskyldur hafa leyst upp.
Fyrir utan leigumorð fasistaklikunnar
í þágu bandarískra auðhringa var eitt
af fyrstu verkum hennar að skila þeim
aftur fyrirtaakjum og námum, sem
ríkisstjðrn Allendes hafði tekið eign-
arnámi. Og saga undanfarins árs
hefur verið sagan um þýlyndi fasista-
böðlanna við herra sína í Wall Street,
sagan um það hvernig þeir hafa klaf-
bundið chileönsku alþýðuna meðan
heimsvaldasinnarnir hafa mergsogið
aukagróða sinn úr henni.
Eftir 14 mánaða valdatíma herfor-
ingjaklíkunnar er svo komið, að allur
efnahagur af innlendum toga spunninn
er í rústum.
Smáfyrirtæki hafa orðið gjaldþrota
unnvörpum sökum lágra launa og
stjarnfræðilegra verða á öllum vörum.
Klíkan hefur eggjað kaupmenn til að
lækka verð á vörum sínum, sem flest-
ir geta ekki, ef þeir eiga að fram-
fleyta sér. 60% chileanskrar alþýðu
hefur lægri tekjur en sem svarar
4.100 kr. á mánuði. Hins vegar er
verð á öllum helstu neysluvörum við
heimsmeðaltal eða hærra. Þjóðar-
böðlarnir hafa afnumið allt verðlags-
eftii;lit, sem stjórn Alþýðufylkingar
Allendés kom á, til þess að koma
efnahagslffinu "í samræmi" við hetms-
markaðinn. Verðbólguvöxturinn,
sem AUende bældi að einhverju leyti
niður, er nú hraðari en nokkru sinni
fyrr. Gengi chileanska gjaldmiðils-
ins, eskúdósins, hefur hvað eftir
annað verið fellt - og þannig hefur
verð á innfluttum vörum - einkum
matvæla - rokið upp. A þessum mán-
uðum hefur verðbólgan orðið meiri
en 1000%. Frá september 1973 -
mánuði valdaránsins - fram í júní "74
hafa helstu neysluvörur chileanskrar
alþýðu haskkað svo sem hér er gefið
dæmi um: Brauð frá 11 upp í 240
eskúdó.mjólk frá 7 upp í 120 eskúdó.
Yfir 20% þjóðarinnar dregur fram líf-
ið án nokkurrar atvinnu og hér er auð-
vitað aðeins átt við vinnufæra menn.
Þannig hefur efnahagsástandið - eink-
um upplausnin meðal smáborgara-
stéttarinnar, sem upphaflega var sjá
fjöldagrundvöllur, sem herforingja-
klíkan byggði á - leitt til þess, að
hún hefur fengið alla þjóðina upp á
móti sér. Verkalýðurinn er smám
saman að jafna sig eftir blóðtökuna
á fyrstu mánuðum fasistaalræðisins
FRAMHALD A BLS. 6.
Þessi sögulega staðreynd fær f dag
staðfestingu um allan heim. Heims-
ástandið er byltingaröflunum í hag,
framtíðin er björt. Þannig einkenn-
ist heimsástandið af ósigrum og und-
anhaldi heimsvaldastefnunnar f
þriðja heiminum og vaxandi frelsis-
öldu meðal hinna kúguðu þjóða og
þjóðabrota, bæði á vígvellinum og
á vettvangi alþjóðastjórnmála. Til
að sýna hvernig þetta kemur fram,
tileinkar Stéttabaráttan næstu fjórar
sfður baráttu alþýðu þriðja heimsins.
SVietnam
Baráttan heldur áf ram
Brátt eru liðin tvö ár frá þvf Parísar-
samkomulagið svonefnda var undir-
ritað - og "allur heimurinn" lofsöng
"friðardúfuna" Kissinger. En á þess-
um tíma hefur enginn friður rfkt í
Suður-Víetnam. Með beinni og
óbeinni aðstoð USA hafa Saigon-herir-
nir brotið vopnahléð yfir 500. 000
sinnum, og ógnarstjórn Thieu-klík-
unnar orðið æ blóðugri.
Alþýða S-Vfetnams heyr einbeitta bar-
áttu gegn árásarstefnu Thieu-klíkunn-
ar og hefur hvað eftir annað barið
niður hersveitir frá Saigon, sem ráð-
ist hafa inn á frelsuðu svæðin. Frá
þvf f janúar 1973 hafa þjóðfrelsisher-
irnir og albvðan á frelsuðu svæðunum
gert út af við meira en 150.000 óvina-
sveitir og náð aftur á sitt vald mörg-
um svæðum, sem óvinirnir höfðu her-
tekið.
Og jafnframt hinum sigursælu gagn-
árásum á innrásarherina, hefúr hin
vopnaða alþýða á frelsuðu svæðunum
gert stórátak til að rækta upp þau
eyðilönd, sem USA- og Saigon-herir-
nir höfðu sprengt upp, reisa vatns-
miðlanir og efla landbúnaðarfram-
leiðsluna, flutninga og samgöngur,
menningar- og menntunarstarf, ásamt
heilbrigðisþjónustu við almenning.
Sigrar alþýðunnar á frelsuðu svæðun-
um undir forystu Bráðabirgðabylting-
arstjórnarinnar í efnahagslegum og
hernaðarlegmn efnum undirstrikast
enn betur af gjaldþroti Thieu-klfkunn-
ar á öllrnn sviðum. I Suður-Víetnam
skýrast markalfnurnar æ betur milli
uppbyggingarstarfsins á frelsuðu
svæðunum annars vegar og efnahags-
legrar, pólitfskrar og hernaðarlegr-
ar kreppu Saigon-stjórnarinnar hins
vegar.
Kreppan á yfirráðasvæðum Saigon-
klíkunnar
Iðnaðar- og landbúnaðarframleiðsla
hefur dregist gífurlega saman. Verð
á neysluvörum hefur rokið upp úr öllu
valdi. Glæpum fjölgar jafnt og þétt.
Neysla eiturlyfja eykst dag frá degi.
f stuttu máli, hvarvetna blasir spill-
ing og hnignun við sjónum. Þannig er
ástandið á yfirráðasvæðum Salgon-
stjórnarinnar, afrakstur skemmdar-
starfsemi Thieu-klíkunnar og stefnu
heimar að leggja landið f rúst og blóð-
mjólka alþýðuna.
Fýrri helming þessa árs minnkaði iðn-
aðarframleiðslan á þessum svæðum
um 30%, ef borið er saman við sama
tímabil í fyrra. 33 verksmiðjur og
fyrirtæki f Saigon einni saman lögðu
þá upp laupana og 5 önnur hafa dregið
úr framleiðslunni. Frá síðustu ára-
mótum og fram í september hefur
vefnaðariðnaðurinn dregist saman um
50 - 60%, pappírsgerð um 60% og
tannkremsframleiðsla um 80%. Fjöldi
verkamanna hefur misst atvinnu sína.
Landbúnaðurinn er jafnvel í enn verri
kreppu, þvf stór landssvæði haía ver-
ið lögð í eyði, þar sem Thieu-klíkan
hefur smalað bændum í "íbúamiðstöðv-
ar" eða "herstjórnarleg þorp." Land-
búnaðarframleiðslan, einkum rís-
framleiðslan,, hefur minnkað stórlega.
Þótt landið sé nógu frjósamt til að
framfleyta fólkinu, er áætlað að flytja
inn 300 til 400 þúsund tonn af rís á
þessu ári.
Öðaverðbólga hefur ríkt og ríkir í
Saigon. Fyrstu níu mánuði ársins var
gengi "gjaldmiðilsins" fellt 8 sinnum
og verð á ýmsum neysluvörum hækk-
aði á sama tíma um 50 til 200 prósent.
Thieu-klíkan hefur lagt sig f fram-
króka um að rýja þjóðina inn að skinn-
Inu U1 þess að reyna að brjótast út úr
þessum efnahagslega vftahring, auk
þess sem hún hefur betlað "aðstoð"
frá Bandaríkjunum. Yfirlýst ætlan
hennar á þessu ári er að leggja skatta
á bændaalþýðuna, sem svara 50 millj-
örðum pjastra, en það er tíföld hækk-
un frá því f fyrra.