Stéttabaráttan - 13.12.1974, Side 10
10
STÉTTABARÁTTAN 11/12 tbl. 13.12.1974
Rauður vettvangur
Frá lesendum
Valdníðsla
Því er ekki fyrir að fara, að verka-
lýðurinn sé eina kúgaða stéttin hér
á landi. Aðrir þjóðfélagshópar eiga
við kreppt kjör að búa og verða einn-
ig að líða órétt. Mín saga er dæmi
um það. Ég er barnakennari úti á
landi, og er aðkpmumaður. Það
ðréttlæti, sem eg hef verið beittur
frá því ég kom á þennan stað, hefúr
opnað augu mín fyrir því að hand-
hafar valdsins svffast einskis, þeg-
ar um lítilmagnan er að ræða. Ég
ákvað f haust að sækja um kennara-
stöðu á þessum tiltekna stað. Ég
taldi víst, að mér yrðu veitt sömu
kjör og tíðkast hefur meðal aðkom-
inna kennara annars staðar á lands-
byggðinni. Þessvegna æskti ég að-
eins, að mér yrði séð fyrir húsnæði
og fæði, en láðist að taka fram hver
hlutur þeirra yrði ef um kostnaðar-
mikið uppihald yrði að ræða. Strax
annan daginn hér var mér réttur
reikningur, sem hljóðaði upp á 18
þús kr. af 44 þús. mánaðarlaunum
mfnum (að undanskilinni láglauna-
uppbóta Geirs hins fríða). Ég hef
gengið á milli Pílatusar og Heródes-
ar, en aðeins hlotið sömu útreið og
Kristur forðum. Augljóst er, að
okkar ástkæra lýðræðisríki býður
uppá valdníðslu hrokafullra embætt-
ismanna og yfirstéttarvalds. Þess
má geta, að höfuðpaurinn er einn af
forkólfum Framsóknarflokksins.
Reynsla mín af framangreindu hefur
sýnt mér, að kennarar eru kúgaður
hðpur og á fulla samleið með stétt-
arbaráttu verkamanna. Ég vil benda
kennurum, hvar sem er á landinu,
að það, að búast má við stórauknum
kjaraskerðingum á næstunni. Þann-
ig hef ég frétt, að fella eigi niður
allar staðaruppbætur, sem þýðir að
þrengt yrði mjög að kjörum kenn-
ara. Reynsla mín og dómgreind
hafa kennt mér, að einasta leiðin til
að brjóta helsi þetta er að taka upp
öfluga pólitíska baráttu við hlið
verkalýðsins og kollvarpa auðvalds-
skipulaginu. Með það fyrir augum
hyggst ég taka þátt í námshring
K. S. M. L. og vona jafnframt að sem
flestir fylgi því fordæmi.
Með baráttukveðju til Stéttabarátt-
unnar
K.V.M.
Skiptir hann oftar um
skoðun en sokka ?
Nýlega rakst ég á eftirfarandi um-
mæli eftir Jónatan Þórmundsson,
prófessor:
"Ég var nú lengi þeirrar skoðunar,
að herliðið ætti að vera hér, en
við tilkomu hinna nýju vopna, eld-
flauga og vetnissprengja hafa við-
horfin breyst. Ég tel því enga
vernd í hernum eins og nú er kom-
ið." (Dagfari, málgagn Hernáms-
andstæðinga, bls. 24, 1. des. '61)
Þessi sami Jónatan er einn af for-
göngumönnum "Varins lands" og
aðili að málsókninni gegn m. a.
blaðamönnum Þjóðviljans. Mér
finnst þetta kostuleg heljarstökk -
því að "varið land" áróðurinn geng-
ur einmitt út á það, að herinn cigi
að vera hér til að "verja landið".
Hefur Jónatan breytt um skoðun á
eldflaugum og vetnissprengjum, eða
er hann bara dæmigerður Fram-
sóknarmaður ?
-/Finnur
Trúboð
Ég sá það f sjónvarpinu um daginn,
að Aðventistar og fleiri kristnir
trúflokkar kúgi indíána f Suður-
Ameríku. Þar var sagt frá trú-
flokki sem heitir sjöunda dags að-
ventistar, sem rekur einhverja trú-
boðsstarfsemi meðal indíána við
Amazon fljótið f Brazilíu og kúguðu
þeir fólkið sem bjó þarna til að
sækja trúboðssamkomur, bönnuðu
því að éta svínakjöt og fisk sem þó
er aðalfæða indfánanna. f myndinni
var sagt að indíánarnir hefðu feng-
ið skortsjúkdóma vegna þess, að
þeir fengu ekki eggjahvítuefni úr
svfnakjötinu og fiskinu og aðventist-
arnir veittu þeim enga hjúkrun.
Einnig var sagt frá öðrum trúflokki,
sem seldi indíánum fyf og þar sem
þeir áttu enga peninga, stóðu fyfin
óhreyfð, en fjöldinn allur af þorps-
búum var með alvarlega og lang-
varandi sjúkdóma, sem hægt hefði
verið að lækna með lyfjunum.
Mér finnst að svona lagað eigi að
birta, og banna að trúarhópar séu
að kúga fátæklinga til hlýðni og
undirgefni, með því að veita þeim
læknisaðstoð gegn gjaldi. Sjón-
varpið sýnir alltof sjaldan þessa
hlið kirkjunnar en þess í stað fá
einhverjir prestar að vaða uppi
með trúaráróður á hverjum einasta
sunnudegi.
Gagnfræðaskólanemi.
At yourservice...
Alþýðubandalagið segist berjast
gegn herstöðinni á Keftavíkurflug-
velli og hefur gert það mál að aðal-
baráttumáli sínu í Alþingiskosning-
um. En svo Jxsgar AlJjýðubandalag-
ið er komið í r&isstjorn hefur það
ekki gert alvöru úr því að reka her-
inn burt, þrátt fyrir kosningaloforð-
in.
Þo keyrir um þverbak, þegar Þjðð-
viljinn lýsir því yfir, að prent-
smiðja hans sé reiðubúin að prenta
áróður fyrir bandarísku upplýsinga-
þjónustuna, aðeins ef hún borgar
samkvæmt taxtal
Eftirfarandi klausa birtist í Þjóð-
viljanum 3. desember f grein þar
sem Þjóðviljamenn eru að reyna að
dylja, að þeir hafi samband við
rússana.
Meira aö segja væri fyllUega
hugsanlegt ab Prentsmibja
Þjóbviljans taeki ab sér prentun
Morgunblabsins eba öfugt og
sameiginlega reka 4 dagblöb
eina prentsmibju. veyna
væri lfka HDolViingahjánusta
Bandarlklanna velkomin I vib-
ptLvibPrenh ..........
skipti við Prent-uniMÍrÞiáfuuIj-
ans upd á gjaldskrá Félags isl.
prentsmibjueigenda, eins og
Reiður vinstrimaður.
Stalín-vinur
kínverskrar
alþýdu
Við birtum hér grein eftir Maó Tsetung formann umhinnmiklaleiðtoga sovéskrar
alþýðu, Jðsef Stalfn. Astæðurnar eru tvennar, annars vegar eru 21. þessa
mánaðar 95 ár liðin frá fæðingu hans, og hins vegar er greinin hið sterkasta
andsvar við öllum árásum og óhróðri borgaralegra áróðursmanna um foringja
Bolsévíkanna.
Öllum marxistum-lenínistum er það skylt að standa með Stalfn og verkum hans,
ekki síst nú, þegar á íslenskum verkalýð dynja úr útvarpinu hinar svokölluðu
endurminningar Krúsjofs.
Við tökum fyllilega undir með Maó, er hann segir: "Ast og virðing kínverskrar
alþýðu fyrir Stalfn... á sér djúpar rætur, og engin tilraun til að spilla þar um,
engin lýgi, og ekkert baktal getur breytt því."
Þann 21. desember verður félagi
Stalín 60 ára. Þessi afmælisdagur
vekur hjá öllum byltingarsinnum
hvar sem er í heiminum hinar sönn-
ustu og heilustu heillaðskir.
Að hylla Stalín er ekkert formsatriði.
Að hylla Stalín þýðir að standa með
honum, standa með verkum hans,
fyrir sigri sósíalismans, fyrir þeirri
leið, sem hann hefur sýnt mannkyn-
inu, það er yfirlýsing um einlæga
vináttu. Því langstærsti hluti mann-
kynsins líður skort og getur aðeins
losað sig undan þeirri áþján með
því að fylgja leið Stalíns og með
hans hjálp.
Hin kínverska alþýða er nú á leið
sinni í gegnum mestu þrengingar
sögmmar og hefur meira en nokkru
sinni þörf fyrir hjálp annarra. í
"bók Odernes" er þetta nefnt "fugl-
inn kallar á rödd vinar." Þetta eru
þær aðstæður sem við erum í.
Hverjir eru vinir okkar?
Til eru svokallaðir vinir, fólk sem
segist vera vinir kínverskrar alþýðu
og sem sumir Kmverjar skoða hugs-
unarlaust sem vini sfna. En þannig
vinir hljóta að vera svipaðir Li Lin-
fu, sem var forsætisráðherra á tfm-
um Tang-keisaranna, sem sagt var
um "að hefði hunang í munninum en
rýting falinn í erminni." Þannig
eru raunverulega þessir "vinir,"
þeir hafa "hunang f munninum en
rýting falinn f erminni." Og hverjir
eruþeir? Það eru heimsvaldasinn-
arnir, sem þykjast hafa samúð með
Kfna.
Það eru einnig til vinir, allt öðru
vísi vinir, vinir, sem sannarlega
sýna okkur stuðning, og líta á okkur
sem bræður sína. Hverjir eru þeir ?
Það er sovésk alþýða og Stalín.
Ekkert annað riki hefur afsalað sér
hagsmtmum sínum í Kína. Það hafa
aðeins Sovétríkin gert.
I okkar fyrstu stóru byltingu, þegar
allir heimsvaldasinnarnir voru á
móti okkur, voru það aðeins Sovét-
ríkin ein, sem hjálpuðu okkur.
Síðan varnarstríðið gegn innrás Jap-
ana hófst, hefur engin heimsvalda-
sinnuð ríkisstjórn stutt .okkur. Að-
eins Sovétríkin hafa veitt okkur að-
stoð jafnt í lofti sem á láði.
Er þetta ekki nógu ljóst ?
Aðeins land sósíalismans, leiðtogar
þess og alþýða, sósíalfskir hugsuðir
þess, ráðamenn og verkafólk, aðeins
þeir geta veitt kínversku þjóðinni
sannan stuðning í frelsisbaráttunni,
sem og í öðrum málum. An hjálpar
þess getum við ekki unnið endanleg-
an sigur.
Stalín er hinn einlægi vinur kínverskr-
ar alþýðu og berst fyrir frelsun
hennar. Ast og virðing kínverskrar
alþýðu fyrir Stalín og vinarþel henn-
ar til Sovétríkjanna á sér djúpar
rætur, og engin tilraun til að spilla
þar um, engin lýgi, og ekkert baktal
getur breytt þvf.
-/mþ þýddi
Sáuð þið í sjónvarpinu
Kreppan er hugarfarsieg og verðbólg-
an siðspillandiT
í sjðnvarpsþættinum Kastljðs á föstu-
dagskvöldið 6/12 var kreppan til um-
ræðu. Þráinn Eggertsson hagfræð-
ingur og Helgi Bergs bankastjóri
sátu fyrir svörum og afhjúpuðu full-
komið skilningsleysi sitt á orsökum
þeirrar kreppu sem haldið hefur inn-
reið sfna í auðvaldsheiminn. Frá
sjðnarhðli borgaralegu hagfræðinnar
er kreppan eitthvað óskiljanlegt,
einhver mistök í fjárfestingu eða
jafnvel eitthvert andlegt fyrirbærij
Það hvarflar ekki að fulltrúum henn-
ar, að orsökin fyrir kreppunni liggi
í kapitalismanum sjálfum, sé óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur hans og æ-
varandi áþján fyrir verkalýðinn, svo
lengi sem einkaeignin á framleiðslu-
tækjunum er við lýði.
Helgi Bergs: "Kreppan er hugarfars-
leg..."
Bankastjórinn hélt sig við útúrsnún-
ingana, þegar spyrjandinn vildi vita
orsakir kreppunnar. Viðurkenndi
hann með semingi, að flestum myndi
veflast tunga um tönn, þegar svara
skyldi slíkri spurningu. Hann tíndi
þð fram lágkúruna, sem jafnvel
blaðasnápar borgarapressunnar hafa
margtuggið, að olían .væri orsökin.
Þegar spyrjandi benti réttilega á,
að olfan væri aðeins brot af heildar-
framleiðslunni og að leita þyrfti or-
sakanna fyrir verðhækkunum á olíu
líka, vafðist Helga sjálfum svo
tunga um tönn, að hann leit út eins
og drukknandi maður sem kraflar í
brothætta vök, þegar hann henti á
lofti skýringu spyrjandans sjálfs -
nefnilega að kreppan væri hugarfars-
legj
Tilraunir hans sjálfs til að kenna
vanráðnum og óhugsuðum fjárfest-
ingum auðmanna um kreppuna, end-
uðu f slikum ógöngum, að augljóst
var hverjum sem á horfði að banka-
stjórinn hafði ekki hundsvit á því
fyrirbrigði. Vilmundur Gylfason sá
í hendi sér að kreppan væri fyrst og
fremst í erlendum mörkuðum og
sem slík innflutt fyrirbrigði.
Engan þessara spekinga renndi
grun f hina raunverulegu orsök, alla
vega voru þeir ófúsfy að viðurkenna
að það hafi svo verið. Kreppan er
nefnilega afleiðing af ósættanlegum
andstæðum sem felast í sjálfri auð-
valdsframleiðslunni. Þegar fram-
leiðslan stjórnast af taumlausri
gróðaleit hvers auðjöfurs um sig, er
auðsætt að heildarframleiðslan ein-
kennist af innbyrðis baráttu þessara
auðjöfra, samkeppni þeirra og sam-
vinnu um að halda verðlaginu háu og
laununum samtímis eins lágum og
þeim er unnt. Þessi andstæða - að
framleiða eins mikið og hægt er og
reyna að selja það eins dýrt og fram-
ast er unnt, samtímis því sem kaup-
endurnir fá eins lág laun og atvinnu-
rekendurnir geta pressað^þau niður -
leiðir ðhjákvæmilega af sér stöðnun
og kreppu. Framleiðslan fer óhjá-
kvæmilega fram úr kaupgetunni,
markaðuriim getur ekki vaxið eins
hratt og framleiðslan.
En ef spekingarnir í sjónvarpsþætt-
inum hefðu komið auga á þessa ein-
földu staðreynd, væru þeir heldur
ekki borgaralegir hagfræðingar. Því
af þessari staðreynd leiðir, að auð-
valdsþjððfélagið er oröök kreppanna,
atvinnuleysisins og verðbólgunnar
og eina lækningin sem talist getur
varanleg er að leggja auðvaldsþjóð-
félagið í rúst og taka upp sósfalfska
framleiðsluhætti, sem einkennast af
sameigninni og samvinnunni. Það
er þannig ekki auðvaldskreppan sem
er hugarfarsleg - heldur er hugar-
farslegt ástand borgaralegu speking-
anna f kreppui
Þráinn Eggertsson: "Verðbólgan er
siðspillandi..."
Vafalftið hefur Þráinn útskrifast úr
háskólahagfræðinni með prýði. En
hann lét f ljós vonbrigði sín yfir, að
raunveruleikinn skyldi ekki haga
sér eins og kennslubækurnar sögðu
fyrir inn. En hvaða hugmyndir
skyldi nýútskrifaður hagfræðingur
gera sér um sjálfan sig og hagfræði-
þekkingu sfna, þegar hann neyðist
til þess frammi fyrir alþjóð, að
leiða hagfræðivandamálin hjá sér?
Það er aumkunarvert að horfa upp á
"fjölmenntaða" hagfræðinga brosa
aulalega út í loftið og fíiósófera um
siðferðilegar afleiðingar verðbólg-
unnar, þegar þeir eru spurðir um
orsökina fyrir verðbólgu og leiðun-
um til að berjast gegn henni!
Ekki bætir heldur úr skák, þegar
fullyrt er, að verðbólgan hafi stóra
kosti - sem sé að vegna hennar geti
allir íslendingar búið í mjög góðu
húsnæðij Sjálfsagt þarf Þráinn ekki
að hafa áhyggjur af slfku, en venju-
legur verkamaður, sem ætlar að
byggja sér hús getur ekki hallað sér
aftur í hægindastólnum og sagt, að
verðbólgan sjái um húsbygginguna.
Það sem Þráinn á við er, að verð-
bólgan sé svo hröð, að lán sem tekin
séu rýrni það hratt að endurgreiðsl-
an verði minni en upphaflega láns-
upphæðin.
En þetta er bara flatur áróður, sem
einföldustu sálir hljóta að sjá í gegn
um. Þvf verðbólgan felur einmitt
f sér lækkun launa miðað við vöru-
verð, eða hraðari hækkun vöruverðs
en launa. Þess vegna verður verka-
maður að vinna margfalt meira í
dag en áður til að greiða af þeim lán-
urn sem hann tók fyrir húsbygging-
unni. Þetta sannast af því, að yfir-
og næturvinna hefur aukist gffurlega
síðustu ár og að ómögulegt er að lifa
af daglaunum verkamanns, hvað þá
að leggja til hliðar af þeirn fyrir
húsbyggingu eða íbúðarkaupum. Verð-
bðlgan leiðir þess vegna af sér auk-
inn þrældóm fyrir verkalýðinn og
gerir honuro.íbúðarkaup ekki auð-
veldari að öðru leyti en þvf, að á
verðbólgutímum er auðveldara að fá
bankalán en annars.
Hins vegar var fróðlegt að heyra
Þráinn útlista fyrirætlanir íhalds-
stjðrnarinnar. Hann glopraði því út
úr sér, að tvær leiðir væru til: að
lækka launin hratt og óvægið, en það
hefði baráttu verkalýðsins f för með
sér, eða að koma launalækkununum
og kjaraskerðingunum á hægt og ró-
lega f þeirri von að verkalýðurinn
samþykkti þær í skömmtum. Þráinn
viðurkenndi að hægristjórnin hefði
valið síðari leiðina og kemur það
heim og saman við þær kjaraskerð-
ingar sem verið er að framkvæma
við höfnina, f Aburðarverksmiðjunni
og vfðar, aðallega með þvf að
lengja vinnudaginn og auka vinnuálag-
ið gegn lftilli hækkun launa, sem
ekki er einu sinni upp í þær vísitölu-
uppbætur sem íhaldsstjórnin stal af
verkalýðnum.
Hvað sem segja má um ha^fræði-
þekkingu Þráins, verður þo að segja
að hann sé meðvitaður um hlutverk
borgaralegrar hagfræði og hagstjórn-
ar - að auka arðránið á verkalýðnum
og sætta hann við það með kjaftæði
um þjóðarsamstöðu, og sameigin-
legar byrðar, sem atvinnurekendur
og verkalýður verða að axla til að
bjarga þjóðarbúinu og atvinnuvegun-
Framhald af baksíðu
EFNAHAGSHRUN...
um kemur kreppan nú fram í atvinnu-
leysi, styttingu vinnutíma og alhliða
samdrætti. íyrir skömmu stjfttu
Ffatverksmiðjurnar á ítalfu vinnutíma
verkamanna úr 40 stundum niður í
24 stundir á viku og lækkuðu kaupið
samsvarandi. Þannig mætti nefna
mýmörg dæmi.
Kreppan kemur ekki aðeins fram f
efnahagslífi og viðskiptum, heldur
hefur hún áhrif á öll svið þjóðfélags-
ins. Félagslegur órói, andspyrna og
uppreisnir gegn undirokurunum eru
eðlilegir fylgifiskar hennar. Verk-
fallstíðni fer þannig yfirleitt hækkandi,
I Bandaríkjunum urðu þannig 3.24Ó
verkföll á fyrri helmingi þessa árs
með þátttöku 1.600.000 verkamanna,
sem eru um 650.000 fleiri en á fyrra
ári. Slíkt hið sama gerist í löndum
Vestur-Evrópu og Japan. Qreigarnir
eru að vakna til meðvitundar um að
þeir eru öreigar og eiga engra hags-
muna að gæta í ríkjandi þjóðfélags-
kerfi, þeir hafi engu að tapa nema
hlekkjunum.
-/MVS tók saman
Lesió bæklinga KSML
UM VERKFÖLL . (eftir Lenín)
50/- kr.
REYNSLAN AF KJARABAR-
Attunni.
(Alyktun Alþjóðasambands Rauðra
Verkalýðsfélaga frá 1929 um bar-
áttuaðferðir f verkföllum)
50/- kr.
ALYKTANIR 1.RAE6TEFNU
KSML.
150 kr.
DlALEK TlSKA OG SÖGULEGA
E F NISHYGGJA N(eftir Stalin)
(2. námsfundur í námshring KSML
með formála og eftirmála KSML)
150 kr.
UM FLOKKINN
( 5. námsfundur í námshring KSML
með formála KSML)150 kr.
foriagi< i