Stéttabaráttan - 13.12.1974, Side 12
STÉTTABARÁTTAN 11/12 tbl. 13.12.1974
geysileg lán, og bæði opinberar- sem
sinkaskuldir þeirra nema nú himin-
háum fjárhæðum. Samkeppnin og
leitin að hámarksgróða hefur leitt þá
út fyrir öll skynsamleg takmörk f auk-
inni fjárfestingu.
Frá byrjun þessa árs hafa auðhringar
nokkurra auðvaldslanda orðið f ríkari
mæli en áður, að taka lán hjá.erlend-
um bönkum til að mæta miklum halla
á greiðslujöfnuði. Við það hefur á-
standið enn versnað, vandamálið þan-
ist út og orðið enn óviðráðanlegra.
Skipulagsleysið f framleiðslunni og
hrun hennar kemur þannig fram á pen-
ingamarkaðinum f óreiðu. himinháum
skuldum fyrirtækja og gjaldeyris-
strfði.
Engin gagnráð duga
Allt þetta og margt fleira hefur skerpt
mðthverfurnar innan auðvaldsskipu-
lagsins og gert hina pðlitísku og ié-
lagslegu kreppu dýpri.
Ráðandi hðpar f auðvaldslöndunum eru
bundnir á tveimur vígstöðvum, þegar
þeir reyna að hamla gegn kreppunni.
Ónnur aðferð þeirra, að hressa upp á
framleiðsluna með verðbólguhvetjandi
ráðum verður eingöngu til þess að
verbðlgunni er algjörlega gefinn laus
taumurinn með augljósum afleiðingum.
Hin aðferðin, að minnka verðbðlguna
með ýmiss konar höftum, leiðir óhjá-
kvæmilega af sér dýpkun hinnar efna-
hagslegu kreppu.
Til að vinna gegn verðbðlguþrðuninni
hafa mörg lönd gripið til svokallaðra
' innanlandsáætlana um niðurskurð
útgjalda og sparnað. Slíkar takmark-
aðar aðgerðir hafa algjörlega misst
marks og í mörgum tilvikum jafnvel
stuðlað að enn alvarlegri stöðnun og
afturkipp. Þar að auki eru fá tæki-
færi fyrir auðvaldslöndin að varpa
byrðum sínu yfir á önnur lönd, þar
sem þau eiga öll í svipuðum erfiðleik-
um. f dag reynir hver sem framast
getur að minnka innflutning og auka
útflutning. Slíkar ráðstafanir hafa
enn aukið á óróann og deilurnar f
samskiptum auðvaldsríkjanna. Banda-
rfska tfmaritið Newsweek segir 8.
júlf síðastliðinn, að aðgerðir f þá átt
að skera niður innflutning en auka út-
flutning hafi í för með sér stórhættu:
"Möguleikann á morðóðu verslunar-
stríði sem á endanum leiði til efna-
hagshruns á heimsmælikvarða."
Allsherjarkreppa framundan
Af framansögðu má ljóst vera, að
það er ekki aðeins áróður kommúnista,
að auðvaldsheimurinn rambi nú á
barmi allsherjarkreppu, sem komi til
með að ná til allra þátta efnahags lífs -
ins í öllum kapitalískum löndum. Stað-
reyndirnar blasa við okkur og reyni
hver að neita þeim, sem treystir sér
til.
Það eru ekki aðeins fslenskir verka-
menn sem reyna versnandi lífskjör í
dag, heldur allir arðrændir öreigar.
Og stéttarvitund þeirra mun vakna,
og er þegar á mörgum stöðum vöknuð
þegar kapitalismínn synir sig eins og
hann getur verstur og ómannlegastur
orðið. Verkamenn, þið hafið vinnu
í dag, en munuð þið hafa vinnu á morg-
un ? Þið getið haft ofan í ykkur og á
með gegndarlausri yfirvinnuþrælkun,
en er víst að yfirvinnan verði fyriir
hendi á morgun ? Hvarvetna f heimin-
FRAMHALD A BLS. 10
Hver er hinn nýji
varaforseti ULSA?
Mutur
FRAMHALD AF FORSÍÐU
EFNAHAGSHRIIN...
'1 vær af aðaliðnaðargreinum auðvalds-
landanna, bifreiða- og byggingaiðnaður
eiga f alvarlegum erfiðleikum. Bif-
reiðasala á fyrsta ársfjórðungi 1974
er talin vera um 30% minni en á sama
tímabili í fyrra. Sökum þessa hafa
mörg lönd orðið að draga saman segl-
in f bifreiðaframleiðslu. Þannig
framleiddi General Motors, stærst
bandarískra bflafyrirtækja, að minnsta
kosti 38% færri bíla fyrstu sex mánuði
þessa árs en áður. Sömu söguna er
að segja f byggingaiðnaðinum. Vegna
söluerfiðleika eru kapitalistarnir
þvingaðir til að minnka mjög magn
húsbygginga. Þessi þróun hófst f
Bandaríkjunum fyrir rúmu hálfu ári.
Þar varð afturförin um 60% frá því á
árinu áður. U.S. News and World
Report viðurkenndi í septemberhefti
sfnu, að bandarískur byggingaiðnaður
"væri á leið inn f sfna verstu kreppu
allt frá hruninu mikla." Vegna þessa
afturkipps hefur hrájárnsframleiðsl-
an sömuleiðis minnkað um 1,4% frá
fyrra ári.
Geysileg aukning atvinnuleysis
Fleiri og fleiri fyrirtæki auðvalds-
landanna hafa verið þvinguð til að
loka undanfarið vegna þrýstingsins frá
skýjahlaupi verðbólgunnar og sam-
dráttar framleiðsluimar. Tölfræði-
legar skýrslur sýna, að 5.180 fyrir-
tæki fóru á hausinn f Bandaríkjunum
á fyrri helmingi ársins, 6% aukning
frá 1973. f Japan eru skráð um
5.500 gjaldþrot frá janúar til júnf
þessa árs, 60% aukning frá þvf á
fyrra ári. Hvert á fætur öðru hafa
mikilvæg fyrirtæki og bankar lokað
f Þýskalandi, Bretlandi og fleiri lönd-
um. Tölfræðiskrifstofa Vestur-Þýska-
lands hefur m.a. lýst 1974 sem "ári
gjaldþrotanna." Mistök f viðskiptum
og verslun hafa einnig hent nokkur
stórfyrirtæki og valdið miklum ótta
meðal einokunarauðhringanna.
Vegna þessara aðstæðna hafa einokun-
arhringirnir sagt upp fjölda verka-
fólks, til að reyna að losna við eigin
byrðar.
Það hefur á örskömmum tfma stór-
aukið tölu atvinnulausra f auðvalds-
löndunum. Samkvæmt opinberum
skýrslum jókst atvinnuleysið f Banda-
ríkjunum um 5,8% f september.
Gengu þá 5,3 milljónir verkamanna
atvinnulausir og hafði þeim fjölgað
um 440.000 frá því í ágúst. I Bret-
landi var tnla a'.vinr.ulausra 690.000
f ágúst, 15% aukning frá því í júlí og
mesta aukning á einum mánuði frá
lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Tala vestur-þýskra atvinnuleysingja
hefur stöðugt aukist á árinu. f sept-
embervoru þeir um 557.000.
Orði á peninga- og gjaldeyrismarkaði
Hin stöðuga úrkynjun fjármála- og
efnahagslífs heimskapitalismans hefur
óhjákvæmilega valdið ðrða á gjaldeyr-
is- og peningamarkaðinum. Til að
hressa við viðskipti sín og efnahag
hafa kapitalistarnir, sérstaklega f
stærstu auðvaldslöndunum, stðrbætt
við eignir sínar og fyrirtæki, hlaðið
upp auðmagni f stærri stíl en áður.
Vegna þessa hafa þeir orðið að taka
Eftir þau ár sem Nixon og Agnew hafa
dvalið í Hvíta húsinu hefur það orðið
næstum því sjálfsagður hlutur að
hægt sé að múta forsetanum og vara-
forsetanum. En varla er hægt að
múta nýja varaforsetanum, Nelson
Rockefeller þiggur engar mútur, hann
veitir þær.
Hann er einn af ríkustu mönnum
heimsins. Hann og bræður hans reka
Rockefeller-heimsveldið, sem inni-
heldur m. a. fyrirtæki eins og Stand-
ard Oil, með ársgróða uppá 2,2 millj-
arði dollara að loknum skattgreiðsl-
um, og sem hefur olfuvinnslu í 14
löndum (m. a. Víetnam) og hefur 300
dótturfyrirtæki sem annast sölustörf
í flestum löndum heimsins. Auk þess
stjórnar Roekefeller mörgum öðrum
olíufélögum. Einnig eiga bræðurnir
Chase Manhattan Bank, sem er þriðji
stærsti banki Bandarfkjanna. Auk
þess eiga þ«ir fyrirtæki í vopnaiðnað-
inum, flugfélög og kjörbúðahringi,
sem ná yfir gjörvalla S-Ameríku. Alls
ráða bræðurnir yfir auðæfum sem
nema um 900 milljörðum íslenskra
krona. Ef gengið hækkar í Wall Street
geta bræðurnir grætt meira á nokkrum
dögum, en Krupp og Onassis nurla
saman á mannsaldri.
Forseti til sölu
Enginn verður ríkur, enginn verður
margmilljóneri með því eingöngu að
fást við það sem kallað er fjármál.
Og umfram allt, enginn getur haldið
og aukið slík auðæfi án þess að fara
út í pólitikina. Það er lífsspursmál
fyrir kapitalista allra landa án undan-
tekningar að stjðrna ríkisstjórnunum
og embættismönnum. John D. Rocke-
feller kom fljótt auga á þetta. Þannig
keypti hann sér sinn eigin forseta ár-
ið 1896. Eftir dýrustu kosningabar-
áttu fram að þeim tíma í sögu Banda-
ríkjanna varð William McKinley for-
seti fyrir peninga Standard Oil. Þeir
peningar borguðu sig fljótt til baka
gegnum samning við stjórnina og rík-
ið, um að þjóna hagsmunum Standard
Oil með þvingunaraðgerðum í garð
landa S-Ameríku.
Nelson Rockefeller hefur sérhæft sig
í því að þjóna hagsmunum fyrirtækja
simia í gegnum stjórnmálaafskipti.
Ilann hefur tryggt tengslin við ríkis-
stjórnir og þing og mútað stjórnmála-
mönnum. Hann hefur náð góðum ár-
angri. Þrir utanríkisráðherrar eftir-
stríðsáranna hafa komið beint úr sér-
fræðingahópi Nelsons.
Utanrikisráðherrar Rockefellers
Ifyrsti slíkur var John Foster Dulles.
Þegar hann varð utanríkisráðherra
Eisenhowers árið 1953 óskaði Nelson
honum til hamingju með svohljððandi
orðum: "Að þér séuð orðnir utan-
ríkisráðherra er mér álíka fagnaðar-
efni og að Eisenhower er orðinn for-
seti". Raunverulega var Nelson
Rockefeller að ðska sjálfum sér til
hamingju. Dulles hafði fyrst verið
lögfræðingur Rockefellers, síðan
stjórnarmeðlimur Standard Oil, og
þar á eftir yfirmaður utanrikismála
og formaður í Rockefellerstofnuninni.
Eftirmaður Dulles í Rockefellerstofn-
uninni var Dean Rusk. Hann sagði
upp störfum þar til að taka við störf-
um utanríkisráðherra, fyrst hjá
Kennedy, síðan hjá Johnson. Það var
í tíð Dean Rusk sem Bandaríkin hófu
hernaðaríhlutun sína í Víetnam.
Sá maður sem öðrum fremur orsak-
aði þá þróun heitir Henry Kissinger,
prófessor við Harvard. Hann gaf
árið 1957 út bókina "Kjarnorkuvopn
og utanríkispólitík." Þar setti hann
fram kenninguna um "staðbundið
strið. " Staðbundið strfð þýddi minni
áhættu, en meiri slægvisku í barátt-
unni gegn Sovétríkjunum og "heims-
kommúnismanum." Víetnam, Domin-
ikanska lýðveidið og Miðausturlönd,
eru allt dæmi urn staðbundið stríð.
Ef Kissinger hefði bara verið venju-
legur Harvard-prófessor hefðu hug-
myndir hans sennilega ekki haft neina
þýðingu fyrir þróunina. En útgefend-
ur bókar hans var Council of Foreign
Relations (Utanríkismálaráðið), CFR.
f þessu ráði sátu, fyrir utan Kissing-
er, menn eins og James McCloy
bankastjóri Chase Manhattan Bank,
David Rockefeller og bróðir Dulles
utanríkisráðherra, Alen W. Dulles.
Ráðið sem var stofnað 1953 var al-
gjör einkastofnun leiðandi fjármála-
hringa, með Rockefellerhópinn f far-
arbroddi. Hlutverk þess var að hafa
áhrif á stefnu stjórnarinnar.
1956-58 var Kissinger auk þess for-
stjóri f Rockefellerstofnuninni, og
var eftir 1960 einn nánasti samstarfs-
maður Rockefellers. Þegar Nixon
varð forseti 1968 sendi Rockefeller
Kissinger f Hvfta húsið._____________
CIA og Rockefeller
Einn meðlimur utanríkismálaráðsins
var, eins og fyrr segir, Alen W. Dull-
es. Sem stjórnandi CIA á árunum
1953-61 haföi hann alla möguleika á
að færa út línu Rockefellers í heims-
pólitíkinni. Lítum á nokkur afrek
CIA meðan Dulles stjórnaði.
1953 var forsætisráðherra Eran,
Mossadeq, steypt af stóli eftir að
hann hafði þjóðnýtt olíuiðnað landsins.
Olían komst aftur í hendur heims-
aldasinnanna.
1955 og næstu ár á eftir: CIA setur
Diem sem einræðisherra í S-Vfetnam
og byggir upp lögreglu- og herstjórn-
arkerfi landsins. Tryggðir eru hags-
munir Standard Oil varðandi olfu-
vinnslu á víetnömsku landssvæði.
1961 er forseti hins ný sjálfstæða
Kongó, Patriee Lumumba, myrtur af
útsendurum CIA, til að reyna að
koma í veg fyrir að eigur bandarísku
einokunarauðhringanna séu þjóðnýttar.
En Rockefeller hefur ekki latið við
það sitja að hafa áhrif í gegnum leppa
sína. Þegar það hefur verið nauðsyn-
legt hefur hann sjálfur gripið inn f.
Frá og með 1940 var hann ráðgjafi
Roosevelts f málefnum latnesku Amer-
íku, í forsetatíð Trumans var hann
sérfræðilegur ráðunautur f málefnum
vanþróuðu landanna. Þessar stöður
hafa gefið honum möguleika á að
styrkja veldi sitt í S-Ameriku. Hann
á í dag kjörbúðakeðju, sem nær um
öll lönd latnesku Ameríku, og auk
þess á hann jarðeignir þar og olfu-
lindir. Rockefeller er f dag hataðasta
nafn í allri S-Ameríku. Meðal verka-
manna, bænda, smáborgara og þjóð-
legra borgara er nafn hans tengt blöði,
ofbeldi, afturhaldi, hernaðareinræði
og þjóðlegri niðurltegingu.
Þetta er maðurinn sem nú tekur sæti
í Hvfta húsinu. Miskunnarlaus morð-
ingi. Maður, sem hefur fórnað lífi
þúsunda manna um heim allan til að
auka efnahagslegt og pólitískt veldi
Rockefellersfjölskyldunnar, og held-
ur f dag tugum þúsunda verkamanna
og bænda undir kúgunarhæl sínum.
Dæmigerður heimsvaldasinni. Dæmi-
gerður varaforseti Bandarfkjanna.
Það er hann sem jafnt Morgunblaðið
og Þjóðviljinn kalla "frjálslyndan
stjórnmálamann." -/(>1
16%. FRAMHALD AF FORSfÐU
t.d. er Eðvarð Sig. þingmaður AB,
Guðmundur J. er varaborgarfulltrúi
fyrir AB. Þess vegna stendur lika
Alþýðubandalagsforystan að baki
Dagsbrúnarforystunni og við hlið
kapitalistanna, þegar laun verka-
mannanna eru lækkuð og vinnuaðstaða
þeirra skert á höfninni. Þjóðviljinn
hafði viðtal við verkamann af höfn-
inni þegar baráttan gegn samningun-
um stóð sem hæst og var hann á
móti þeim eins og langflestir verka-
menn þar eru. Sama dag kom Eð-
varð Sig. stormandi upp á ritstjórn
Þjóðviljans og spurði hvort verið
væri að reyna að grafa undan fylgi
hans í Dagsbrún og heimtaði að nýtt
viðtal yrði tekið, þar sem sjónar-
mið Dagsbrúnarforystunnar kæmu
fram. Daginn eftir var svo birt við-
tal við Pétur nokkurn, sem hefur
þann starfa að skrifa niður vinnutfma
verkamannanna og er hann sjálfur
ekki lengur verkamaður heldur þjón-
ustumaður Eimskips. Að sjálfsögðu
var hann fylgjandi samningunum og
taldi þá góða. Það er einkennandi
að Þjóðviljinn skyldi ekki hafa talað
við lestarverkamenn, þvf ákvæðin í
samningunum (fækkun í gengjum, leyfi
verkstjóra til að færa verkamenn úr
gengjum í önnur störf o.s.frv.) bitn-
aði fyrst og fremst á þeim sem vinna
í lest. Líklega hafa þeir ekki fundið
nokkurn maim í lest, sem vildi
hrósa samningunum sem flokksbræð-
ur Þjóðviljamanna í Dagsbrúnarfor-
FRAMHALD AF FORSIÐU
VERKFALL...
an meðal verkalýðsins með kjaraskerð'
ingarnar að undanförnu er mikil - og
að hlutar verkalýðsins eru tilbúnir að
taka málin í eigin hendur og hunsa þá
foringja í verkalýðsfélögunum, sem
hafa tekið sér stöðu þeim megin víg-
línunnar sem auðvaldið stendur.
Gangur þessa verkfalls sýndi, á sama
hátt og það sýndi sig í barátlunni gegn
Eimskipasamningunum, að það eru
sundrungar- og undirróðurstilraunir
Dagsbrúnarforystunnar, sem er hættu-
legasti óvinurinn. Það að verkamenn
skyldu kasta Halldóri Björnssyni út
og neita að hafa fulltrúa Dagsbrúnar-
forystunnar á fyrsta fundinum sýnir,
að það verður alltaf fleiri og fleiri
verkamönnum ljóst, hverra erinda
Eðvarð og Co. ganga.
Veikleikar þessa verkfalls voru: und-
irbúningurinn var ekki nægur, t.d.
var ekki haft samband við fragtskipa-
mennina fyrr en daginn fyrir verk-
fallið - þótt kröfurnar hefðu verið
settar fram töluvert áður. Margir
verkamannanna voru ekki þátttakendur
í baráttunni - sumir mættu jafnvel
ekki á fundina þar sem málin voru
ráðin. Það að samninganefnd skyldi
vcra kosin meðal verkamannanna
sjálfra verður að teljast eitt það já-
ystunni höfðu komið f gegn fyrir Eim-
skipafélagskapitalistana; Alþýðu-
bandalagið hefur sýnt sitt rétta eðli,
sem borgaralegur verkalýðsflokkur,
með því að styðja kapitalistana í
launalækkunarherferð þeirra.
Verkamenn; Varist sundrungarstarf-
semi AB-forystunnar og verkalýðs-
félagaforystunnar! Fylkið ykkur um
KommúnistasamtökinJ 3
kvæðasta við baráttuna - en það er
einnig ljóst að í nefndina voru kosnir
bæði þeir hörðustu og einnig menn,
sem ekki voru nægilega harðir. Enn-
fremur verður það að teljast veikleiki
að umboð nefndarinnar var ekki nægi-
lega skýrt, hún fór á fund VSl um
kvöldið og einangraðist að vissu
marki frá verkamönnunum.
Enn einn veikleikinn, og hann á ekki
síður við um aðra baráttu, sem hefur
átt sér stað að undanförnu við Reykja-
víkurhöfn, er sá, að ekkert samráð
var haft við aðra verkamannahópa -
t.d. hjá Eimskip, Ríkisskip o. fl. Sam-
fylking verkamannanna við höfnina
verður sífellt augljósari nauðsyn - að-
eins skipulagning verkamannanna
sjálfra getur komið í gegn þeirra eig-
ing kröfum og varist áhlaupum "for-
ingjanna" í stjórn Dagsbrúnar.
Félagar verkamenn.' Það er þó ekki
nóg að gera sér grein fyrir því að
Dagsbrúnarforystan hefur svikið okk-
ur, eða að baráttan er ekki gegn ein-
staka atvinnurekanda. Verkfallið
hjá Togaraafgreiðslunni mætti ekki
eingöngu einum atvinnurekanda, held-
ur öllu VSl sem er fulltrúi gjörvallr-
ar íslensku borgarastéttarinnar. Það
sýndi sig að auðvaldið sneri bökum
saman gegn verkamönnunum og að
Dagsbrúnarforystan tók pólitíska af-
stöðu með auðvaldinu.
Við eigum ekki í höggi við einstaka
kapitalista, heldur gjörvalla borgara-
stéttina og ríkisvald hennar. Kjara-
baráttan mun aldrei færa okkur sig-
urinn - til að sigra verðum við að
skipuleggja okkur pólitískt.
Félagar verkamenni Takið þátt f
starfinu fyrir uppbyggingu kommún-
ísks flokks - fylkið ykkur um KSML.
-/hh _______
Að þessu sinni er blaðið 12 sfður.
Ritstjórn ákvað að gefa 11. og 12.
tbl. saman til þess að hafa nægan
sölutíma fyrir þetta eintak, þ. e.
að blaðið sé í sölu í fullan mánuð.
Verð blaðsins er ðbreytt - en ætlun
samtakanna er sú að auka söluna
það mikið að hún nái að greiða
kostnaðinn við þetta blað, sem
skiljanlega er töluvert hærri en
þegar færri síður eru.
Venjuleg áskrift: kr. 400,oo.
Stuðningsáskrift: kr. 600, oo.
Baráttuáskrift: kr. 800, oo.
Frá RVK-deildarstj. KSML.
Því miður verður ekki unnt að
sýna Mððurina á næstunni. Hún
hefur ekki fengist, en verður aug-
lýst síðar.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
VINNUSLYS...
Verkstjörar fyrirtækisins stefna verka
mönnum f lífshættu, með því að senda
þá niður í kjallara til að stöðva ker-
leka, án alls öryggisútbúnaðar. A öll-
um sviðum eru framleiðslutækin og
hámarksgróðinn látinn sitja í fyrir-
rúmi.
Öryggisfundir
Haldnir eru tíðir fundir með verka-
mönnum og þeim kennt að fara með
hinar ólíku tegundir slökkvitækja, til
að hægt sé að slökkva í vinnuvélum og
bjarga þannig verðmætum fyrirtækis-
ins frá tjðni. Slökkvilið fyrirtækis-
ins er velþjálfað og viðurkennt, en
öðru máli gegnir um slysavarnir, þar
sem hver króna er skorin við nögl.
Sem dæmi má nefna að sjúkrabíl-
stjórar fslenska Alfélagsins hafa
fengið 3 tíma námskeið í meðferð
sjúkra á fimm ára tímabili. Kunnátta
þeirra kom greinilega í ljós, er slys
varð f kerjaskála og sjúkrabíll var
sóttur, en illa gekk að handleika grip-
inn, þar sem vankunnátta og æfingar-
leysi einkenndi öll þeirra störf.
Augljóst dæmi
Við áltöku í kerjaskála hefur oft bor-
ið á því að í deiglum þeim sem not-
aðar eru við að ná álinu upp úr kerj-
unum hafa myndast sprengingar,
sem geta haft hinar hryllilegustu af-
leiðingar í för með sér. Við nánari
athugun hefur komið í Ijós að orsakir
[sprenginganna er raki sem myndast í
■deiglunum er þær standa ónotaðar,
ásamt því sem raki í loftinu er önnur
aðalorsök. Auðvelt er að koma í veg
fyrir þessa slysahættu með því að
hita upp deiglurnar fyrir notkun. Að
sjálfsögðu er þetta kostnaðarsamt,
og þess vegna hefur atvinnurekandan-
um þótt heppilegra að segja mönnum
að passa sig og fara varlega í stað
þess útiloka slysahættuna með því að
hita deiglurnar. Það er sama hvert
er litið, hámarksgróðinn situr alls
staðar í fyrirrúmi og hagsmunir fyr-
irtækisins eru metnir meira en
mannslífin.
Afnemum auðvaldsskipulagið
Félagar verkamenn f Straumsvfk;
Markmið okkar getur ekki verið dæg-
urbaráttan. Krónutöluhækkun er lít-
ils virði þegar atvinnurekendur og
ríkisvaldið leggjast á eitt með að
velta vaxandi kreppur á herðar okk-
ar, með hækkandi vöruverði, vísitölu-
bindingu og ýmis konar skattatilfærsl-
um. Baráttan stendur um framleiðslu-
tækin og þau verðmæti sem með
þeim eru sköpuð. A meðan verka-
maðurinn er Iaunaþræll auðvaldsins
og til þess eins að skapa þann há-
marksgróða, sem í vasa kapitalist-
anna rennur, er ekki að vænta þess
að hagsmunir okkar séu virtir. Þess
vegna hlýtur höfuðmarkmið okkar að
vera að vinna framleiðslutækin úr
höndum kapitalistanna og skipuleggja
framleiðsluna eftir þörfum heildar-
innar. Eina leið okkar er að skipu-
leggja okkur til baráttu fyrir því þjóð-
skipulagi er metur hagsmuni fjöldans
fram yfir tfmabundinn hámarksgróða
auðvaldsins.
VerkamennJ Gerum okkur meðvitaða
um stöðu okkar í þjóðfélaginu, skipu-
leggjum okkur á grundvelli marxism-
ans-lenfnismans og veltum af okkur
oki launaþrældóms auðvaldsins!
______-/Straumsvfkursella KSML