Fréttablaðið - 17.09.2009, Síða 37
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Hinn 12. október árið 1966 segir
Tíminn frá því í forsíðufrétt að
fyrsta íslenska fréttaskotið hafi
verið tekið deginum áður á Íslandi
þegar tökumenn voru viðstaddir
setningu Alþingis. „Má búast við,
að hún verði sýnd í fréttamynda-
þættinum á miðvikudagskvöld en
sjónvarpsdagskráin hefst með þeim
hætti kl. 20.00.“
Dagskráin á fyrsta ári sjónvarps-
ins var yfirleitt um tveir klukku-
tímar í senn og tvisvar til þrisvar
í viku en fljótlega var sent út sex
daga vikunnar. Líkur voru taldar
á að 50.000 til 60.000 manns hafi
setið við tækið og horft á fyrstu ís-
lensku dagskrána en um helming-
ur landsmanna náði fyrstu útsend-
ingum Ríkissjónvarpsins. - jma
Fyrsta íslenska
„fréttakvikmyndin“
Séu gömul íslensk dagblöð og tíma-
rit skoðuð má sjá að það var árið
1934 sem fyrst var minnst á orðið
sjónvarp hérlendis en það var 12.
júní. Þá var auglýst að þá síðar um
kvöldið myndi verkfræðingurinn
Gunnlaugur Briem flytja erindi í
útvarpinu um þá uppfinningu sem
nýverið hefði litið dagsins ljós
„og kallaðist sjónvarp“. Á þess-
um árum og þeim næstu snerist
fréttaflutningur af sjónvarpi helst
um það að nágrannar okkar í Eng-
landi og Skandinavíu reyndu að
framleiða móttökutæki sem væri
það ódýrt í framleiðslu að sjón-
varp gæti orðið almenningseign.
Árið 1938 áttu átta þúsund heim-
ili í Englandi móttökutæki. - jma
Sjónvarp kemur fyrst
fyrir í blöðum 1934
Á kvölddagskrá Ríksiútvarpsins árið
1934 var þáttur um uppfinninguna
sjónvarp.
Æsispennandi setning Alþingis var fyrsta íslenska fréttamyndin.
Árið 1986, hinn 9. október, hóf
Stöð 2 starfsemi sína sem áskrift-
arstöð með ruglaðri dagskrá. Jón
Óttar Ragnarsson og Hans Kristj-
án Árnason hagfræðingur áttu
frumkvæði að stofnun stöðvar-
innar en Jón Óttar og Valgerður
Matthíasdóttir voru fyrstu árin
andlit stöðvarinnar.
Fyrstu helgarnar sýndi Stöð tvö
„myndrokk“ eins og Morgunblað-
ið kallaði það á þeim tíma, fram
eftir nóttu um helgar, og þótti það
mikil nýbreytni. Þær útsend-
ingar lögðust þó af þegar
stöðin hóf að senda út
barnaefni á morgn-
ana um helgar, fyrst
íslenskra sjónvarps-
stöðva. Stöðin naut
strax mikilla vin-
sælda og samkeppni
um dagskrárgerðar-
fólk milli stöðvanna
hófst, sem til þessa
tíma hafði ekki
þekkst á Íslandi.
- jma
Barnaefni sent út á
morgnana á Stöð 2
Stöð 2 sýndi tón-
listarmyndbönd að
nóttu til um helgar
árið 1986 sem
mörgum þótti góð
viðbót.
Jón Óttar
Ragnars-
son, ásamt
Hans
Kristjáni
Árna-
syni,
stofnaði
Stöð 2.