Spegillinn - 01.12.1947, Blaðsíða 23

Spegillinn - 01.12.1947, Blaðsíða 23
5PEGI LLI N N 2D3 ÖLFRUMVARPIÐ Allt frá upphafi Islandsbyggðar hefur ölið verið snar og merkilegur þáttur í þjóðlífi voru og bókmenntum. Þarf ekki annað en vitna í forn rit þessu til sönnunar og kemur í ljós við lestur þeirra, að öl hefur verið bæði bruggað og drukkið hér, alla þá stund sem landinn hefur nokkurs verið megnug- ur, en vitanlega hrakaði öldrykkjunni á mestu eymdarárum þjóðarinnar, þegar ekki fékkst korn inn í landið, nema þá maðkað eða ornað eins og sunnlenzk taða, hrakningssumarið 1947, sem lengi mun verða í minnum haft. Á söguöldinni virðast menn hafa haft góð tök á ölbrugginu, og eitthvað hefur Egill Skallagrímsson haft sterkara en það, sem nú er við hann kennt, þegar hann orti sum sinna ódauðlegu ljóða. Víða í sögunum er getið um ölheitur stórar, og þar af fljót- andi drykkjuskap, en það var gott við ölið, að menn drukku sig ekki dauða í því; miklu fremur að þeir drykkju aðra dauða, því að þegar menn voru orðnir vel þéttir, runnu upp fyrir þeim ýmsar misgerðir óvina þeirra, og þegar hugurinn var orðinn nægilegur til stórræða, fóru þeir að þessum óvin- um og drápu þá. Var þá alsiða, að annaðhvort vegandinn eða sá, sem veginn var, kvað vísu, — eru margar þessar vís- ur með miklum ágætum og verða væntanlega gefnar út, eftir því sem til næst, í skrautútgáfu, sem helzt ekki mætti kosta minna en 300 krónur og ætti að vera skreytt myndum úr septembersýningunni. I máli voru úir og grúir af orðum, sem á einn eða annan hátt eru mynduð af öli. Nægir þar að benda á Ölfusið, sem virðist ekki hafa verið skipað neinum gútta- pelum, þegar byggð var þar reist og sveitinni nafn gefið, enda hæg heimatökin að brugga við hverina, þar sem nú er kallað Hveragerði. Allt bendir til þess, að bruggunartækin hafi spillzt í jarðskjálftum, einhverntíma þegar Ölfusingar voru þeir armingjar að geta ekki endurnýjað þau. I fornu máli er talað um að vera ölfær, þ. e. vel þéttur, en þó fær allra sinna ferða. Einnig er getið um ölfangábragð, það var þegar menn fylltu náunga sinn og gerðu svo bisniss við hann; létu hann t. d. selja sér jarðarpart fyrir slikk eða uppáhalds- hestinn sinn fyrir aflóga móbikkju, en það gerði hann hins-

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.