Spegillinn - 01.12.1949, Síða 14
17B
SPEGILLINN
Undirbúningur er haíinn að mnri-
ingariundi Jóns biskups Árasonar
að Grýtu
ÖRFIRISEYJARVERKSMIÐJAN
mun kosta um 16 milljónir króna, segja fróðir aðilar oss. Með tilliti
til þess, að bæði ríki og' einstakRngar gætu með lagi notað fé sitt til
ýmislegs annars, stingum vér upp á, að Fjáransráð veiti nú þegar fjár-
leysingarleyfi fyrir upphæðinni.
í TILEFNI AF
kaffi-kviksögum um ýmsar óbilgjarnar kröfur af hendi forstjóra
Landsútgáfunnar h.f., hr. Jóns Leifs, gag'nvart franska félaginu, sem
ætlaði einusinni að kvikmynda Fjalla-Eyvind, hefur forstjórinn upp-
lýst oss um, að samningastrandið sé því að kenna, að Frakka skorti
listrænar forsendur til að geta leyst verlcið af hendi. Mega allir vel við
una þessa skýringu, bví að það er klárt, að Eyvindur má t. d. ekki
skella í sig einum apéritif með franskri etíkettu á flöskunni, áður en
hnnn fer að birkja klárinn í síðasta ]>ætti. Án þess að vér viljum neitt
lasta apéritiffinn, setur þetta stemn.inguna út um þúfur. Ennfremur f
grunar oss, að eitthvað hafi það verið í músíkinni, sem Gallar gátu ekki
alveg knúsað — sennilcga rímnastef með tilbrigðum.
FJÖGUR ÞÚSUND t
manns — sennilega með tuttugu þúsund á framfæri sínu — biða nú
eftir að fá síma, samkvæmt síðustu skýrslum. Út af fyrir sig er ekkert
við þetta að athuga, en hitt er merkilegra, að svonít fjölmenn stétt
manna skuli ekki hafa stofnað með sér félag og gengið í Alþýðusam-
bandið. Er ekki vafi á því, að FÓS (Félag Ófullnægðra Simanotanda)
cða NSN (Notum Síma Náungans) myndi verða boðið þar velkomið,
að minnsta kosti skatturinn af því, og hann mætti ákveða með rífara
móti með tilliti til þess, að meðlimirnir sleppa jú við öll símagjöld.
NOBELSVERÐLAUNIN
fyrir bókmenntir verða ekki veitt í ár, og stafar af því, að enginn
einn rithöfundur fékk nægan meirahluta við atkvæðagreiðsluna. Stóðu
annars góðar vonir til, að Halldór Kiljan Laxness fengi þau í þetta
sinn. Sennilega er hér um helberan klaufaskap að ræða. Hefðu velunn-
arar Laxnessar haft vit á að senda sænska akademíinu eintak af Lög-
birtingnum með uppboðsauglýsingunni, teljum vér, að öðruvísi hefði
farið. Rétt að muna það nænt.
NÆRINGARSÉRFRÆÐINGUR
cinn danskur hefur fundið það út, sð víkingarnir, forfeður vorir,
rem höfðu mikið orð á rér fyrir krafta — einkum ef þeir voru milli
hálfs og fulls — hafi fengið þessa krafta sína af því að éta lauk. Vel
getur þetta satt verið, en hugsa mætti sér líka, að óþefurinn hafi deyft
óvininn og cggjar hars. Svo fer fræðingurinn að tala um laukgavða,
sem einrkonar matjurtagarða, en anr.ars hefur orðið hingað til verið
talið merkja blómgarða yfirleitt.
RÚSSNESK BLÖÐ
fullyrða nú, að elzti maður heimsins sé Sovéttingur að þjóðerni, og
sé 140 ára gamall, samkvæmt kirkjubókum Sovéttprestakalls. Heitir
fírinn Mahmet Buzakov og er bóndi og framsóknarkommi, að svo miklu
leyti, sem hann skiptir sér af stjórnmálum. Drekkur sig fullan daglega
í þrælavodka og lemur þá kellingu sína — 117 ára — og stelpuna, dótt-
ur sína — 100 ára. Á 112 afkomendur, auk hálfrefa. Geta má þess i
þessu sambandi, að Sovéttsagnfræðirgar hafa nýlega sannað, að Metú-
calem, sem guð og menn vita, að varð 969 ái'a gamall, hafi einnig verið
Soyéttrík j abú i.
TVEIR MENN
voru nú drepnir suður á Malakkaskaga um miðjan nóvember, segja
blöðin oss. Ekki voru þeir nafngreindir, enda sennilega ekki neitt nafn-
kunnir. Sýna svcma fregnir átakanlega slappelsi blaðanna, að kosning-
um nýafstöðnum.
HLJÓÐFÆRALEIKARAR
hafa stofnsett ráðningarskrifstofu, til afnota fyrir stéttina. Vér hik-
um ekki við að fullyrða, að stofnun þessi hljóti að verða „öll hin þarf-
asta“ — svo marga af stéttinni höfurn vér hlustað á upp á síðkastið,
sem hefðu gott af að fá einhverja ráðningu.