Spegillinn - 01.12.1949, Blaðsíða 35

Spegillinn - 01.12.1949, Blaðsíða 35
SPEGILLINN 199 Rakarim lítið í gær. Hann gat ekki viðurkennt, að götuvitarnir væru beztu vitar í heimi eins og Víkverji héldi fram. Hann hafði verið að ganga eftir Austurstræti, var kominn að tóbaksbúð- inni London og ætlaði yfir að Reykjavíkurapóteki. Blöðin höfðu sagt, að ménn ættu alltaf að ganga á grænt ljós. Hann beið því þolinmóður, þangað til hann sá græna ljósið þarna fyrir handan á horninu hjá Pósthúsinu. En hann var ekki fyrr kominn út á götuna en lögregluþjónn kallaði heldur höstuglega á hann: — Hvað er þetta, sérðu ekki ljósið, maður? Rakarinn hörfaði tif baka. — Jú, ég sá einmitt ljósið. Á maður ekki að fara eftir grænu ljósi? — Nei, hér eigið þér að fara eftir rauðu ljósi. — Jæja, jæja, sagði rakarinn minn og vildi losna sem fyrst við lögregluþjóninn og hugsaði sér að fara yfir að Lands- bankanum. Hann sá einmitt rautt ljós á móti sér. En hann var ekki kominn nema nokkur skref út á götuna, þegar lög- regluþjónninn kallaði aftur: — Eruð þér vitlaus, maður? Sjáið þér ekki rauða ljósið? — Jú, en þér sögðuð að maður ætti að ganga á rautt ljós. — Skiljið þér ekki, hér megið þér ekki fara á rautt ljós. Hér eigið þér að fara á grænt ljós. — Já, en þér sögðuð áðan — — Þér eigið að fara á grænt ljós, þegar ég segi grænt ljós, annars á rautt ljós. Rakarinn minn snéri því við og gekk allan Rúntinn og komst svo sjö mínútum síðar að Reykjavíkurapóteki eftir Pósthússtræti fram með Hótel Borg. Rakarinn minn sagði í gær, að svo hefði hann farið að reikna þetta út sjálfur. Aftur stóð hann á horninu hjá tóbaks- búðinni London. Hann ætlaði yfir að Reykjavikurapóteki. Þá brann gult ljós — síðan rautt. Nú vissi hann, að hann mátti annaðhvort ganga á rautt ljós eða grænt ljós. Um að gera að reikna rétt út. Lögregluþjónninn tók í hann um dag- inn, þegar hann ætlaði að ganga á rautt ljós. En hvert var hann þá að fara — yfir að Landsbankanum eða apótekinu? Evrst hafði hann ætlað yfir að apótekinu. Það mundi hann. Þá mátti hann ekki ganga á rautt ljós. Bezt að bíða eftir grænu ljósi. Nú! Hann var kominn yfir á miðja götuna. Skyldi kallið koma? — Þér megið ekki fara yfir götuna, var kallað í óblíðum rómi að baki honum. Rakarinn minn hrökk í hnút. Þessu hafði hann búist við. Hann snéri aftur til sama lands. Þar stóð sami lögreglu- þjónninn og áður. — Hvað er þetta, maður? Getið þér aldrei lært að ganga yfir götu? — En sögðuð þér ekki, að maður ætti að ganga á grænt Ijós? — Nei, þér eigið að fara eftir rauðu ljósi í austur, en grænu ljósi í norður. — Já, einmitt. Rautt ljós í austur. Hann er kommúnisti, mannhelvítið, hugsaði rakarinn minn og fór sömu leiðina aftur, Rúntinn: Austurstræti •— Aðalstræti —- Kirkjustræti ftt/HH Aayíi — Pósthússtræti. Og þannig komst hann aftur að hinu lang- þráða Reykjavíkurapóteki. Síðan gengur rakarinn minn allt- af þá leið til þess að fara ekki á rautt Ijós, þegar hann á að fara á grænt ljós, og á grænt ljós, þegar hann á að fara á rautt ljós. — En hvað segið þér um stjórnarmyndunina? sagði ég' við rakarann minn til að skipta um umtalseíni. — Stjórnarmyndunina? Ég kalla þetta nú enga stjórnaf- myndun. Minnihlutastjórn gæti ég nú búið tíl sjálfur og þarf ekki Ólaf Thórs með fæturna upp á borði til þess. — Rækalli var Hermann óheppinn bæði með forsetakosn- inguna í Efrideild og nefndirnar — og stjórnarmyndunina, sagði ég. — Já, að minnsta kosti þótti Halldóri sálmaskáldi leiðin- legt, að kommúnistar komu Steingrími að sem forseta og felldu brennivínsforsetann. Kommúnistar gerðu Framsóknar- mönnum þennan óleik af skömmum sínum til að gera þá óvin- sæla og komu Steingrími að í hreinni óþökk við þá. Það er ekki fyrir endann séð á öllum skammarstrikum kommanna. Ég er líka að hugsa um að hætta að raka þá nema þeir hafi í höndum yfirlýsingu frá einhverri óíslenzkri nefnd um að þeir séu fallnir frá villu síns vegar. Það er ekki spaug að tapa af viðskiptavinum eins og Jóhanni Hafstein eða Sigurði mínum í Vigur. Hann kemur hér svo oft, því að hann er svo ungur og myndarlegur og tilhaldssamur. Og nú er hann líka orðinn forseti. Ég hef alltaf haldið upp á þann dreng, sagði rakarinn minn. — Finnst þér ekki, að forseti íslands hefði átt að bjóða Hermanni að mynda minnihlutastjórn á undan Ólafi? — 0, fjanda korninu. Það þýðir ekkei’t fyrir Framsóknar- flokkinn. Það getur enginn brosað út i bæði munnvikin í einu, þannig að hinir haldi, að maður brosi bara með öðru. Svo þýðir það ekkert fyrir Hermann. Hann fellir alla andstæð- inga sína á flokksfundunum á klofbragði, eins og hann skellti Vilhjálmi Þór á klofbragði á miðstjórnarfundinum um dag- inn. Ég veit ekki, hvort það er heppilegt fyrir svo sterka menn að mynda stjórn. Ekki er þó gott að menn veröi magá- veikir eins og Ólafur, þó að þeir eigi að mynda minnihluta- stjórn. Ég skyldi gera það í kaffitímanum og klippa jafn- marga þann dag sem aðra. — Það verður nóg að gera á Alþingi í vetur trúi ég, sagði ég. — Að minnsta kosti hjá Rannveigu og Kristínu með þjóð- þrifafrumvörpin. Kristín lék laglega á Rannveigu með heim- ilisvélarnar, en þá ætti Rannveig bara að fella frumvarpið til að geta komið með það sjálf seinna. Annað eins hefur nú einhverntíma skeð á Alþingi íslendinga. Annars hugði rakarinn minn, að cngin hætta væri á, að Rannveig næði ekki Kristínu. Meira spennandi verður að sjá, hver verður hlutskarpari í kapphlaupinu um að finna fjár- sjóðina til að borga brúsann. Einhver var að segja um dag- inn, að Rannveig hefði ætlað til Ameríku. Líklega hefur hún ætlað eftir leiðbeiningum Hermanns að finna fólgnu milljón- irnar. Og hvað getur Kristín þá? Álfur úr Hól.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.