Spegillinn - 01.12.1949, Side 19
SPEGILLINN
103
Jóla kvæði
„Kátt er á jólunum,
koma þau senn“,
með átveizlur og jólafrí
fyrir alþingismenn.
Og jólin koma með gjafir
eins og jólin eru vön.
Gjafirnar eru fjarska frumstæð
fjáraflaplön.
Maður gefur sínum náunga,
— nóg er nú til,
ist svo vera, er ið nýja þing var sýnu lakara en ið fyrra, og
vanfært til stjórnarfæðinga, þrátt fyrir kvennaval mikið, og
þó fullgamalt til slíkra hluta. Var beztu mönnum falin stjórn-
artilbúningur, og fór hér sem fornar ritningar mæla, að ið
bezta er ekki ofgott. Brá þó Óláfur Þórs sér í tveggja kvik-
enda líki, en Hermann áðurnefndur í eins. Stóð lengi í þófi
þessu og varð árangurinn að lokum með inum mestu endem-
um. Fussa Bretar við íslenzkum fislci og kaupa inn bezta við
ofurlágu verði en fleygja hinum á hauga út. Berast hingað út
nokkrar birgðir skemmdra epla frá Vallandi sunnan, skyldi
greiðsla fara fram í hrossum, og tók langan tíma að skemma
hrossin svo að sanngjarnt mætti telja. Dvöl Daða vestra, með
sameinuðu þjóðunum, en hann sameinar þær enn betur en
áður vóru þær, er allar hafa eitt álit á fréttaflutningi hans.
Landsfundur ungmennafélaga að Hveragerði. Sá ekki drykk
á nokkrum manni, en nokkrir vóru þó teknir og pokaðir, fyrir
varúðar sakir og það með, að pokarnir höfðu verið keyptir
afarverði og óttuðust fyrirmenn ákúrur, ef slíkir dýrgripir
yrðu eigi notaðir. Innstiftaðir götuvitar á strætum Reykjar-
víkur. Lýsa þeir með aðskiljanlegum litum og auka villu og
svima vegfarenda.
bæði Helgafellsbækur
og heimilisspil.
„Kátt er á jólunum,
koma þau senn“.
Upp líta framsýnir
fjáraflamenn.
Upp líta fjárplógsmenn,
fýldir á brá;
því hér er komin Rannveig
til að rassskella þá.
Hjá kvenfélagi sósíalista
er sorg og örvænting;
— það er af því hún Katrín fröken
komst ekki á þing.
„Kátt er á jólunum“,
nú koma þau brátt.
Mér finnst bara alveg voðalegt,
hvað fólkið á nú bágt.
Fjandinn hafi, að sumir eiga
föt til að klæðast í.
En nú ætlar liún Rannveig mín
að ráða bót á því.
Sumir búa í stafninum,
en aðrir aftur í skut.
Eg ætla að biðja liana Rannveigu
að rétta þeirra hlut.
Bráðum koma jólin
með brennivínstár.
— Hvernig skyldi séra Bjarna
segjast í ár?
„Kátt er á jólunum“!
— tra la la, la.
Og kannski messar biskupinn.
Halelúja.
Fjárplógsmenn og heildsalar
ferðast heims um ból.
Hvernig geðjast þér gjafakornið?
Gleðileg jól’
Dóri.
TÍMINN
virðist vera alveg í vandræðum með að lóga sauðfjárrtofni lands-
manna, þar sem hvorki fáist fjárskot né eitursódi. Væri ekki reynandí
að gefa hinum dauðadæmdu sauðskepnum Samsölumjóik með hæfilegu
skítalagi á flöskubotninum?