Spegillinn - 01.05.1954, Blaðsíða 17

Spegillinn - 01.05.1954, Blaðsíða 17
SPEEILLINN 77 Það mun víst vera tízka um heim allan og ekkert sér- kenni á íslenzkri menningu, að þegar allt gengur sem mest á tréfótunum er mest um stofnanir nýrra félaga, og vitan- lega er þetta ekki nema rökrétt að menn geri sér þá ljós- ara en ella nauðsynina á að lijálpa hverir öðrum. Líka gæti það verið vorinu að þakka, með tilheyrandi vorúða, að undanfarið hafa nýjar félagastofnanir gengið yfir þjóð vora eins og skriðufall, en annars skiptir ástæðan engu máli: aðalatriðið er hitt, að félögin séu stofnuð og komi í útvarpinu, með nefndum nöfnum þeirra, sem eru svo lukkulegir að komast í stjórn („en liana skipa I síðasta blaði voru var bent á hættuna, sem félag ein- söngvara gæti haft í för með sér fyrir einsöng í landinu, en sem betur fer er ástandið ekki eins slæmt í öðrum nýjum félögum, svo sem félagi sálfræðinga, sem nýlega hefur verið stofnað. Þó er sá gallinn á því félagi, að stjórn þess hefur ekki komið í útvarpinu, og bendir til þess, að sálfræðingar séu yfirlætislausir menn — eins og vér reyndar vissum áður, af ýmsum dæmum. Eða það gæti þýtt það, að félaginu hafi ekki lánazt, enn sem komið er, að kjósa sér stjórn og þurfi kannske að efna til nýrra kosninga, eins og í Kópavogi. Einnig hefur verið stofnað fyrir skemmstu félag leik- húsgagnrýnenda, og satt að segja er alveg óskiljanlegt, að slíkur félagsskapur skuli ekki vera kominn á fyrir löngu. (Sumir vilja nú halda því fram, að eftir krítíkunum að dæma, hljóti liann að vera kominn á fyrir löngu). I þessu félagi eru inntökuskilyrði allhörð, svo að ekki getur hver ótínd blekblók vaðið þar inn með skítuga skóna. Verða menn að liafa stundað gagnrýni um alllangt árabil og með góðum árangri, til þess að vera þarna hlutgengir og enn harðari eru skilyrðin til þess að komast í stjórn. Merkasta félagið var þó stofnað á föstudaginn langa — og sennilega engin tilviljun, fremur en liitt, að lýðveldið var stofnað 17. júní. Það er félag fyrrverandi ofdrykkju- manna. Það virðist liafa ýmsa kosti fram yfir stúkurnar, t. d. eru þar engin félagsgjöld og þar af leiðandi engin fjármál og ekkert svindl, engir nýir eða gamlir dansar og þar af leiðandi enginn Freymóður. Einkum þetta síðast- nefnda getur gert þennan nýja félagsskap skeinuhættan gömlu reglunni, sem annars má ekki við miklu á þessum síðustu reynslu- og umbrotatímum. Þeir bjartsýnustu í þessum nýja félagskap hafa jafnvel verið að 'athuga þann möguleika að leggja undir sig félögin, sem áður voru nefnd og efla þannig aðstöðu sína á sem flestum sviðum, en eink- um leikur þeim þó hugur á að gera frímúrara og oddfellóa að fyrrverandi drykkjumönnum. Annars er félagsskapur- inn nú svo ungur enn, að ekki er von, að hann liafi enn markað nein varanleg spor í þjóðlífinu — en þetta kemur með tímanum. Sagt er, að liinn nýi fjármálaráðherra vor líti allar þessar félagsstofnanir hýru auga, uppá skattlagningu til að gera, og mjög að vonum, því að. þarna gæti verið upplagður tekju- stofn fyrir ríkið, en um slíka stofna vanhagar það jafnan. En þar sem flest félög eru oftast á hausnum, hefur komið fram tillaga um að efna til merkjasölu til þess að standast kostnaðinn. Stendur ekki á neinu nema því að finna dag í almanakinu, sem ekki er þegar undirlagður þessari starf- semi. Á HEIMDALLARFUNDI um handritamálið, fyrir skemmstu, lét Guðmundur G. Hagalín rit- höfundur svo um mælt, að hann gæti ekki hug-sað sér að stíga fæti inn í Árnasafn, eins og nú er að því búið. Sló óhug á alla fundarmenn við þessi orð skáldsins, er þeir sáu fram á, að með þessu móti gæti orðið tekið fyrir ritstarfsemi höfundarins framvegis, þar með síðara bindi af ævisögu Þórðar hreppstjóra, sem menn höfðu einkum beðið eftir með óþreyju. FANGAHÚS er nú risið í Borgarnesi, lesum vér í blöðunum, og er því bætt við, að þetta sé hið mesta hagræði fyrir Borgnesinga. Vér samgleðjumst Borgnesingum með þennan nýja túrista-trekkplástur og vonum, að þegar svo nýi Laxfoss er kominn í viðbót, verði þeim léttara undir fæti í baráttunni við Akurnesinga um túristasálirnar. Gefið með annarri liendi - tekið með hinni I»að var ekki lcngi að koina á daginn, sem spáð haiði Verið hér í blaðinu i sambandi við skattalækkmi rikisst jórn- arinnar, að liún myndi ná eftir oðrum leiðuni |n í litla, sem hún fórnaði með breytingunum á skattalogunum.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.