Spegillinn - 01.01.1957, Blaðsíða 13

Spegillinn - 01.01.1957, Blaðsíða 13
5PEGILLINN 11 Gleðilegt ár. Nú er nýtt ár byrjað. Megi það verða oss öllum gott menningarár. Þrátt fyrir ýmsar blikur er ég bjartsýnn. Við erum svo gáfuð þjóð og okkur tekst jafnvel að leysa hvert vandamálið öðru vanda- samara. Og ekki dregur það úr, að nú er Helgi okkar Sæm. orðinn réttur maður á réttum stað í önd- vegi æðstaráðs menningar vorrar, sem — þrátt fyrir ýmislegt — hef- ur oft gefið góða raun. Listir vor- ar munu blómgast áfram þetta ár. Bráðum kemur Valtýr frá París með nýja abstraktlínu, reglulega gróandakraftlínu, þar sem sú gamla er dulítið farin að trosna og gæti slitnað, ef eitthvað óvænt reyndi á. Jón Leifs mun fara á einhver alþjóðatónlistamót, enda mun hann enn vera í æðstaráði alþjóðatónskálda æðri tónlistar og þarf þá engu að kvíða í músikinni. Rósinkranz fer að sjálfsögðu út til að velja eitthvað við okkar hæfi og máske Vilhjálmur verði svo vænn að skreppa og kynna sér útvarps- rekstur með menningarsniði. Ár- bók skálda kemur vonandi út áð- ur en jólabókasölunni lýkur og í listrænni kápu, hvernig raun sem innihaldið kann nú að gefa. Sendi- nefndir munu vonandi fara utan á ýmis menningarmálaþing, sem áð- ur hefur tíðkast og góða raun gef. ið. Ætti að veita undanþágu frá hinum nýju sköttum, er svo brýn erindi eru, því ekki er það virðingu vorri samboðið, sem menningar- þjóðar, að ofskatta andleg verð- mæti. Innanlands mun gefa bezta raun, að fara millifærsluleiðina í enn ríkari mæli en áður. Leikhús Þjóðarinnar og sinfónía landsins þurfa að ferðast oftar og víðar en áður um byggðir landsins og stuðla að Jafnvægi. En þá þarf fleiri félagsheimili, sem verða menning- armiðstöðvar framtíðarinnar, þar sem unga fólkið getur unað glatt við skikkanlega tómstundaiðju milli áðurnefndra heimsókna. — Jafnframt þarf svo vitanlega all- marga leikvanga og ætti höfuð- staðurinn að halda áfram að vera fyrirmynd á því sviði, sem öðrum, og leggja elleftu milljónina í sinn með vorinu. Svona mætti lengi telja. Störfin bíða og nú byrjum við með hálfu meiri krafti en um sama leyti í fyrra. í annað sinn Ég held að prentvillupúkinn ætli að verða einskonar „Ongull í tím- anum“ í pistlum mínum. Ekki var ég fyrr búinn að láta hann éta ofan í sig, eftir beztu forskriftum, í síðasta blaði, en hann fer aftur á stúfana með hausavíxlun, sem alls ekki getur gengið. Guðmundur er stór og þrekinn naturalistiskur karl (og ku næstum vera hinn út- valdi listamaður ríkisins), en Guð- munda er lítil og nett abstrakt kona (sem hvergi er getið í fjár- lögum) og verk þeirra tala greini- lega ólík tungumál. (Að vísu eru bæði hinir ágætustu listamenn og hafa skrif þar uppá. Hann t. d. frá t/þA-Ð £R AIV£& f(L ART A& hAnk ER ElNN A£ 0S$" samkvjrint þv> er fi:!!tru> Þjóð varnar i bæjarstjórn „einn af oss‘ og samkva’nit lögiegu marki og ancia öllurn umsviíalaust dreginn 1 rhaldsdilktnn Hefir heldur eng inn gert þrætu út af þvr og mun urskurður retlavstjorans gilda um markió. ( T/ M'MM)

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.