Spegillinn - 01.01.1957, Blaðsíða 15

Spegillinn - 01.01.1957, Blaðsíða 15
SPEGILLINN 13 „HVA&BI6LH VlO AO Cr£AA VlQ H Blv " " V r i'€TLl VfcRl EKKl ÞJOðHAÐ AO HÆKKA SVOLITÍÐ 4 -Lví SkATTA/VA T »Hels)úht« eínihðgs- if i lÉnöhðndiim síðan hefir þjóðin beðið eftir þeim skurðaðgerðnm, er boðaðar böfðu verið á binum belsjúka sjúklingi. En hvcrjar eru svo læknisaðgerðirnar nema þær, sem áður bafa t>ðk- zt? 05LENDiN6-Utó ) leysi, en aðrir töldu að fleira kæmi til. Þegar inn til hans var komið fór ekki milli mála, að vinstra megin hafði hann abstraktverki sára, en hægra megin einskonar naturaliska gigt, er grasseraði útí Danmörku í dentid og svo þreyt- andi verk í endanum. Þótti nú mörgum sjúklingurinn orðinn dauf- ur í dálkinn og miður sín, ekki ó- svipaður gamanþætti á gamlárs- kvöld, og féllu heimsóknir til hans að mestu niður, en það er illa farið, þar sem hann getur verið skemmti- legur og fróðlegur, ef heilsan er góð og einhver björg í búi. Það mun því margan gleðja, að nú munu raunhæfar aðgerðir til úr- bóta hefjast. En þar sem ég vil ekki láta mitt eftir liggja vil ég benda stjórn líknarfélagsins á — sem mun þó vera hreinn óþarfi —, að suður í París er kona ein fjöl- vís er Denise René heitir, og þar sem hún mun vera góðsöm og greiðvikin við bágstadda, væri ráð að leita ráða hjá henni hvernig ]iressa megi sjúklinginn. Polka d’ Islande Alltaf eru listamennirnir að ríf- ast, eða einhverjir fyrir þeirra hönd. Ég hef haldið að þetta kynni að saka sjálfa listina, sem auðvitað er hættulegt, en nú er ég ekki viss um það. Mér þótti því leiðinlegt þegar Nokkrir höfundar gerðu harða atlögu að Freymóði og vildu troða niður af honum Akranes- skóna, er að þeirra áliti höfðu hlot- ið (silfur) verðlaun fyrir pretti og reglubrot í veigamestu listkeppni ársins. Urðu þá vitnaleiðslur í blöðum og hallaði á Nokkra höf- unda. En nú hefur Freymóður flett rækilega ofan af þeim og unn- ið móralskan sigur, sem vænta mátti. Þessir Nokkrir höfundar var bara Einn höfundur margfaldaður með óþekktri tölu og hafði einu sinni kompónerað polka, er hann nefndi Polka d’ Islande, en svoleið- is óþjóðlegheit eru ekki í Freymóðs anda og passandi texti fyrirfinnst ekki hjá Einari Ben. Ekki er það ljóst, hvort það var þessi franski polki, sem Einn höfundur kom með til Freymóðs í örvinglan sinni og bað hann yrkja texta við, svo hægt væri að dansa eftir honum. En Freymóður varð við bóninni þar sem hann er maður greiðvikinn og hagur jafnt á ljóð sem lög, en finnst nú að vonum fleiri launa ofeldi illa og sjaldan en kálfarnir, svo ekki hefur ljóðið verið lélegt, ef til ofeldis má telja. Það er ekki útilokað að listamannarifrildi geti verið jákvætt og oft sjálfstætt listaverk og þá um leið menning- arverðmæti. Kibbi. — Er nokknrt gagn í þessu liárvaxtar- meðali. — Hvort það er! Ég vætti greiðuna mína í því í vikunni sem leið, og nú er liún bursti. —o— — Það er naumast þú ert orðinn sól- brenndur. Hefurðu verið í sumarfríi? — O, sei sei nei. Vaskurinn heima lijá mér stendur bara undir suðurglugga. —o— Skipið kom í höfn og allir liásetarnir fengu landleyfi nerna einn. — Hvað geng- ur að þér? spurði stýrimaðurinn, — ert þú sá eini, sem ekki á konu hér? — Þvert á móti. Ég er sá eini, sem á konu hér.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.