Spegillinn - 01.01.1966, Page 5

Spegillinn - 01.01.1966, Page 5
jT Aramótabrennur—fískibatabrennur Svo sem venja er, voru fjölmargar myndarlegar brennur í Reykjavík og ná- grenni um áramótin, og furðuðu margir, er sáu bállæstina, sig einkum á því, hve margir fiskibátar voru dregnir í þá. Ekki er þó að efa, að kopparnir hafi logað vel, auk þess sem þeir gáfu köst- unum tignarlegan svip. Og er ekki bara blátt áfram álitamál, hvort nokuð betra verði við fiskiskipastól okkar gert en nota hann í áramótabrennu, a. m. k. það af honum, sem ekki er hægt að selja frænd- um vorum, Færeyingum. Slíkt mundi létta þungu fargi af sjávarútvegsmála- ráðherra vorum, sem um hver áramót verður að finna upp ný og ný bjargráð til handa útgerðinni, og standa í smá- skítapexi um fiskverðið. Kannski segja einhverjir, að við verðum að gera út til þess að veiða fisk oní’ okkur að éta. En vér bara spyrjum: Færi ekki nógu Vel á því að fytja inn fisk til manneldis, t. d. frá Færeyingum, Noregi eða Dan- mörku með öllu kexinu, sem oss berst hvaðan æva að, svo og dönsku jólakök- unum og súkkulaðitertunum, sem kváðu vera eitt nýjasta og gleggsta dæmið um hugmyndaauðgi innflytjenda og frábæra yfirstjórn innflutningsmála vorra. S p e g i II i n n 5

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.