Spegillinn - 01.01.1966, Blaðsíða 26

Spegillinn - 01.01.1966, Blaðsíða 26
vera í fvlu frá því á Þorláksmessu, þeg- ai In'ui vissi, að hún hafði engan vinn- ing lengiff neinu af happadrættunum. ,,Ö blessaður öðlingurinn," hrópaði Sigga upp yfir sig, þegar ég sagði henni tíðindin. „Að ég skyldi nú aldrei fara með kaffi og kökur til hans öðru hvoru eins og mér var oft búið að detta það í hug“. Sigga hefrr svo sem líka verið aö tala um að reisa minnisvarða um hann Guð- mund Jónsson. Maður skyldi annars aldrei fúlsa yfir góðum draumi. Tóti. Billegur helgidómur Nýjustu fréttir af viðskipt- um Þórðar á Sæbóli og Sigur- geirs fógeta eru þær, að Þórð- ur liefur nú verið dænulur í tvö þúsund og fimm hundruð króna sekt fyrir að höndla á föstudaginn Ianga og páskadag Ekki er oss kunnugt um að gengi krónunnar standi með neitt meiri blóma f Kópavogi en annars staðar á landinu og þykir oss sektin næsta smáskít leg. Og ef helgi nefndra hátíð- isdaga er ekki nema tvö þús- und og fimm hundruð króna virði að mati færustu manna, sýnist oss varla taka því að hafa þá i helgra daga tölu ieng ur. Styrkir þetta lága mat á hátíðleika langa frjádags þann grun, sem vér höfðum raunar lengi alið með oss, að vér sé- um á hraðri leið yfir í heiðin- dóminn aftur. Gólfteppa- þvottalögur UMBOÐTMENN KRISTJÁN Ú. SKAGFJÖRÐ H.F. REYKJAVIK Ferðamcinnalandið Látrabjarg Komið hefur fram athyglis- verð hugmynd um að gera Látra bjarg að eftirsóttum ferða- mannastað.. Verður þá ekki amalegt að sjá enska lávarða siga 'i bjargið til fuglaveiða, með harðan hatt, einglyrni, yfirskegg og harðan flibba, i sjakket, rönd óttum buxum og legghiifum, með kíki, ljósmyndavél, hagla- byssu og veiðistöng. Líknarstofnun — eða hvað Sézt hafa útfararauglýsingar, hvar I stendur: „þeir, sem vilja heiðra minningu hins látna eru beðnir að minnast Hallgrímskirkju eða líknarstofn ana.“ Manni gæti dottið 1 hug, að aðstandendur væru í nokkrum vafa um, að kirkjuskrokkurinn á Skólavörðuholtinu sé líknar- stofnun. Var það furða! Hið dýrmæta bland 1 stórmerkri grein á öðrum stað i biaðinu er borin fram sú athyglisverða tillaga, að drykkju menn eða tcmplarar sæmi Bjöm í Kókinu heiðursmerki sínu fyr- ir að hafa lengi skaffað þeim hollt og bragðgott bland í görótta drykki. S p e g i 11 í n n 26

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.