Spegillinn - 01.01.1966, Blaðsíða 12

Spegillinn - 01.01.1966, Blaðsíða 12
i „Ella kemur r í l r // i tebruar sagði Vísir hann 12. janúar, og á þar auðvitað við Ellu Fitzgerald. Hún er komin af táningaaldri, en er eigi að síð- ur aufúsugestur, sem mótvægi í öllu bítlafarginu. Oss er tjáð, að Ella sé svaka skvísa, eitthvað talsvert yfir tvö hundruð pund brjóstmál gífurlegt, mjaðmir talsvert yf- ir meðallag, aldur óákveðinn. Vér efum ekki, að Ella mun ylja landsmönnum um hjartarætur — með sinni hljóm- fögru rödd. Spegillinn býður Ellu velkomna. ÓVENJULEG 1 blaðafréttum lesum vél, að Einar Ingimundarsoi, hinn ný- skipaði bæjarfógeti í Hafnar- firði, hafi afsalað sér þing- mennsku, frá fyrsta febrúar. HÆVERSKA Fyr má nú vera hæverskan, segjum vér. Það er sannarlega ekki á hverjum degi, sem mað- ur fréttir um virðulegan em- bættismann, sem hafi afsalað sér þokkalegum bitlingi. Og ekki minnir oss að hann Guðmundur 1. hafi verið að afsala sér einu eða neinu, og hafði hann þó orð ið talsvert margt á sinni könnu. Reyndar voru nú „settir" menn fyrir hann til að gegna sumum embættunum hans til bráða- birgða. Varla fréttnæmt Vísir fræðir oss á þvl, að gríski skipakóngurinn Stavros Niavolios eyði hveitibrauðsdög- unum með fyrri konu sinni, en láti núverandi konu sína, sem kvað vera ófrísk, bíða heima all- an daginn. Það er nú svona rétt á mörk- unum, að oss finnist þetta frétt, hvað þá rosafrétt. Ef manntetrið hefði látið vera að skila sér heim á kvöldin og eytt nóttun- um með fyrri konunni hefði málið horft öðru vísi við. Vér hefðum jafnvel verið til með að hneykslast dálítið á þess hátt- ar líferni, þótt vér verðum ann- ars ekki uppnæmir fyrir smá- mununum, sízt í þessum efnum. Heiðarlegur stjórnandi I Mogganum lásum vér á dögunum, að Balewa, forsætis- ráðherra Nigeriu, hefði verið heiðarlcgur og verið virtur stjórnandi. Dettur oss sízt í hug að rengja það. En það er helzl á kollega vorum, Mogganum, að skilja, að honum þyki þetta mikil og einstæð tíðindi. Gæti það bent til þess, að hér séu heiðar- legir stjórnendur fremur sjald gæft fyrirbæri, eða þá að koll ega vor sé að gefa í skyn, að stjórnendur hér séu fyrir ann að meira virtir en heiðarleik- ann. S p e g i 11 i n n 12

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.