Spegillinn - 01.01.1966, Page 7

Spegillinn - 01.01.1966, Page 7
Fugl mánaðarins Morgunblaðið birtir þriðjudaginn 18. janúar „Fróðleiksmola til gagns og gam- ans“, öð-ru naíni „Kviksjá", og segir þá m.a.: ..... t.d. hefur dr. Sigurður Þórar- insson kornið 97 sinnum til eyjarinnar, síðan hún skaut upp kollinum. Allir fylgdust spenntir með því á hvern hátt líf mundi taka sér bólfestu á eyjunni. Fyrst kom þangað einmana máfur til þess að hlýja sér á fótunum á hinu hlýja yfirborði eyjarinnar. — Seinna komu fleiri máfar,...., — Ha, menningarsviðinu segirðu. Ég er nú ekki sérlega kunnugur þar. Ekki beint rnitt svið, góurinn, þó líkast til fari nú einhverjir aurar frá okkur út- gerðarköllunum til menningarinnar, sem Jjeir kalla svo, ef brennivínssektir og smygl hrekkur ekki til. Jú, við höfurn skipzt á menningar- fulltrúum við Færsana og er gott til að vita, því það hefði ekki alltaf verið beysin útgerðin mín og annarra, ef frændurnir hefðu ekki komið til og hjálpað upp á sakirnar. Við sendum út Ása í Bæ, bæ jarskáld okkar, formann og fyrrverandi útgerð- armann, en þeir sendu káfúmmann og sjóara, sem reyndar hafa þann stóra feilur að drekka mikið brenndavín, eins og þeir segja, en allt þetta getur komið sér vel fyrir ríkiskassann okkar, ha? — Já, ég skil, segi ég og geri mig skilningsríkan í andlitinu. Ási hefur sum sé verið sendur sem ukkar eina skáld? — Nei, blessaður vertu, það er svo- leiðis skal ég segja þér — yður vildi ég sagt hafa, að Ási er nebbnilega skáld, en hann er líka fyrirtaks formaður og fyrr rneir útgerðarmaður. En svo fór hann yfrum með allt draslið. Og þetta þótti svo mikið fenómen eins og þeir segja fyrir sunnan, sko, eftir að við út- gerðarkallarnir hættum að standa á eig- in fótum, að LÍÚ-ið okkar og TÍtvegs- bankinn buðu Ása til veturvistar í Fær- eyjum til þess að skálda þessa stórmerki- legu útgerðarsögu, sem verður gefin út á forlagi bankans. Og líklega verður Ási doktór eða hvað það nú heitir og alveg áreiðanlega margmilljóner á útgáfu bóksögu sinnar. Það er nú það. Ég var ckki svona heppinn í minni útgcrð. Jæja, lasm., ég er búinn að éta þetta snarl hans Tolla og má ekki veri að þessu lengur. Ég er barasta að kjafta af mér allt lag. — x x S p e g i 11 i n rt 7

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.