Spegillinn - 01.01.1966, Side 8
ÚR KRUKKSPÁ1966
— Þjóðin mun enn búa við Viðreisn,
þar eð annað betra hefur eigi verið upp
fundið. Skattar munu hækka að krónu-
tölu, en lækka hlutfallslega að sögn ráða-
manna. Barlómur mun vart minnka,
enda hagur manna sízt verri. Verkföll
munu vart með minna móti. Gamlir og
nýir atvinnuvegir munu blómstra að
venju. Meðal nýrra atvinnuvega má
nefna bruggun sterks öls, en sú fram-
leiðsla mun hasla sér völl á erlendum
markaði, svo mjög, að annar bjór mun
vart verða drukkinn, ef íslenzkur mjöð-
ur er fáanlegur. Tegundirnar Egill
sterki og Pétur sjómaðui verða því bet-
ur þekktir og eftirsóttari en Carlsberg
og Tuborg. Þessar tegundir munu bók-
staflega flæða yfir heiminn og ná meiri
útbreiðslu heldur en íslenzkur fiskur. Ut-
flutningur sterks öls mun þegar á þessu
ári fyrirsjáanlega verða stærsta útflutn-
ingsgrein landsmanna. Sameinaða gufu-
skipafélagið mun leggja niður ferðir sín-
ar Kaupmannahöfn—Reykjavík vegna
vandræðaástands, sem skapast við til-
raunir áhafnarinnar á m/s Prins Fredi-
rik að smygla íslenzkum bjór til Kaup-
mannahafnar.
Loftleiðahótelið mun vígt með pomp
og pragt, og ennfremur Höllin í Laug-
ardal. Gleðilæti og fögnuður munu í
meira lagi. Áfengi mun þó ekki verða
veitt við vígslur þessara bygginga, og
eingöngu skálað í mjólk. Mun sumum
finnast það kisulegt.
Sjónvarpið mun verða tekið í notk-
un við hátíðlega athöfn, og mun fyrsta
útsendingin sýna þá bræður Gylfa
menntamálaráðherra og Vilhjálm út-
varpsstjóra, takast í hendur og óska
hver öðrum til hamingju með sjónvarp-
ið, en báðir munu þeir í ræðum sínum
óska þess að landsfólkið hafi gagn af.
Vandræðaástand mun víða skapast á
heimilum og verða af hark mikið, svo
að lögregla verður að skerast í leikinn,
þar sem fólk er ekki á eitt sátt, hvort
horfa eigi á Sjónvarp Keflavík eða Sjón-
varp Reykjavík. Telja sumir, að þetta sé
vottur þess að þjóðerni vort hafi ekki
glatazt við amerískt sjónvarp, því að
þar sem deilur hafa upp komið, hafi
bólað á hinum sanna, forna víkinga-
anda.
Lögð verða drög að því að steinsteypa
nýja leið milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar, og er gert ráð fyrir að skýli það
er innheimtumenn vegaskattsins eiga að
nota, sé byggt úr járnbentri steinsteypu
og því eldtraust og skothelt.
Sjálfstæðisflokkurinn mun hefja bar-
áttu fyrir einkaframtaki.
Bandaríkjastjórn mun kvarta við ís-
lenzku ríkisstjórnina um að bandarískir
hermenn í Keflavík hafi orðið fyrir ís-
lenzkum áhrifum.
íslenzkt landslið í knattspyrnu mun
vinna erlent lið með glæsibrag.
Templarar munu gera Coca-Cola-
Björn að heiðursfélaga vegna framlags
síns til bindindismála, en hann er tal-
inn hafa framleitt hollast bland um ára-
bil.
Leiklíf mun mcð miklum blóma og
mun Eysteinn Jónsson hljóta Silfurlamp-
ann fyrir leik sinn í „Farið hina leiðina“.
Hagur ríkissjóðs mun versna stórlega
vegna þeirra síendurtekinna ákvarðana
Magnúsar frá Mel að loka áfengisverzl-
uninni fyrirvaralaust fyrir hátíðisdaga.
Vegna þess arna er almennt kvartað
yfir auknum skorti á smygluðu áfengi.
Halldór Laxness mun hefja kennslu
í „kúltúr“ hjá Bréfaskóla SÍS.
Hjónaband Kristmanns mun „blíva“
allt árið.
Kaupmenn munu kvarta yfir hárri
álagningu.
Alþingismenn munu gefa eftir þriðj-
ung launa sinna til að mögulegt verði
að hækka laun lægst launuðu verka-
manna.
Innflutningur nýrra fiskiskipa mun
verða bannaður vegna þeirrar þenslu í
viðskiptum innanlands, sem auknar
fiskveiðar skapa.
Ný reglugerð um brunavarnir munu
taka gildi og verður heimilað að slökkva
eld í húsum, jafnvel í Garðahreppi.
Bankarnir munu sameinast um að
kaupa jólatrés-ljósaseríur og hengja yf-
ir Austurstræti til skreytingar fyrir næstu
jó! Dr. Jóhannes Nordal mun kveikja
á ljósunum fyrir hönd bankanna og færa
þjóðinni að gjöf. Ljósin munu eiga að
verða táknræn, þ. e. vera þjóðinni hið
sanna fordænú með hegðun sinni og
hyggindum.
Að framansögðu athuguðu máli er
bersýnilegt, að þetta mun verða eitt hið
bezta viðreisnarár.
Astronom.
FRÍSTUNDA 8ÚÐIN SP™«
VELTUSUNDf 1
HVERFISGÖTU 59 — SÍMI 18722 — SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT
S p e g i II i n n 8