Spegillinn - 01.01.1966, Síða 15
og danskan pilsner við þorstanum, svo
þeir voru matarræðislega sæmilega und-
ir leikinn búnir. En nú var það dóm-
arinn, sem hrjáði þá, og eiginlega
dæmdi af þeim meira en verðskuldaðan
sigur, því danska liðið var í rauninni
allt of lélegt til að tapa fyrir því, að
sögn formanns landsliðsnefndar. Vér
leggjum því eindregið til, að framvegis
hafi landslið vort með sér dómara, auk
nestisins, þegar það fer utan til keppni.
Sem sagt: í Nýborg voru landar vorir
áreiðanlega betra liðið, en dómarinn
var hlutdrægur. Það er ekki ein báran
stök! Auðvitað voru strákarnir (þ.e.
landar vorir) sáróánægðir með leikinn
og höfðu varla lyst á Tuborg og Carls-
berg að honum loknum, hvað þá ramm-
ari veigum. Þannig var utanferð lands-
liðs vors í handknattleik ein samfelld
hörmungasaga að þessu sinni, og virðist
andstætt, að það verði að taka upp nýj-
ar þjálfunaraðferðir strax. Þarf sú þjálf-
un að miðast við, að liðið sé jafnan
reiðubúið að mæta bæði austrænni
hótelskítalykt, hungri og þorsta (liðið
má ekki dreypa á bjór fyrr en í leiks-
lok), súrefnistapi lungnanna, og orku-
tapi skrokksins, ranglátum dómurum og
olnbogaskotum andstæðinganna.
Vonum vér, að brugðið verði skjótt
við og þjálfað af kappi fyrir næstu
landsleiki. Það er alveg ófært að „betra
liðið“ tapi vegna einhveria annarlegra
ástæðna, alltof oft þegar landar vorir
heyja landskeppni í boltaleik.
Sportmaður.
Dómarar geta alveg eyðilagt leikínts.
EFTIR-
BREYTILEG
MÁLARA-
LIST
Mogginn átti um daginn eitt
af sínum kjarnyrtu og inni-
haldsríku viðtöium við konu
nokkra, sem hafði þá um það
leyti haft einhverja sýningu £
málverkum, sem hún hafði bú-
ið til sjálf. Kom hún til dyr-
anna eins og hún var klæd og
kvaðst hafa iært mest lítið tii
þessarar kostnaðar
Athyglisverðast i samtalinu
var þó það, að hún og systir
hennar hcfðu fyrir alllöngu
tekið sér íbúð saman. Þótti
þeim veggirnir auðir og tómir
og byrjuðu þá að mála lands-
lag beint á veggina
Vér leyfum oss að benda
klessumálurum á þetta. Fáið
ykkur stóra ibúð, piltar, helzt
gluggalausa. Kaupið ykkur
Hörpusilki og gólfkústa og
máliö síðan fannen í voll...
En þið verðið að láta þar við
sitja. Þið inefdö aldrei svna
utan húss.
Þjóðin yrði areiðanlega
sælli, ef þetta yrði svona. Og
aimcnningur mundi mcð glöðu
geði borga slíkum „iistamönn-
um“ næga ölmusu, þ.e. styrki
til að þeir gætu lifað án þess
að troða klessuverkum sínum
upp á saklausa skatthorgara.
KOSNINGA-
SKJÁLFTI
Fyrir jólin var tekinn i brúk
un nýr harnaskóli vestur á
Snæfellsnesi. Slíkt hefur ekki
verið talið til stórtíðinda. En
hvað gerist nú? Við skóla-
vígslu þessa snjóar að stór-
menni, t.d. tveimur ráðlierrum
að visu var fjármálaráöherra,
sem á að borga brúsann, þar
ekki. Hins vegar forsætisráð-
herrann. Sandur af þingmönn-
um og frambjóðcndum.
Missýnist oss það að til-
stand þctta sýni, að kosning
a r séu í nánd.
S p e g i 11 i n n 15