Spegillinn - 01.01.1966, Síða 18

Spegillinn - 01.01.1966, Síða 18
Listamannaóður Strangt er lít hjd Stephenseni, stendur hann mjög í leikveseni. Af sér hrinti hann eymd og sleni listarhörpui leikur ó. — Fallega syngut fuglínn só. — Af því gleðjast meyjan mundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. Jóðlíts skseðan skammarblettinn skóf af sér við Endasprettinn. Kóketf Herdís gerðist glettin gekk í arma Rúriks þó. — Fallega syngur fuglinn só. — Og vitanlega féll hann fyrir sprundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. í skókinni börðust fræknir flokkar, frægir greifar og aðalsbokkar, ? en Friðrik er góði greifinn okkar gengur hann reifur vígvöll ó. — Fallega galar fuglinn só. — Böök þó grét og Galoway þó stundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. Pólitík er völt á vaði, viðbrennt stjórnar-karbonaði, þót' sífellt Bjarni sjálfum glaði setji langar ræður á. — Fallega galar fuglinn sá. — Verðbólguna verja karlinn mundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. Margir á því eru hlessa hve ungra' skálda svörf er messa. — Einn veit ég fremur frúrnar blessa, töluna níu treystir á, — Fallega galar fuglinn sá. — En nú er hættur öllu ástardundi. — Lisfamaðurinn lengi þar við undi. Helzt má þakka Hagalíni, að Haralds frægðin aldrei dvíni. Skeiðríður sínu skáldasvíni skáldið mannlífs traðir á — Fallega galar fuglinn sá. — En Haraldur dró marga síld úr sundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. Norðurlandaráði raunar ráða einkum Svíar og Baunar, og sínum mönnum sérhver Ipanar, sigrar Ekelundur þá. — Fallega galar fuglinn sá. — En Katlaskáldið enginn maður mundi. — Listamaðurinn lítið þar við undi. Á skáldabrautinni „skrikar" Kiljan, þótt sverja fyrir Stalin vilji'ann, og rauða fortíð reyni að dylja 'ann Rússlandsdögum sínum frá. — Fallega galar fuglinn sá. — Þá var glatt og dúfnaveizlan dundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. Ennþá styrkinn engan fæ ég, öllum árum að þó ræ ég. En Norðurlandalaunin fæ ég lengra þegar líður frá. — Fallega galar fuglinn sa. Herlegt verður lífið í þeim lundi. — Listamaðurinn lengi þar við undi. SKÁLAGLAMM (iistar.icnnsspira)

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.