Spegillinn - 01.01.1966, Page 20
Klókur er Björn
Oss hafa uorizt mörg bréf í
hendur, þar sem bréfritarar
éska eftir að vér leysum úr ýms-
um vandamálum sinna og mun-
um vér að sjálfsögðu bregðast
vel við og leysa hin mismun-
andi vandræði fólks. Vér vilj-
um taka það fram strax að þjóð-
hagsvandræði ríkisins munum
vér ekki leysa í einu svari. Það
þýðir því ekki fyrir Magnús
frá Mel að skrifa okkur..
Fyrsta bréfið hljóðar svo:
Kæri Spegill.
Ég er fimmtán ára skvísa, og
foreldrar mínir eru alveg von-
lausir. Ég er með gæja á kvöld-
in, en hvað heldurðu, Pabbi og
mamma banna mér að vera
seint úti á kvöldin. Ég verð að
koma inn klukkan níu öll kvöld
nema laugardaga, þá má ég vera
til klukkan tíu, ef ég ei þá ekki
hjá einhverjum sem pabbi og
mamma þekkja. Ég er bara al-
veg í öngum mlnum, eins og
þú getur skilið, því að gæjinn,
sem ég er svo skotinn 1, er al-
veg hífandi og hótar að hætta
að vera með mér, ef ég get ekki
dannað gamlingjana til Ég er
viss um að ef gæjinn stingur af,
þá verð ég brjáluð.
Elsku Spegill, hvað á ég að
gera, hvernig get ég lerað karl
og kerlingu svoleiðis t;' að þau
skilji, að þau geta ekki hagað
sér svona?
Ein úti að aka.
Svar:
Foreldrar þínir virðast vera
ágætis manneskjur, en láttu gæj-
ann þinn bara róa. Við ábyrgj-
umst að þú verðir ekki brjáluð
þess vegna,
Kæri Spegill.
Ég og maðurinn minn erum
hreint alveg i vandræðum út af
S p e g i i I i n n 20
drengnum okkar. Við höfum allt
af verið agalega góð við hann
og látið hann hafa vasa-aura og
svo fékk hann skeilinöðru I
haust. Og þá lofaði hann að vera
voða góður. En hann hefur
bara stórversnað, er úti langt
fram á nótt, og ef við hann er
talað, þá er hann bara reiður
og óviðráðanlegur. Hann gerir
ekkert af því sem við biðjum
hann og lítur aldrei í skólabók.
Haldið þér ekki að það væri
rétt að senda hann til sjós?
Haldið þér ekki að hann hefði
gott af því?
Örvæntingarfull mamma.
Svar:
Auðvitað mundi bæta strákinn
að senda hann til sjós, en hvort
það er æskilegt að senda svona
ribbalda til að vinna að þýð-
ingarmiklum framleiðslustörfum
Það er annað mál. Þér afsakið
þó að vér tökum svo hart í ár-
inni en okkar fullkomnu skip
þurfa á almennilegum mönnum
að halda.
Við viljum gefa yður það ráð
að taka af honum skellinöðruna
og minnka vasapeningana. Þvl
mun hann a.m.k. ekki hafa
slæmt af.
Kæri Spegill.
Björn Pálsson auglýsir I gríð
og erg gaddadekk, sem mér
finnst ekki nógu góð íslenzka,
a.m.k. heyrði ég aldrei talað
um gaddadekk I mínu ungdæmi
Geturðu ekki komið með tillögu
um íslenzkara heiti?
Gamalfróður.
Svar.
Auðvitað höfum við svar á
reiðum höndum. Vér leggjum til
að ,.gaddadekkin“ verði nefnd
broddabarðar, sem er rammís-
lenzkt heiti.
1 blöðum lesum vér, að Björn
alþingismaður Pálsson, vilji ólm-
ur láta skrásetja skip sitt (Húna
II.) að Löngumýri en ekki á
Skagaströnd og fylgir það með,
að Björn vilji með þessu losna
við að greiða til verkalýðsfélag-
anna á Skagaströnd 1%% af
kauptryggingu skipshafnarinnar.
Vér segjum bara: ekki er of-
sögum sagt af klókindunum
hans Björns og sýnist oss
þetta heillaráð hið mesta.
Hitt er svo annað mál, að vér
öfundum kaupfélagið á Skaga-
strönd ekki, ef það skyldi nú
verða að leggja fram fé (lánsfé
auðvitað) til hafnarframkvæmda
uppi á Löngumýri.
Fæst í næstu
miitvöruverzlun