Spegillinn - 01.01.1966, Page 21
„Skattheimtuæði"
„Síðustu vikurnar fyrir jól voru þing-
rnenn önnum kafnir við að magna elda
verðbólgunnar. Akveðnar voru 10—20
gjaldahækkanir af hugkvæmni sem bet-
ur hefði beinzt að öðrum verkefnum. ..
Og ekki lét borgarstjórinn heldur sitt
eftir liggja í margbreytileik í skatt-
heimtu. Rafmagnsverð hækka. um
13,35% ... gatnagerðargjald hækkar
um allt að 73% ... sundstöðvagjöld
hækka u mallt að þvx fjórðung, vatns-
skattur hækkar um 25% ofan á 50%
hækkun sem kom til framkvæmda á
síðasta ári . . . valdhafarnir eru sannar-
lega ekki svo skyni skroppnir að þeir
viti ekki hvað þeir eru að gera“
(Þjóðviljinn, F jan.)
Gamlárskvöldsstemma
1965
Langt er nú liðið ór,
ljómi þess eflaust stór
óslökktur enn um sinrx
yfir þig drengur minn.
Mörg voru frumvörp felld,
fóein hús keypt og seld.
Einn fór, sem enginn sér
eftir, f Lundúner.
Sunnanlands greri gras,
gerðist um Mývatn þras.
Af Llndal menn lærðu þar
um leðju og andirnar.
Baunum, sem betur fór,
buðum vér Gunnar Thor.
1 staðinn Arnasafn
eignumst fró Kaupinhavn.
Suma menn setti í strand
síldin við Austurland.
Voru ei í vafa um það
hún veiddist ó röngum stað.
Dauður d Sigló sjór,
suður því Einar fór.
Voru þó veður hörð,
villtist f Hafnarfjörð.
Við breiðan Faxafjörð
fóstrast bezt mennt ó jörð.
Á þar við enga bið
uppdrífast sjónvarpið.
Bankanna bókmenning
blöskrar nú almenning.
Mín bók, ó, bókin þín,
brótt kemur heim til sín.
pós.
S p e g i II i n n 21