Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 12
12
SPEGILLINN
Þegar Valur vann Benfica
VALUR og BENFICA skildu jöfn
í marklausum leik, sögðu blöðin
eftir hinn sögufræga leik liðanna
í Reykjavík í fyrra mánuði. Hér á
eftir fara nokkrar glefsur úr dag-
blöðunum eftir leikinn, og tekur
Spegillinn sér það bessaleyfi að
birta þær, enda eiga þær betur
heima í honum en á fyrrgreindum
stöðum. Athugasemdir í sviga eru
Spegilsins.
Morgunblaðið: Valsmenn unnu
með þessu einn frækilegasta sig-
ur sem íslenzkt félagslið hefur
unnið .... og þó liðið stæði lang-
tímum saman í vörn — kerfinu
samkvæmt — ógnaði það til síð-
ustu stundar. En staðreyndin er:
Ennþá er Valur ósigraður á heima-
velli í Evrópukeppni. (Að vera ó-
sigraður = að sigra).....press-
an á Valsmarkið var ægileg. En
hún varð sjaldan hættuleg. Nokkr-
um sinnum var Valsmarkið í mikilli
hættu......Eitt sinn var knöttur-
inn kominn framhjá Sigurði og
markið virtist óumflýjanlegt. En þá
stakk Þorsteinn Friðþjófsson upp
kollinum í markhorninu (ekki getið
um hvort það var að ofan eða
neðan), og skallaði frá. Ef litið er
á leikinni í tölum sést að Benfica-
menn eiga 47 skot á mark, yfir og
framhjá, en Valur aðeins 3. (Þvi-
líkur munur!!). Hermann vann
hlutkestið fyrir Val og sókn Ben-
fica hófst þegar. (Með hvaða liði
lék þessi Hermann eiginlega?) .. .
og Hermann á skalla að marki —
sem varinn var í horn. (Ekki er get-
ið um hvort um kýrhorn eða hrúts-
horn var að ræða). Leikurinn er í
fullu jafnvægi, þó sókn Benfica
sé öllu meiri.....voru sóknar-
menn Vals leiknir rangstæðir og
þannig runnu upphlaupin út í sand-
inn fyrir ekkert. Þarna sást greini-
lega munurinn á atvinnu- og á-
hugamennskunni......... komst
Eusebio í gegn með sendingu Col-
una en kiksaði (ekki vitum við
hvort það er það sama og „hikst-
aði"), og skotið fór framhjá. Litlu
síðar komst Eusebio einn innfyrir
en skaut framhjá úr dauðafæri. I
heild var leikur liðsins (þ.e. Vals)
einn sá sterkasti sem félagið hefur
náð. (Hverjir voru hinir?).
Tíminn: Þeir reyndu ajlt sem þeir
gátu. Þrjátíu sinnum skutu þeir að
marki, (einhver sagði 47 sinnum),
en knötturinn vildi ekki fara inn-
fyrir línuna. (Við hvað ætli hann
hafi verið hræddur?). Þökk sé Sig-
urði, þökk sé Valsvörninni ....
Svo vel tókst Páli að fylgja honum
eftir (þ.e. Eusebio), að ekkert bar
á þessum leikmanni, sem af flest-
um ertalinn snjallasti knattspyrnu-
maður veraldar í dag. Að vísu
komst Eusebio einu sinni í hættu-
legt færi í síðari hálfleik, en brást
þá bogalistin, sem betur fer!! Hvað
skyldi þjálfari Benfica, Otto Gloria,
hafa sagt við liðsmenn sína í hálf-
leik? Mér þætti gaman að vita
það. Eitt hefur hann örugglega
sagt: ,,Skrúfið hraðann upp!"
Portúgalarnir léku gönguknatt-
spyrnu í fyrra hálfleik, sem hent-
aði Val mjög vel. Þeim tókst aldrei
að veiða Valsmenn út úr vitateign-
um og skapa eyðu í honum. Euse-
bio hreinlega týndist, Páll sá um
það. Einn virkasti maður Benfica
var fyrirliðinn Coluna. Hann var
allsstaðar á vellinum. (Ja þvílíkt!).
tók hornspyrnu báðum megin.
Góður leikmaður, en leiðinlega
grófur. Núna varði hann eins og
engill (þ.e. Sigurður Dagsson), og
ég væri ekki hissa á því að Ben-
ficamenn hefðu áhuga á honum.
Portúgalar eru flestir kaþólskir,
svo ekki væri það ósennilegt að
þeir vildu engil í markið hjá sér,
burt séð frá praktísku hliðinni).
Alþýðublaðið: Sigurður Dags-
son markvörður, sem stóð sig með
mestu prýði og tók þá bolta sem
honum voru ætlaðir. (Þó hann
færi nú ekki að skipta sér af öðr-
um boltum maðurinn). Valsmenn
hófu leikinn með sókn, (þarna ber
stjórnarblöðunum ekki saman,
aldrei þessu vant) og skömmu síð-
ar eiga þeir sitt eina og hættu-
legasta tækifæri í leiknum, þegar
Reynir gefur út á kant til Gunn-
steins, sem gefur fallega fyrir til
Hermanns, sem skallar naumlega
framhjá og var það varnarmaður
Benfica sem stýrði knettinum
framhjá (skallaði Hermann virki-
lega framhjá), svo úr varð horn-
spyrna, sem síðan varð ekkert úr.
Hættulegasta skotið kom frá
Graca af löngu færi og fór hárfínt
framhjá. Það er full ástæða til að
óska Val til hamingju með leikinn
og óska þeim góðrar ferðar til
Portúgals á næstunni.
Þjóðviljinn: 0—0 jafntefli Vals
og Benfica er bezti árangur ísl.
knattspyrnuliðs til þessa. Stað-
reyndin er sú, að þetta heimsfræga
lið, Benfica náði ekki að skapa sér
nema tvö veruleg marktækifæri . ..
(þarna sézt munurinn á stjórn og
stjórnarandstöðu). Benfica hóf
leikinn .... Strax á fjórðu mínútu
áttu Valsmenn nokkuð gott mark-
tækifæri þegar Hermann komst
inn í vítateig. (Það hefði betur ver-
ið boltinn).....í leikhléi töluðu
menn um að í síðari hálfleik fengju
Valsmenn að sjá hvar Davíð keypti
ölið. En ölið var aldrei keypt. Þó
skall hurð oft nærri hælum í síð-
ari hálfleik, ekki síður en í þeim
fyrri. (Var ölsalan lokuð eða
hvað?) .... mínútu síðar áttu Ben-
ficamenn sitt bezta tækifæri, þeg-
ar Eusebio skaut framhjá af ör-
stuttu færi, líklega af markteig.
Það er alveg óhætt að fullyrða,
að þetta jafntefli er bezti árangur
íslenzks knattspyrnuliðs til þessa
og það mun gera Val að heims-
þekktu liði.
V. B.
Ps.
Lissabon 3.10. 1968 .... 8—1*