Spegillinn - 01.05.1968, Síða 13
SPEGILLINN
13
Spurningar og svör..
SPURNINGAR: SVÖR:
1. Hvers vegna er Hafnarfjarðarvegurinn
í Reykjavík, og Reykjavíkurvegur í
Hafnarfirði?
2. Hvers vegna skrifar Svavar Gests
nafnið sitt með litlum staf?
3. Did William Tell Shakespeare?
4. Hvers vegna geta Spegilsmenn aldrei
lært neitt?
5. Hvers vegna ganga slökkviliðsmenn
með rauð axlabönd?
6. Hvers vegna er Spegillinn bezta gam-
anblað landsins?
7. Er fyrirhugað að setja upp endurvarps-
stöð við Tjörnina?
8. Hvers vegna gerist þá ekki áskrifandi
að Speglinum?
1. Vegna þess, að of dýrt yrði að færa
báða vegina.
2. Af því, að hann loftar ekki stórum staf.
3. Við skiljum ekki ensku.
4. Auðvitað vegna þess, að þeir kunna
allt.
5. Þessi er nú svo gamall.
6. Vegna þess að hann er eina gaman-
blaðið á landinu.
7. Hvernig var spurningin aftur?
8. Er það kannske vegna þess, að þú ert
þegar áskrifandi?
TAIÍTEINAR...
Afi minn, faðir og tengdafaðir, föð-
urbróðir okkar og systursonur,
sonur minn og góðkunningi okkar
allra hinna Jón Dill Jónsson, sem
andaðist fyrir okkar hönd á laug-
ardaginn var verður ekki jarðsett-
ur að sinni.
Sigurbirna Einarsdóttir
Jósefína Hrífa
Þormóður M. Slæpan
Jón Jónsson yngri
Einarína Smirils
Lávarður Sigurðsson
P.t. staddur í Calkútta á Indlandi:
Til hamingju með áfallið.
Þarvaldur af Akranesi.
*
Eftir útvarpinu að dæma og þó
sérstaklega morgunútvarpinu, þá
er Blikur örugglega einhversstað-
ar, annaðhvort að koma eða fara,
eður jafnvel í kyrrstöðu, (Því mið-
ur vitum við ekki hvað Blikur er).
HVAÞA roiKSMER&Þttfiim
m ÚTVE6SBANKANN iMPAVOUl