Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 16

Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 16
16 SPEGILLINN Að undanfömu hafa verið gerðar umfangsmiklar tilraunir til að ná togaranum Surprise á flot af strandstað. (Vonandi verðum við ekki svo óheppin að hann verði kominn á flot, áður en þetta birtist á prenti). Tilraunirnar hafa ekki borið árangur svo vitað sé, en Spegillinn vill bera fram eftirfarandi tillögu: Hættið að bisa við að toga togarann út í sjó. Reynið heldur að draga hann upp á þjóðveg- inn. Þá er hægt að sigla honum fyrir eigin vélaafli til Reykjavíkur, í næstu stórrigningu! TILKYNNINGAR OG FRTTTIR Geng í hús og ét afganga. Danni Dranni, skáld. Hefi flutt fóstureyðingarstöð mína að Leynimel 13. Kobbi Kobba, múrari. T*ÍLKyNN IN G í 3 OFSAKIR QHAPPA É6 | É6 T É6 1 LAS I SPURÐIIHLUSTAÐII EKKI EKKI * EKKI FRfmKVÆMDflNEFAJD^^^B íogIn&h vinstri villu !! Stúlkan sem auglýst var eftir fyrir tveim vikum er komin í leitirnar. Partíinu sem hún var í lauk í morgun. Stúikan dvelur nú á Lands- spítalanum og er ekki talin í bráðri lífshættu. Það slys varð fyrir skömmu, að maður féll af svissneska skemmti- ferðaskipinu „ELVIRA“. Sem betur fer var hið bezta veður þegar slysið bar að höndum. En góðviðrið kom manninum því miður að litlu gagni, þar eð skipið var í þurrkvi. Fallið var u.þ.b. 20 metrar. Frá Happdrætti Háskólans: Fjórði hveriniði hlýtur vinning. Kaupið fjórða hvern miða og hreppið alla vinningana. Frá Vöruhappdrættinu: Happdrættið er nú glæsilegra en nokkru sinni fyrr. Hæsti vinningurinn er tólf hæða háhýsi á Austurbrún. Næsthæsti vinningurinn er átta hæða háhýsi á Vesturbrún. Viljum kaupa flugvél. Upplýsingar óskast sendar Speglinum, box 594 ásamt mynd . . . af flugfreyjunni.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.