Spegillinn - 01.05.1968, Síða 18

Spegillinn - 01.05.1968, Síða 18
18 SPEGILLINN TAKTEINAR... Eigandi m.b. Ásmundar, séne- versskipsins fræga, hefur nú feng- ið sinn dóm frá borði Hæstaréttar. Dómsniðurstaðan er byggð á einu stórbrotnasta ákvæði Grá- gásar sem segir: ,,Hver sá far- viður sem notaður er til smyglað- gerða skal upptækur ger einkum þó hafi eigandi hans leigt hann til fiskveiða". Nú er það á allra vitorði að stórsmygl hefur átt sér stað um áraraðir á Fossum og Jöklum og hvað þau nú heita öll skipin okkar, en þau hafa aldrei verið gerð upptæk og stafar það auðvitað af því að þau eru ekki farviður heldur mætti kannski kalla þau far-járn. Kemur hér enn í Ijós hve lögin eru fullkomin, að geta nú loksins gómað fyrsta skipið undir þessum bókstaf. Um anda bókstafsins þarf ekki að ræða, þar eru hinir hugumstóru og réttlátu dómarar fullkomlega í essinu sínu: eigandi bátsins skal gjalda helm- ingi þyngri sekt en sjálfir smyglar- arnir. Sjálfur Salómon hefði ekki getað gert betur. Það er leiðinlegt að hæstaréttardómarar skuli ekki lengur njóta góðs af upptækum áfengisbirgðum því sannarlega hefðu þeir átt skilið að fá séne- verveizlu eftir þvílíkt afrek. Þegar vasabækur þær sem tékkhefti nefnast stórhækkuðu í verði hér á dögunum sátu nokkrir kunningjar á Skálanum og ræddu þetta fyrirbrigði. Sumir sögðu að útgáfukostnaður hefði stóraukizt og bönkunum veitti sannarlega ekki af sínu, en aðrir hristu hausa og fundu engar skynsamlegar skýringar á þessum óvæntu út- gjöldum. Magnús Thorberg sem var einn í hópnum, laumaði þá út úr sér: Þetta er ósköp einfalt mál herrar mínir, gúmíið hefur nefni- lega hækkað á heimsmarkaðinum. Wilson forsætisráðherra Breta hefur ekki átt sjö dagana sæla í sinni stjórnartíð. Ýmist hafa ráð- herrar hans sagt af sér í mótmæla- skyni við stefnu hans eða verið reknir fyrir gleiðgosahátt svo sem mr. Brán, en margir töldu hann annars litríkasta karakter- inn í enskum stjórnmálum. Ofaná allt þetta basl kemur svo þetta hneyksli með Hennar Hátign drottninguna. Einhver úr konungs- fjölskyldunni hefur í blankheitum selt Paris Matz Ijósmyndir af Betu þar sem hún ýmist flatmagar í bæl- inu eða striplast um á sundbol, jafnvel er ekki örgrannt að á einni myndinni sjáist á blúndubuxur. Raunar kemur á daginn að hátignin er bara töluvert sexí eftir aldri. En auðvitað er það himinhrópandi glæpur að birta myndir af svo hárri persónu öðruvísi en í fullum skrúða; hefði svona athæfi kostað stríð á hendur Frökkum hér fyrr meir. I síðustu viku gekk það fjöll- unum hærra í Lundúnum að vafa- samt væri hvort Wilson myndi þiggja inngöngu í Efnahagsbanda- lagið nú þótt Dugól byði honum í partíið. En fátt er svo með öllu illt o.s.frv. Nú síðustu daga hefur komið á daginn að myndirnar af Betu hafa orðið til þess að bleik undirföt og röndótt sundföt hafa aftur komizt í tízku um víða veröld, en bara úr ekta enskum efnum, og eru nú miklar líkur til að það verði buxur drottningarinnar og önnur nærföt sem ætla að leysa úr efna- hagsöngþveiti Wilsonsstjórnarinn- ar og bjarga þannig heimsveldinu. Þegar Jósep Stalín féll frá skildi hann eftir sig tvö bréf til forsætis- nefndar Kommúnistaflokksins. Á öðru bréfinu stóð: Opnist ef á- standið verður mjög slæmt. En á hinu stóð: Opnist ef ástandið verður óviðráðanlegt. Liðu nú tímar og ástandið varð mjög slæmt og fyrra bréfið var opnað. I því stóð: Ef þetta er mjög erfitt skulið þið bara skella allri skuld- inni á mig. Og enn liðu tímar og seinna bréfið var opnað. I því stóð: Úr því þið ráðið ekki við neitt skulið þið bara stjórna eins og ég. Fjallkonan er eins og allir vita ein af þessum dularfullu konum sem birtast okkur í allskonar gerv- um, undir allskonar kringumstæð- um, ein af þessum konum sem aldrei þvo sér, aldrei sofa, aldrei láta í sig matarbita, en eru þó allra; kvenna þekkilegastar og svo út- sofnar að þær eru sjálflýsandi. En það er fáum gefin sú hamingja að hitta slíkar konur, að maður ekki tali um að komast uppí til þeirra. Undrun mín var ekki smá þegar ég rakst á Fjallkonuna í einu stór- partíi nú fyrir skömmu, uppdubb- aða í skvísulíki. Nei sæl verún. Ég hef ekki séð þig síðan á Þjóðhátíðardaginn þegar þú komst fram í gervi sveita- píunnar og fórst með þetta gull- fagra Ijóð: þar sem hún öxará rennur yfir Almannagjá. Hvað er títt? Sittán og heva sjúss. Ég er sold- ið í kippnum. Ó ég er svo sæl, ég er ástfangin. Og hver er sá lukkulegi? Hver? Þú heldur þó ekki að ég láti mér nægja einn? Stöðuglyndi Hanníbals, látleysi Gröndals, húm- or Bjarna, bragðvísi Austra- Manga, sjarmi Gylfa, gjafmildi Ás- bjarnar, hvað segir það; ég elska alla þjóðina eins og hún leggur sig. Ó, allt er svo gott, svo fallegt, svo heilbrigt og gróandi, allt er á uppleið, meira að segja búvöru- verðið. Og saltfiskurinn? Baccalá? Ég skil. Maður er ekki fyrr kominn í stuð en þið menning- arvitarnir dritið á okkur tittlinga- skít. Smámenni, en sem betur fer t fámennir og svo leiðinlegir að það tekur enginn mark á ykkur. Stór- stúkan er skárri. Ég er klár á það að sjómennirnir okkar skilja manna bezt að einhverjir þurfa að græða á saltfiskinum, og er þá nokkuð verra að það sé Islending- ur á Italíu en Itali á Islandi, svo ég

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.