Spegillinn - 01.05.1968, Side 22

Spegillinn - 01.05.1968, Side 22
22 SPEGILLINN POSTHÓLFIÐ Mér hefur borizt sýnishorn af Speglinum í nýrri útgáfu. Ég til- kynni hér með, að ég vil ekki vera áskrifandi að blaðinu. (Undirskrift). Við lýsum yfir undrun okkar að sá ágæti maður sem þetta skorin- orða bréf ritar skuli ekki vilja vera áskrifandi að Speglinum. En það er hans tap, (og reyndar okkar líka því miður), en aldrei er of seint að iðrast og munum við taka hann í fulla sátt og senda honum blaðið ef hann óskar þess. Ég póstlegg ávísun á kr. 80,00, krónur áttatíu, í dag til greiðslu á tveim heftum þessa árgangs og óska þar með, að vera tekinn af skrá sem áskrifandi. Þetta kallar maður nú heiðarleg- heit, en ekkert skiljum við í mann- inum að vilja ekki póstleggja 130 krónur í viðbót og fá allan árgang- inn. Hér með leyfir bankinn sér að tilkynna yður .... Afsakið, en þetta bréf átti nú ekki að lenda i pósthólfinu, það var eins gott að við sáum það strax. En hér kemur sýnishorn úr næsta bréfi: Sæmilegu útgefendur Spegils- ins: Ég saknaði Spegilsins mjög þessi ár sem hann kom ekki út og var farinn að líta á andlát hans sem eitt af þessum menningarfyrirbær- um sem ekkert þýðir að fást um, eins og kjarnaáburð, sem drepur ekki einungis menn og skepnur heldur einnig gras á túnunum, þ.e. veldur kali og okkur bændum er svo sagt að sé jú slæmt, en við því sé ekkert að gera, þetta sé hans eðli. — Nú varð ég glaður við þeg- ar Spegillinn gekk aftur.. . Um þessi blöð sem þið hafið gefið út er ekki vert að segja mikið og sjá hvað setur, þið hafið verið lasnir og þá taka menn sjaldnast á eins og þeir geta. Og með frómum ósk- um um hagstæðan bata hvet ég ykkur til að láta ekki hugfall- ast og gera eins og þið getið, ég borga næstu kröfu. Með kærri kveðju. Einum verður auðvelt ris öðrum þróttur dvínar: Amor slengdi Onassis í arma Jakkelínar. Umboðsmaður almættis í impotenti sínu þoldi ekki að Onassis ætti mök við Línu. ★ Úr mannkynssögunni: Hanníbal var alinn upp til þess að verða mikilmenni. Þegar hann var níu ára sór hann föður sínum þann eið að vinna allt fyrir föður- landið. Ungur að árum varð Hanní- bal mikill hershöfðingi, herkænska hans var frábær enda lifði hann sem jafningi hermanna sinna, nema hvað hann var gútemplar. Og hann fór suður yfir fjöll og vann mikla sigra og munaði minnstu að hann yrði sigurvegari heimsins. En — hann tók aldrei Róm. Fræðimönnum kemur ekki saman um hvaða skapgerðarveila olli örlögum hans, en þau urðu dapurleg, samherjarnir sviku hann og hann drap sig á eitri fjarri ættlandi sinu sár og saddur líf- daga. Húsgögnin frá VÍÐI eru heimilisprýði Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin hezt. Húsgagnaverzlunin VÍÐIR Laugavegi 166 Arbeiderlexikonen.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.