Spegillinn - 01.05.1968, Side 27
SPEGILLINN
27
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ
AÐ VERÐA?
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú verður stór? Þessi spurning
hefur verið lögð fyrir allflesta þá
sem komnir eru til vits og ára,
hérlendis og erlendis. Spegiinum
kom til hugar að lesendur hans
hefðu gaman af að heyra hvað
nokkrir strákar, sem hann hitti á
förnum vegi, hefðu um þetta að
segja.
Austur í sveitum hitti tíj
Spegillinn lítinn strák, sem
stóð við eldhúsborð og %
krotaði á blað. Heldur fórst »'
strákunum óhönduglega við
krotið, en Spegillinn spurði:
— Hvað heitir þú góði
minn?
— Gummi, svaraði strák-
ur skýrt og skorinort.
— Og hvað ætlar þú að
verða þegar þú er orðinn
stór?
— Ég ætla að verða
skáld, mikið skáld og verða
frægur um allan heiminn
eins og hann Halldór.
Næst brá Spegillinn sér
vestur á firði og þar hitti
hann kubbslegan strák, sem
sat við drullupoll og sigldi
skipi á pollinum.
— Hvað heitir þú vinur-
inn?
— Ég heiti Hjalli Bárðar.
— Hvað ætlar þú að
verða þegar þú ert orðinn
stór?
— Ég ætla að búa til stór
skip og sigla á þeim um
allan heiminn.
Norður á Mel hitti Speg-
illinn Ijómandi laglegan
strák sem stóð upp á stól
og pikkaði á reiknivél.
— Hvað heitir þú Ijúfur-
inn?
— Mangi á Mel.
— Hvað ætlar þú að
verða þegar þú ert orðinn
stór?
— Reiknimeistari. Ég
ætla að reikna svo mikið
að enginn skilji dæmin
nema ég sjálfur.
Að lokum rakst Spegill-
inn á strák sem stóð upp
á kassa og hélt ræðu.
— Hvað heitir þú væni
minn?
— Kiddi Tollasíus.
— Hvað ætlar þú að
verða þegar þú ert orðinn
stór?
— Ég ætla að stjórna öllu
sem ég mögulega get.