Spegillinn - 01.05.1968, Síða 31

Spegillinn - 01.05.1968, Síða 31
SPEGILLfNN 3t í HVERNIG TÚLKA BLÖÐIN SMÁFRÉTTIR? Spegillinn: Lúðvík, Eysteinn, Bjarni og Egg- ert gengu niður við höfn. Eggert féll í höfnina og Bjarni reyndi að bjarga honum, en féll þá sjálfur í höfnina. Eysteinn fór til að sækja hjálp, en á meðan tókst Lúðvík að hjálpa þeim félögum upp úr. Þeir komust fljótt í hús og fengu hlý föt, en kvefuðust báðir. Þjóðviljinn: Tveir skuggalegir náungar féllu í höfnina fyrir skömmu. í námunda við þá var þriðji náunginn, litlu frýnilegri, en hann brást við svo bleyðilega, að hann hljóp á brott án þess að aðhafast nokkuð til bjargar. öllu göfugmannlegri voru við- brögð herramanns nokkurs, sem einnig var nærstaddur. Setti hann sig í lífshættu mannleysum þess- um til bjargar. Var það á síðustu stundu, því mannkertin voru mjög máttfarin orðin, enda voru þau varla til stórræðanna, bæði veik- burða af slæmu líferni. Morgunblaðið: Nýlega voru tveir heiðursmenn á gangi niður við höfn, en í ná- munda við þá voru tveir skugga- legir náungar á ferð. Annar heið- ursmannanna féll út af hafnarbakk- anum, sennilega fyrir atbeina ná- unganna tveggja, sem veittu þeim eftirförina. Félagi hans reyndi að koma honum til bjargar, en var þá einnig hrundið í hafið. Það skipti engum togum, að annar skúrk- anna réðist að mönnunum með krókstjaka að vopni, en hinn böð- ullinn hljóp hlæjandi á brott, til að sækja liðsauka — liðsauka til að berja á mönnunum. Mennirnir í höfninni náðu með snarræði og hreysti að komast á land, þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir hins skugga- lega náunga að vinna á þeim með krókstjakanum. Svo heppilega vildi til, að lög- reglubíl bar þarna að og náðist til hrakmennanna beggja. Heiðurs- mönnunum tveim varð ekki meint af volkinu, enda eru þeir báðir hin mestu hraustmenni. Tíminn: Fyrir skemmstu voru tveir vesa- lingar að slæpast niður við höfn, þegar annar þeirra slangraði fram af bryggjunni, enda ölvaður mjög. Félagi hans hugðist koma honum til hjálpar, en fórst það svo klaufa- lega úr hendi, að hann stakkst einnig í hafið. Þriðji leppalúðinn kom aðvífandi, en horfði aðeins hlæjandi á og aðhafðist ekkert til bjargar. Ranghermt var hjá Morg- unblaðinu, að hann hefði barið þá með krókstjaka; hann barði þá með hamri og sigð. Það vildi pöru- piltunum til happs, að athugull og greindur maður var nærstaddur og brá hann við skjótt og sótti hjálp og er tvísýnt hvernig farið hefði annars. Mjög var af manntetrunum dreg- ið, enda voru þeir varla til stór- ræða, báðir veikburða af slæmu líferni. Alþýðublaðið: Nýlega voru tveir heiðursmenn á gangi niður við höfn, en í ná- munda við þá voru tveir skugga- legir náungar o.s.frv., (sjá Morg- unblaðið í gær). ■

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.