Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 32

Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 32
32 SPEGILLINN Mörg manneskjan á bágt með að koma tali sínu víð annað fólk svo í lagi sé, ýmist vegna feimni eða þess lítillætis að líta svo á að , viðræðandinn sé hátt yfir mann ;hafinn og þar af leiðandi snjallari í viðræðu og öruggur í framkomu. Við berum hér fram nokkrar ráð- leggingar til notkunar þessu ó- framfærna fólki ef það mætti verða til þess að létta því aðgang að við- ræðulistinni. Þegar þú talar við ráðherra er þér hollt að minnast þess að ráð- herra er líka maður þó hann líti sjaldan út fyrir að vera það. Ef þú átt tal við utanríkisráðherrann skalt þú tala um innanríkismál því hann veit meira um þau en nokkur hinna ráðherranna, en talir þú við hina ráðherrana skalt þú tala um utanríkismál því hver um sig er alveg viss um að hann hefði verið rétti maðurinn í utanríkismálaráð- herrann. Sama er að segja um þingmenn almennt, nefnilega að þeir eru líka menn þó að þeir eigi allir sama drauminn: stól. En þú skalt samt ekki ræða um húsgögn við þá. Við mælum með Bingó eða bara venjulegum fimleikum. Læknar eru alltaf reiðubúnir til að ræða málaralist, tónlist eða leikhúsið, en magasár, drottinn minn, minnstu aldrei á slíkt við lækni, því síður að þessi og þessi aðgerð hafi tekizt frábærlega vel, því þá líta þeir á þig sem fábjána. Miljónamæringa og aðra bisnes- menn færðu áreiðanlega í gang með því að býsnast yfir því hvað þeir hafi komið sér áfram án þess að vera brútal og tillitslausir. Ef þú byrjar rétt þá munu þeir brátt úthella hjarta sínu og lýsa fyrir þér hvað þeir séu góðhjartaðir, Ijóð- elskir og hvað þeir mundu taka af- skapiega nærri sér að neita manni um greiða. Tónlistarmenn geturðu í hvelli komizt inn á með því að ganga beint til verks og segja: Hvort þyk- ir þér vænna um Bach eða Bítlana. Eða þú ferð að tala um árekstrana milli Araba og Israel og innan stundar eru þeir búnir að sann- færa þig um að þeir elska bæði Bach og Bítlana. Vísindamenn og tæknifræðingar

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.