Spegillinn - 01.05.1968, Síða 33

Spegillinn - 01.05.1968, Síða 33
SPEGILLINN 33 eru nokkuð erfiðir viðfangs. Þeirra áhugamál er kvaðratrót, afstæðis- kenningin eða sjálfvirkni tölvunn- ar. Ellegar þá þeir fara út í heim- spekilegar vangaveltur um mann- lífið almennt frá sjónarmiði tækni- aldarinnar. Hyggilegt væri því að beina talinu strax að kvikmynda- stjörnum, áfengisbölinu eða tó- baksreykingum. Leikkonum kemur maður alltaf í gott skap með því að segja að þær séu miklu glæsilegri en maður hafði gert ráð fyrir úr fjarska ;— og sá dagurinn er liðinn. Sjoppueigandinn fær málið ef þú minnist á skattaránið. Búfræð- ingurinn vill tala um hross eða frá- skildar konur. En þegar þú mætir arkitekt er betra fyrir þig að þekkja eitthvað til Asuanstíflunnar eða þróunarsögu Borgarspítalans. Allt geta þetta verið þægileg umræðu- efni ef þú gætir þess að blanda ekki laxveiðum í málið. Blaðamenn eru ætíð reiðubúnir til að spjalla um kollegana einkum ef barþjónar heyra til. Sama mætti segja um prestana nema hvað þeirra tal snýst allt um ágæti með- bróðurins. Skáld og rithöfundar tala aftur á móti aldrei illa um ná- ungann nema á tímum úthlutunar, enda er þeim sama hvort þeir tala um geimskot eða ostagerð. Þeir vita allt. En varastu að bjóða þeim sjúss ef þú vilt ekki missa af jarð- arförinni hans frænda þíns. Stjörnufræðingar, skákmenn, golfleikarar, bifvélavirkjar, sjón- varpsmenn eru auðveldir viðfangs. Þú skalt bara ræða við þá um stjörnufræði, skák, golf, bíla, sjón- varp. Ungmeyjar tala mikið um á- sigkomulag ungmeyja — það gera lögfræðingar Iíka. Þú skalt ræða um launakjörin við starfsmenn ríkis og bæja og þó einkum að viðræðandi þinn skuli ekki vera í miklu hærri launa- skala. Ef þú er ekki of tímabund- inn getur þú líka skemmt þér vel með því að undrast yfir því hvern- ig ríkið getur alltaf valið úr beztu starfskröftum þjóðarinnar fyrir þetta skítakaup. OSRAM HUGMYND er góð HUGMYND!

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.